Vök og Gnarr hæst metnu hrossin í Spretti

Ræktunardagur Hrossaræktardeildar Spretts var um helgina en Þorvaldur Kristjánsson var fyrst með fyrirlestur um sögu Landsmót og einnig uppruna útgeisluna. Fjallaði hann um fegurð í reið og hvaða ættfeður og ættmæður standa að hrossum sem skara framúr hvað þennan eiginleika varðar. Mjög fróðlegt erindi að sögn viðstaddra.
Í framhaldi af því var hann með forskoðun á kynbótahrossum. Mætt var með 26 hross, 24 hryssur og 2 graðhesta.
Efstu stóðhestarnari í þessari skoðun voru eftirfarandi:
Stóðhestar
1, Gnarr f. Brautarholti IS2018137638 rauðtvístjörnóttur Eig: Sigurður Gunnar Markússon Einkunn 8,36
2. Funi f. Bjarnanesi IS2019149201 brúnn Eig: Ríkharður Flemming Jenssen Einkunn: 7,91.

Gnarr frá Brautarholti
Efstu fimm hryssur voru eftirfarandi í þessari forskoðun:
Hryssur
1. Vök f. Efri-Brú IS 2018288695 jörp. . Eig. Stapabyggð ehf Einkunn 8,39
2. Kolka f. Fornusöndum IS2018284172 Brún Eig: Finnbogi Geirsson Einkunn 8,38
3. Sól f. Ytri-Skógum IS2016284012. Rauð Eig. Finnbogi Geirsson Einkunn 8,19
4. Vala f. Vindási IS2019284981 rauðglófext Eig: Auður Stefánsdóttir Einkunn 8,18
5. Sóldís f. Votumýri 2 IS2018287935 brún Eig: Kolbrún Björnsdóttir og Gunnar Már Þórðarson Einkunn 8,08

Vök frá Efri-Brú