„Planið er náttúrulega bara HM – alla leið“

  • 11. október 2026
  • Fréttir
Viðtal við Loft Breka Hauksson nýliða í landsliðinu

Loftur Breki Hauksson er á meðal nýliða í U-21 árs landsliði Íslands í hestaíþróttum en valið var kunngjört síðastliðið fimmtudagskvöld. Blaðamaður Eiðfax hitti á Loft Breka við það tilefni og ræddi við hann um valið og framtíðarplönin.

Loftur Breki fékk símtal frá Sigvalda, landsliðsþjálfara, með tíðindunum og lýsti mikilli ánægju með að vera kominn í hópinn. „Það var bara mjög gaman, þetta er heiður sko,“ sagði Loftur Breki. Spurður hvort landsliðsvalinu fylgdi aukin pressa sagði hann svo ekki vera, heldur væri þetta fyrst og fremst hvatning og heiður til að halda áfram að standa sig vel á vellinum.

Fyrirkomulag næsta keppnistímabils verður með svipuðu sniði og áður. Hann segist vera með nokkra hesta í boði en vill ekki gefa strax upp hvaða hestar verða fyrir valinu: „Það verður bara eiginlega að koma í ljós hvernig tímabilið byrjar og hvernig það þróast,“ sagði hann og bætti við að allar greinar væru opnar, bæði tölt og skeið.

Aðspurður um markmið næsta árs stóð ekki á svörum: „Ég verð í Meistaradeild ungmenna í vetur, og svo er planið náttúrulega bara út á HM – alla leið,“ sagði Loftur Breki að lokum fullur tilhlökkunar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link