Lið Byko fór heim með liðsverðlaunin

Í gærkvöldi fór fram lokakvöld Suðurlandsdeildarinnar í hestaíþróttum. Líkt og annað síðustu mánuði þá hafði COVID töluverð áhrif á deildina sem varð til þess að henni lauk utandyra 23. júní í stað innanhúss þann 17. mars s.l.
Deildin hefur verið virkilega skemmtileg og jöfn í vetur líkt og síðustu tímabil.
Það var lið Byko sem stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa leitt liðakeppnina frá fyrstu keppni sem er glæsilegur árangur og óskum við þeim innilega til hamingju!
Fast á hæla Byko kom svo lið Húsasmiðjunnar sem lenti í öðru sæti og á eftir þeim lið Krappa.
Heildarniðurstaða liðakeppninnar!
Sæti Lið Stig
1 Byko 300,5
2 Húsasmiðjan 277
3 Krappi 250,5
4 Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær 232
5 Heimahagi 219
6 Tøltrider 216,5
7 Fet / Kvistir 213,5
8 Heklu hnakkar 211,5
9 Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð 209,5
10 Equsana 208
11 Fákasel 110
12 Ásmúli 90
Það eru lið Fákasels og Ásmúla sem því miður detta út eftir þetta tímabil.
Önnur úrslit kvöldsins voru þau að lið Vöðla/Snilldarverks/Sumarliðabæja hlaut stigaplattann í skeiði og lið Húsasmiðjunnar hlaut stigaplattann fyrir töltið.
Í tölti áhugamanna sigraði Elín Magnea Björnsdóttir úr liði Heklu hnakka á hrysunni Melódíu frá Hjarðarholti með einkunnina 7,22 og í tölti atvinnumanna sigraði Sigurður Sigurðarson úr liði Krappa á hryssunni Rauðu-List frá Þjóðólfshaga með einkunnina 7,72.
Í skeiði áhugamanna sigraði Eva Dögg Pálsdóttir úr liði Ásmúla á hestinum Jarli frá Kílhrauni, Eva Dögg og Jarl fóru á tímanum 7,81 sek. Í skeiði atvinnumanna sigraði Guðmundur Björgvinsson úr liði Vöðla/Snilldarverks/Sumarliðabæjar á hryssunni Stolt frá Laugavöllum á tímanum 7,67 sek.
Úrslit í tölti atvinnumanna
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Sigurður Sigurðarson Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 Krappi 7,72
2 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Hending frá Eyjarhólum Equsana 7,56
3 Elin Holst Glampi frá Ketilsstöðum Byko 7,50
4 Guðmundur Björgvinsson Sölvi frá Auðsholtshjáleigu Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 7,22
5 Hinrik Bragason Rauðhetta frá Efri-Rauðalæk Heimahagi 7,17
6 Sigursteinn Sumarliðason Gifta frá Dalbæ Húsasmiðjan 7,11 7 Hanna Rún Ingibergsdóttir Dropi frá Kirkjubæ Töltrider 7,00 8 Davíð Jónsson Saga frá Blönduósi Húsasmiðjan 6,83
Úrslit í tölti áhugamanna
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Elín Magnea Björnsdóttir Melódía frá Hjarðarholti Heklu hnakkar 7,22
2 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Húsasmiðjan 7,17
3-5 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Equsana 6,61
3-5 Sævar Örn Sigurvinsson Huld frá Arabæ Byko 6,61
3-5 Renate Hannemann Spes frá Herríðarhóli Fet/Kvistir 6,61 6 Edda Hrund Hinriksdóttir Laufey frá Ólafsvöllum Heimahagi 6,50
7 Heiðar Þormarsson Heilun frá Holtabrún Töltrider 6,39
Úrslit í skeiði atvinnumanna
Sæti Knapi Hross Lið Tími
1 Guðmundur Björgvinsson Stolt frá Laugavöllum Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 7,67
2 Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson Seyður frá Gýgjarhóli Fet/Kvistir 7,75
3 Stella Sólveig Pálmarsdóttir Fáfnir frá Efri-Rauðalæk Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 7,78
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Rangá frá Torfunesi Heimahagi 8,02
5 Hanna Rún Ingibergsdóttir Birta frá Suður-Nýjabæ Töltrider 8,24
6 Hlynur Guðmundsson Klaustri frá Hraunbæ Equsana 8,25
Úrslit í skeiði áhugamanna
Sæti Knapi Hross Lið Tími
1 Eva Dögg Pálsdóttir Jarl frá Kílhrauni Ásmúli
7,81
2 Árni Sigfús Birgisson Árdís frá Stóru-Heiði Byko 8,00
3 Þorgils Kári Sigurðsson Gjóska frá Kolsholti 3 Krappi 8,16
4 Trausti Óskarsson Skúta frá Skák Töltrider 8,36
5 Theódóra Þorvaldsdóttir Þórvör frá Lækjarbotnum Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 8,56
6 Katrín Sigurðardóttir Glóra frá Skógskoti Húsasmiðjan 8,60
Við viljum þakka öllum þeim sem komu að Suðurlandsdeildinni 2020 með einum eða öðrum hætti þetta tímabil kærlega fyrir alla aðstoð!
Við hlökkum til næsta tímabils!
Takk fyrir okkur,
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar 2020