Bjarni Jónasson vann töltið og Jói Magg var fljótastur í skeiðinu

Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum
Úrslitum í tölti T1 og flugskeiði er lokið í Meistaradeild KS í hestaíþróttum og þar með er keppnistímabili deildarinnar lokið. Efstur eftir forkeppni í tölti var Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti en í öðru sæti var Mette Mannseth og List frá Þúfum. Röðun keppenda hélt sér í úrslitum og fór þannig að Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti unnu keppnina með einkunnina 8,11. Mótið var sent út í beinni á Tindastól TV og liðaplatta kvöldsins í tölti hlaut lið Íbishóls en þau áttu tvo knapa í A-úrslitum og einn í B-úrslitum.

Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti
Í flugskeiði voru margreyndir verðlaunahestar í braut og keppni því hörð – Eftir fyrri sprett stóðu þeir Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu efstir á tímanum 4,75s en mjótt var á munum á milli þeirra og Sigursteins Sumarliðasonar og Krókusar frá Dalbæ sem fóru á tímanum 4,76 sekúndum. Það fór þó svo að Jóhann Birgir Magnússon sigraði skeiðið þegar Fröken frá Bessastöðum skeiðaði í gegnum höllina á tímahum 4,72s. Það var svo lið Leiknis sem tók liðaplattann í flugskeiðinu.
Í heildar liðakeppninni var það lið Íbishóls sem sigraði liðakeppnina í samanlögðum stigum með 292,2 stig. Liðsfélagar voru þau Magnús Bragi Magnússon (liðsstjóri), Guðmar Freyr Magnússon, Védís Huld Sigurðardóttir, Sigursteinn Sumarliðason og Freyja Amble Gísladóttir.
Í einstaklingskeppninni varð stigahæst Metta Mannseth sem hélt forystu alla deildina með 124 stig. Hún er liðsstjóri í liðið Þúfna.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins í tölti:
A-ÚRSLIT
- Bjarni Jónasson & Katla frá Ytra-Vallholti 8,11 / STORM RIDER
- Mette Mannseth & List frá Þúfum 7,94 / ÞÚFUR
- Þórarinn Eymundsson & Þrá frá Prestsbæ 7,78 / HRÍMNIR
- Magnús Bragi Magnússon & Óskadís frá Steinnesi 7,72 / ÍBISHÓLL
- Sigursteinn Sumarliðason & Skráma frá Skjálg 7,67 / ÍBISHÓLL
B-ÚRSLIT
- Þórdís Inga Pálsdóttir & Fjalar frá Vakurstöðum 7,50 / HRÍMNIR
- Guðmar Freyr Magnússon & Sigursteinn frá Íbishóli 7,39 / ÍBISHÓLL
- Þorsteinn Björn Einarsson & Fannar frá Hafsteinsstöðum 7,22 / HOFSTORFAN – 66°N
- Fanney Dögg Indriðadóttir & Trygglind frá Grafarkoti 7,17 / HRÍMNIR
- Artemisia Bertus & Filma frá Tunguhálsi II 7,06 / EQUINICS
- Vera Evi Schneiderchen & Ramóna frá Hólshúsum 6,94 / EQUINICS
- Sigrún Rós Helgadóttir & Týr frá Jarðbrú 6,73 / HOFSTORFAN – 66°N
13-14. Gísli Gíslason & Trymbill frá Stóra-Ási 6,70 / ÞÚFUR
13-14. Arndís Brynjólfsdóttir & Hraunar frá Vatnsleysu 6,70 / STORM RIDER
15-17. Barbara Wenzl & Kná frá Engihlíð 6,67 / ÞÚFUR
15-17. Randi Holaker & Þytur frá Skáney 6,67 / UPPSTEYPA
15- 17. Konráð Valur Sveinsson & Gammur frá Aðalbóli 6,67 / LEIKNIR
18- 20. Guðmar Þór Pétursson & Sókrates frá Skáney 6,57 / LEIKNIR
18-20. Ísólfur Líndal Þórisson & Sæhvönn frá Dvergasteinum 6,57 / UPPSTEYPA
18-20. Elvar Einarsson & Muni frá Syðra-Skörðugili 6,57 / STORM RIDER
- Ylfa Guðrún Svafarsdóttir & Stórstjarna frá Akureyri 6,23 / HOFSTORFAN – 66°N
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir & Krafla frá Hamarsey 6,20 / EQUINICS
23-24. Jóhann Magnússon & Bogi frá Bessastöðum 6,13 / LEIKNIR
23-24. Hans Kjerúlf & Elsa frá Jaðri 6,13 / UPPSTEYPA
Hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins í skeiði:
- Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum 4,72 / LEIKNIR
- Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 4,75 / LEIKNIR
- Sigursteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ 4,76 / ÍBISHÓLL
- Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni 4,85 / HRÍMNIR
- Mette Mannseth og Vívaldi frá Torfunesi 4,87 / ÞÚFUR
- Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri 2 4,91 / EQUINICS
- Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 4,94 / STORM RIDER (leynigestur)
- Haukur Bjarnason og Þórfinnur frá Skáney 5,10 / UPPSTEYPA
- Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson og Seyður frá Gýgjarhóli 5,11 / HRÍMNIR (leynigestur)
- Bjarni Jónasson og Hrappur frá Sauðárkróki 5,12 / STORM RIDER
- Freyja Amble Gísladóttir og Dalvík frá Dalvík 5,23 / ÍBISHÓLL
- Svavar Örn Hreiðarsson og Hnoppa frá Árbakka 5,23 / UPPSTEYPA (leynigestur)
- Guðmar Freyr Magnússon og Brimar frá Varmadal 5,24 / ÍBISHÓLL
14-15. Bergrún Ingólfsdóttir og Viðar frá Hvammi 5,25 / ÞÚFUR
14-15. Guðmar Þór Pétursson og Hrafnkatla frá Ólafsbergi 5,25 / LEIKNIR
- Elvar Einarsson og Segull frá Halldórsstöðum 5,39 / STORM RIDER
- Þorsteinn Björn Einarsson og Fossbrekka frá Brekkum III 5,49 / HOFSTORFAN – 66°N
- – 19. Sigrún Rós Helgadóttir og Spyrna frá Þingeyrum 5,59 / HOFSTORFAN – 66°N
18.- 19. Líney María Hjálmarsdóttir og Brattur frá Tóftum 5,59 / HRÍMNIR
- Elvar Logi Friðriksson og Surtsey frá Fornusöndum 5,61 / UPPSTEYPA
- Valdís Björk Guðmundsdóttir og Gnýr frá Brekku 5,78 / EQUINICS
- Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Frekja frá Dýrfinnustöðum 5,80 / HOFSTORFAN – 66°N
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Ómur frá Litla Laxholti 5,90 / EQUINICS
- Gísli Gíslason og Kalsi frá Þúfum 5,96 / ÞÚFUR