Fjölskyldubönd og pör í landsliðshópnum

Landsliðsþjálfararnir Ísólfur Líndal Þórisson og Sigvaldi Lárus Guðmundsson hafa kynnt landsliðshópa Íslands í hestaíþróttum fyrir komandi keppnistímabil. Samtals voru 40 knapar valdir í A-landsliðið og U21-landsliðið, en auk þeirra eiga fimm ríkjandi heimsmeistarar sjálfkrafa sæti í hópnum.

Það hefur löngum legið fyrir að tengingar fólks í hestaíþróttum á Íslandi eru miklar. Þetta endurspeglast svo um munar í landsliðsvalinu í ár, í hópnum má finna fimm pör eða hjón, sjö feðga eða feðgin og þrenn systkini. Að ónefndu því að margar aðrar ættartengingar er að finna í hópnum.

Pör/hjón:

Flosi Ólafsson og Brynja Kristinsdóttir
Jakob Svavar Sigurðsson og Helga Una Björnsdóttir
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Jóhanna Margrét Snorradóttir
Þorgeir Ólafsson og Glódís Rún Sigurðardóttir
Loftur Breki Hauksson og Elva Rún Jónsdóttir

Feðgin/feðgar

Sigurður Sigurðarson og Dagur Sigurðsson
Sigurður Vignir Matthíasson og Matthías Sigurðsson
Elvar Þormarsson og Eik Elvarsdóttir
Viðar Ingólfsson og Ragnar Snær Viðarsson
Haukur Baldvinsson og Loftur Breki Hauksson
Sigvaldi Lárus Guðmundsson (landsliðsþjálfari) og Elísabet Líf Sigvaldadóttir
Ísólfur Líndal Þórisson (Landsliðsþjálfari) og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal

Systkini

Guðný Dís Jónsdóttir og Elva Rún Jónsdóttir
Ásmundur Ernir Snorrason og Jóhanna Margrét Snorradóttir
Glódís Rún Sigurðardóttir og Védís Huld Sigurðardóttir

Samkvæmt þessum skemmtilega fróðleik ætti samheldni og samstaða að verða ríkjandi hjá landsliðinu í komandi verkefnum.

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins.

Valið stóð á milli 70 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Í reglum er tekið fram að tilnefna skal 12 efstu búin árlega en búin eru 13 í ár þar sem tvö bú eru jöfn í tólfta sæti. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Bændasamtaka Íslands, bondi.is.

Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2026 sem haldin verður í reiðhöll Spretts laugardaginn 7. nóvember næstkomandi og byrjar kl. 13:00.

 

Í stafrófsröð eru tilnefnd bú: 
Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
Berg, Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson
Efsta-Sel, Daníel Jónsson, Bertha María Waagfjörð og Hilmar Sæmundsson
Fet, Anton Páll Níelsson, Bylgja Gauksdóttir og Ólafur Andri Guðmundsson
Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundsson, Valgerður Þorvaldsdóttir, Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir
Grund II, Ólöf Stefánsdóttir og Örn Stefánsson
Hemla II, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og fjölskylda
Hestklettur/Prestbær, Inga Jenssen, Ingar Jenssen, Sigríður Gunnarsdóttir og Þórarinn Eymundsson
Margrétarhof, Reynir Örn Pálmason og Montan fjölskyldan
Skálakot, Guðmundur J. Viðarsson, Jóhanna S. Þórhallsdóttir og fjölskylda
Skipaskagi, Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir og fjölskylda
Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Fagráð í hrossarækt óskar tilnefndum búum innilega til hamingju með frábæran árangur.

A landsliðshópur Íslands

Ísólfur Líndal Þórisson landsliðsþjálfari A-landsliðs Íslands í hestaíþróttum hefur valið landsliðshóp fyrir starfsárið 2026-2027. Hópur 25 afreksknapa var kynntur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum, sem allir bjóða hesta sína til þátttöku á HM27.

Í hópnum eru fimm titilverjendur frá síðasta HM, þar af eru þrír knapar sem urðu heimsmeistarar í ungmennaflokki og verja sinn titil í flokki fullorðinna.A

Rétt er að taka fram að knapar sem ekki eru valdir að þessu sinni eiga jafn mikinn möguleika og allir aðrir til að sanna sig á undirbúningstímabili sem og á komandi keppnistímabili til að ávinna sér sæti í landsliðshópnum og fara alla leið.

