Skráningar fara vel af stað á Miðsumarssýningar
Hraundís frá Selfossi á Landsmótinu í fyrra, sýnandi Viðar Ingólfsson Mynd: Nicki Pfau
Fjórar sýningar eru í boði, þrjár vikur á Hellu og ein á Akureyri. Nú þegar er orðið fullt aðra vikuna á Hellu eða dagana 21 – 25. júlí og einungis 20 pláss laus í fyrstu vikunni.
Nóg er laust í þriðju vikunni á Hellu en þegar þetta er skrifað eru 31 hross skráð en hámarksfjöldi er 120. Þrjú hross eru skráð á Akureyri dagana 21. til 25. júlí.
Lokaskráningardagur er föstudagurinn 4. júlí en frekari upplýsingar um skráningu hrossa á kynbótasýningar er að finna á vef RML.
Skráningar fara vel af stað á Miðsumarssýningar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“