Landsliðsþjálfari mun fylgjast grannt með stöðu mála og ekki hika við að bæta knöpum í hópinn þegar ástæða þykir til.

Mikið starf er framundan í hópnum og verður boðið upp á ýmsa fræðslu í vetur. Hópurinn mun einnig taka þátt í fjáröflunarviðburðum landsliðsnefndar eins og Allra sterkustu og sýnikennslu landsliðsins sem haldin verður í haust.

A-landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi 25 knöpum:
Titilverjendur

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Herði, heimsmeistari í T2

Árni Björn Pálsson, Fáki, heimsmeistari í T1

Kristján Árni Birgisson, Geysi, heimsmeistari í P1 og P2 ungmenna

Védís Huld Sigurðardóttir, Sleipni, heimsmeistari í V1 og T1 ungmenna

Jón Ársæll Bergmann, Geysi, heimsmeistari í F1, PP1 og samanlögðum fimmgangsgreinum ungmenna

Aðrir knapar

Ásmundur Ernir Snorrason, Geysi

Brynja Kristinsdóttir, Sörla

Daníel Gunnarsson, Skagfirðingi

Elvar Þormarsson, Geysi

Eyrún Ýr Pálsdóttir, Fáki

Flosi Ólafsson, Borgfirðingi

Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni

Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Sleipni

Gústaf Ásgeir Hinriksson, Geysi

Hanna Rún Ingibergsdóttir, Geysi

Hans Þór Hilmarsson, Geysi

Haukur Baldvinsson, Sleipni

Helga Una Björnsdóttir, Þyt

Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra

Jóhanna Margrét Snorradóttir, Geysi

Sigurður Matthíasson, Fáki

Sigurður Sigurðarson, Geysi

Sigursteinn Sumarliðason, Sleipni

Viðar Ingólfsson, Fáki

Þorgeir Ólafsson, Geysi

A landsliðshópur Íslands kynntur í dag

Landsliðshópur A landsliðs Íslands verður kynntur með viðhöfn í dag klukkan 16:30.

Mun landsliðsþjálfarinn Ísólfur Líndal Þórisson þar með tilkynna hvaða knapar verða í hópnum í vetur með Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi sem loka markmið.

Sýnt verður beint frá viðburðinum í opinni útsendingu á EiðfaxaTV og á vef Eiðfaxa klukkan 16:30 og mun útsendingin vera hér að neðan.

 

Agnar Snorri ráðinn til norska landsliðsins

Agnar Snorri Stefánsson hefur verið ráðinn sem landsliðsþjálfari hjá Norðmönnum. Ráðningin er liður í langtímauppbyggingu norska landsliðsins með Heimsmeistaramótið í Rieden á næsta ári og Norðurlandamótið í Seljord í Noregi árið 2028 í huga.

Frá þessi er sagt á vefsíðu NIFH.

Að sögn An-Margritt, landsliðsstjóra Noregs, var lögð áhersla á að finna einstakling með mikla þekkingu, reynslu og hæfni til að taka þátt í uppbyggingu landsliðsins. Með ráðningunni sé verið að styrkja þjálfarateymið ennþá frekar en Martin Rønnestad sinnir þjálfun U-21 landsliðsins.

 

„Planið er náttúrulega bara HM – alla leið“

Loftur Breki Hauksson er á meðal nýliða í U-21 árs landsliði Íslands í hestaíþróttum en valið var kunngjört síðastliðið fimmtudagskvöld. Blaðamaður Eiðfax hitti á Loft Breka við það tilefni og ræddi við hann um valið og framtíðarplönin.

Loftur Breki fékk símtal frá Sigvalda, landsliðsþjálfara, með tíðindunum og lýsti mikilli ánægju með að vera kominn í hópinn. „Það var bara mjög gaman, þetta er heiður sko,“ sagði Loftur Breki. Spurður hvort landsliðsvalinu fylgdi aukin pressa sagði hann svo ekki vera, heldur væri þetta fyrst og fremst hvatning og heiður til að halda áfram að standa sig vel á vellinum.

Fyrirkomulag næsta keppnistímabils verður með svipuðu sniði og áður. Hann segist vera með nokkra hesta í boði en vill ekki gefa strax upp hvaða hestar verða fyrir valinu: „Það verður bara eiginlega að koma í ljós hvernig tímabilið byrjar og hvernig það þróast,“ sagði hann og bætti við að allar greinar væru opnar, bæði tölt og skeið.

Aðspurður um markmið næsta árs stóð ekki á svörum: „Ég verð í Meistaradeild ungmenna í vetur, og svo er planið náttúrulega bara út á HM – alla leið,“ sagði Loftur Breki að lokum fullur tilhlökkunar.

„Markmiðið var alltaf að komast í hópinn“

Apríl Björk Þórisdóttir er einn nýliðanna í U-21 árs landsliði Íslands í hestaíþróttum en valið var tilkynnt í síðustu viku. Eiðfaxi náði tali af henni í tilefni þess og forvitnaðist um viðbrögðin við landsliðssætinu.

Aðspurð um tilfinninguna að vera komin í hópinn stóð ekki á svörum: „Tilfinningin er mjög góð og það var gaman að fá símtalið frá Sigvalda. Það er mikill heiður að vera valin og fá að vera hluti af þessum flotta hópi sem U-21 er, og ég hlakka mikið til starfsins í vetur.“sagði Apríl kát í bragði.

Að komast í landsliðið var alls engin tilviljun heldur beint markmið hjá Apríl. Hún segir að landsliðssætið muni nýtast henni afar vel sem knapa: „Ég hlakka til vetrarins og er viss um að vera komin í landsliðið og þann flotta hóp sem U-21 er muni nýtast mér vel, bæði við að fá ráð við þjálfun og svo þegar út í keppnina er komið.“

Stefna Aprílar er skýr en hún stefnir á Heimsmeistaramótið á næsta ári og hefur úr góðum hrossakosti að moða. „Já, stefnan er á HM. Ég er með tvær frábærar merar; þær Lilju frá Kvistum, sem ég hef mest verið að keppa á í tölti, og svo Esju frá Miðsitju, sem ég hef verið að keppa á í fimmgangi,“ sagði Apríl að lokum full tilhlökkunar fyrir komandi verkefnum.

„Valið byggir á framförum, stöðugleika og árangri“

Landsliðshópur Íslands skipaður knöpum 21 árs og yngri fyrir starfsárið 2026–2027 var kynntur með formlegum hætti fimmtudaginn 8.oktobóer. Sýnt var beint frá valinu á EiðfaxaTV og á vef okkar.

Sigvaldi Lárus Guðmundsson, landsliðsþjálfari U21, flutti opnunarræðu þar sem hann fór yfir valið, undirbúninginn og verkefnin fram undan.

Í þeirri ræðu sagði Sigvaldi meðal annars að stóra markmiðið á næsta tímabili er heimsmeistaramót íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi, en valið á hópnum byggir á heildstæðu mati á framförum, árangri og stöðugleika knapa og hesta á liðnu keppnistímabili. Hópurinn samanstendur af knöpum sem verða á aldrinum 17 til 21 árs á keppnisárinu. Sigvaldi tók sérstaklega fram að valdir hefðu verið inn nokkrir nýliðar og yngri knapar með það markmið að þeir fengju dýrmætt tækifæri til að kynnast landsliðsstarfinu, umhverfinu og þeim kröfum sem gerðar eru á þessu stigi.

„Þetta er ekki auðvelt en það er mikið til af flottum krökkum. Á næsta ári erum við mest að fara horfa til heimsmeistaramótsins enda viljum við öll vinna gullin. Ég er þó líka að horfa fram í tímann og til næstu ára. Hvernig við byggjum ofan á starfið og eignumst enn öflugri knapa,“ sagði Sigvaldi við blaðamann eftir kynningu á Landsliðinu.

Dyrnar alls ekki lokaðar

Þá lagði landsliðsþjálfarinn ríka áherslu á að þótt hópurinn væri nú kynntur væru dyrnar alls ekki lokaðar. Hann áréttaði að hann héldi augunum vel opnum fyrir þeim knöpum sem ekki eru í hópnum að svo stöddu, og mögulegt yrði að taka inn knapa sem sýna miklar framfarir og standa sig vel á komandi keppnistímabili.

„Baráttan verður hörð og það verður mikil pressa. Ef einhver verður ekki að standa sig þá er annar knapi mættur til að taka sætið hans. Við erum heppin með það hvað við höfum úr stórum hópi flottra knapa að velja.“

Mikil vinna framundan

Baráttan um lokasætin á heimsmeistaramótið verður gríðarlega hörð, enda eru einungis fimm sæti í boði fyrir Íslands hönd í ungmennaflokki. Fram undan er markviss og fagleg vinna í vetur bæði á andlega, líkamlega og reiðmennskulega sviðinu, með reglulegri eftirfylgni til að tryggja að allir séu á toppi með sína hesta og sjálfan sig þegar endanlegt val á þeim sem keppa á HM fer fram.

Aðspurður hvort það væru einhver ákveðin mót sem hann horfir til við valið segist hann leggja áherslu á að knaparnir séu að mæta á þessi stærri WR íþróttamót. „Ég get ekki ætlast til að þau mæti á öll en auðvitað eru það þessi stærstu WR mót sem verður horft mest til, Íslandsmótið, Reykjavíkurmeistaramótin og WR íþróttamót Sleipnis og Geysis. Knaparnir þurfa þó líka að vera skynsöm og gera ekki of mikið með hestana sína,“

Sigvaldi óskaði knöpunum innilega til hamingju með valið og hvatti þá til að leggja hart að sér í vetrarstarfinu.

 

Aukin umsvif landsliðsins í vetur

Landsliðsstarfið í hestaíþróttum verður með fleiri viðburði á komandi vetri en áður, en þetta fram kom í máli Sigurbjörns Eiríkssonar, formanns afreks- og landsliðsnefndar LH, við kynningu U21-landsliðshópsins í gærkvöldi.

Sigurbjörn greindi frá því að markvisst væri stefnt að því að færa starfsemi landsliðsins nær hestafólki um allt land. Liður í því verða sérstakar sýnikennslur á vegum landsliðsins sem haldnar verða á þremur stöðum á landinu á komandi vetri. Markmiðið með sýnikennslunum er að veita knöpum, þjálfurum og áhugafólki innsýn í faglegt starf og þjálfunaraðferðir landsliðsins, efla grasrótina og hvetja unga knapa til frekari afreka.

Þá verður stórviðburðurinn Allra sterkustu á sínum stað í vetrardagskránni, en viðburðurinn hefur skipað sér fastan sess sem ein helsta hátíð hestaíþróttanna þar sem landsliðsknapar og gæðingar þeirra keppa sín á milli auk annara uppákoma.

Sigurbjörn lagði áherslu á að með þessum viðburðum, sýnikennslunum og Allra sterkustu, væri verið að styrkja tengsl landsliðsins við hestasamtökin í heild og skapa öflugan grundvöll fyrir undirbúninginn fyrir stóru verkefnin sem fram undan eru.

Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa

Hestamannafélagið Sörli í Hafnarfirði auglýsir nýtt starf móta- og viðburðafulltrúa. Um er að ræða hlutastarf sem sett er upp sem eins árs tilraunaverkefni, en að því loknu verður árangur metinn með tilliti til framhalds.

Móta- og viðburðafulltrúi mun bera ábyrgð á skipulagi og tímasetningu viðburða félagsins, hámarka nýtingu á glæsilegri aðstöðu Sörla og leiða vinnu við styrkjaöflun og tekjutækifæri. Starfið felur í sér náið samstarf við framkvæmdastjóra, stjórn, yfirþjálfara og ýmsar nefndir félagsins, sérstaklega mótanefnd.

Helstu verkefni og áherslur:
  • Skipulag og samræming á viðburðum og mótahaldi félagsins.
  • Rétt og markviss nýting á aðstöðu Sörla.
  • Samstarf við nefndir félagsins og undirbúningur móta.
  • Styrkjaöflun, samstarf við fyrirtæki og greining á nýjum tekjutækifærum.

Leitað er að skipulögðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem þekkir vel til hestaíþrótta og íslensks hestasamfélags. Reynsla af viðburðahaldi og styrkjasamstarfi er mikilvæg, sem og rík samskiptafærni.

Umsóknarfrestur er til 20. október. Áhugasömum er bent á að senda fyrirspurnir og upplýsingar á netfangið [email protected].