Aðalfundur GDLH

Aðalfundur GDLH verður haldinn þriðjudaginn 8.desember 2026 n.k. í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal, kl: 19:30.

Lagabreytingartillaga frá stjórn GDLH liggur fyrir fundinum sem snýr að 8 gr. laga GDLH.

8. gr laga GDLH er eftirfarandi:

Aðalfund skal halda árlega í október- nóvember. Hann skal auglýsa í víðlesnum fjölmiðli með minnst 14 daga fyrirvara.
Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Allar tillögur um lagabreytingar skulu kynntar með aðalfundarboði. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir fullgildir gæðingadómarar sem eru skuldlausir við félagið. Stjórn félagsins er heimilt að bjóða öðrum aðilum að sitja aðalfund G.D.L.H. með málfrelsi og tillögurétti. Reikningstímabil er milli aðalfunda.

Verkefni aðalfundar eru:
Fundur settur
Kjör fundarstjóra og ritara
Fundargerð síðasta aðalfundar
Skýrsla stjórnar og reikningar
Skýrslur nefnda
Lagabreytingar
Ákvörðun félagsgjalda
Kosning stjórnar og nefnda
Önnur mál
Fundi slitið

Tillaga að breytingu 8.gr laga GDLH er eftirfarandi:Aðalfund skal boða með minnst 14 daga fyrirvara með tilkynningu til félagmanna á skráð netföng þeirra eða með öðrum sannanlegum rafrænum hætti. Aðalfundarboð skal jafnframt birt á heimasíðu félagsins (GDLH) og opinberum samfélagsmiðlum þess. Í aðalfundarboði skal greina fundarstað, fundartíma og dagskrá fundarins.
Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Allar tillögur um lagabreytingar skulu kynntar með aðalfundarboði. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir fullgildir gæðingadómarar sem eru skuldlausir við félagið. Stjórn félagsins er heimilt að bjóða öðrum aðilum að sitja aðalfund G.D.L.H. með málfrelsi og tillögurétti. Reikningstímabil er milli aðalfunda.

Rökstuðningur fyrir breytingartillögu þessari er sá að tillagan er lögð fram með hliðsjón af breyttum venjum í leit að upplýsingum og því að heimasíða félagsins og samfélagsmiðlar eru nú helstu samskiptaleiðir þess við félagsmenn og aðra áhugasama. Auglýsing aðalfundar í víðlesnum fjölmiðli felur í sér aukinn kostnað fyrir félagið án þess að tryggt sé að slík birting nái betur til félagsmanna. Rafræn birting á opinberum miðlum félagsins er hagkvæmari, skilvirkari og gerir félaginu kleift að miðla fundarboði, dagskrá og fylgigögnum á einum aðgengilegum stað. Með breytingartillögunni er jafnframt leitast við að einfalda boðun aðalfundar, draga úr kostnaði og laga verklag félagsins að nútímalegum samskiptaháttum.

Kveðja,
Stjórn GDLH

Nýir eigendur á Feti í Rangárvallasýslu

Þau Anton Páll Níelsson, Ólafur Andri Guðmundsson og Bylgja Gauksdóttir eru nú orðnir eigendur og staðarhaldarar á hinu sögufræga hrossaræktarbúi Feti í Rangárvallasýslu. Samningar um kaup náðust í lok sumars eftir langan aðdraganda sem hófst þegar staðurinn fór á sölu.

Ólafur Andri á Skák frá Feti og Bylgja Gauksdóttir á Rögn frá Feti. LM2026. Ljósmynd: KollaGr

Öll þrjú þekkja þau vel til á Feti og hafa átt í fjölbreyttu samstarfi í gegnum árin. Nú tekur við nýr kafli þar sem þau munu í sameiningu byggja upp fjölbreytta starfsemi á staðnum.

„Það er ekki hægt að hætta þessu, eða mjög erfitt“

Anton Páll og þau Ólafur Andri og Bylgja eiga langt samstarf að baki. Anton fékk Ólaf Andra upprunalega til starfa á Feti á sínum tíma, og í gegnum árin hafa þau átt í farsælu samstarfi og sameiginlegum verkefnum í hrossarækt. Þegar staðurinn Fet bauðst til sölu fóru þau að skoða möguleikana í sameiningu, ekki síst af fjárhagslegum ástæðum.

Vilmundur frá Feti hlaut heiðursverðlaun á LM 2014. Hér eru þeir fremst á myndinni Anton Páll og Ólafur Andri

„Fyrir tveimur árum var ég eiginlega búinn að skoða að hætta þessu brölti og seldi ræktunarhryssurnar sem ég átti.“ Segir Anton Páll. „En mín ákvörðun um að halda áfram og fara í fjárfestingar byggist á því að það er ekki hægt að hætta að rækta hross, eða mjög erfitt. Ræktunaráhuginn er mikill þó að ég hafi fyrst og fremst lifibrauð af því að ferðast um heiminn og kenna. Hér á Feti þekkti maður hverja þúfu og vissi hvernig hlutirnir virkuðu. Þegar búið selst svo ekki strax gerum við í sameiningu tilboð í þetta sem að er svo samþykkt og nú er það svo að ég á helminginn á móti þeim tveimur.“

Að sögn Antons Páls felst næsta verkefni í því að móta reksturinn til framtíðar og skapa aðstöðu til að halda hross og rækta. Reiðhöllin á staðnum bjóði upp á frábæra aðstöðu til kennslu, bæði fyrir einstaklinga og á fjölbreyttum námskeiðum. Markmiðið sé að byggja upp eins konar miðstöð þjálfunar og fræðslu á sem fagmannlegastan hátt, allt frá pörun til fullmótaðs reiðhests.

Anton Páll starfaði áður á Feti og segir það afar spennandi að stíga inn í eigendahópinn á stað sem beri nafn með svo sterkan sess í hrossaræktinni. Hann bendir á að Brynjar Vilmundarson hafi rekið búið í yfir tuttugu ár áður en Karl Wernersson tók við og hafi haft það í um tuttugu ár, þannig að nafnið hafi skapað sér mikla hefð. Þau muni þó ekki byggja eingöngu á eldri ræktun á staðnum nema að litlu leyti, heldur taki inn í ræktunarhópinn sína ræktunargripi.. „Ég er búinn að rækta hross lengi með allskyns árangri, stundum góðum og stundum minni.“

Anton Páll hefur átt langan feril í hestamennsku. Á myndinni er hann í hlutverki Hesta-Bjarna á Landsmóti árið 2016. Ljósmynd: Eiðfaxi

Um verkaskiptinguna og samstarfið á milli þeirra þriggja segir Anton Páll að tíminn verði að leiða í ljós hvernig hlutirnir þróast og hvernig best tekst að skapa góðan rekstrargrundvöll. Framtíðin sé í mótun og líklegast verði vinnulagið eins og víðast annars staðar í greininni, þar sem haft sé „öll járn í eldinum“

Hér að neðan má sjá myndbandviðtal við Ólaf Andra Guðmundsson og Bylgju Gauksdóttur þar sem þau ræða aðdragandann að kaupunum, tengslin við Fet, breytta áherslu í rekstri og framtíðina.

 

Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV

Skrifað hefur verið undir nýjan tveggja ára samning þess efnis að EiðfaxiTV muni áfram sýna beint frá öllum mótum í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum á komandi keppnistímabili. Magnús Benediktsson, hjá Eiðfaxa, tók Viktor Sigurbjörnsson, stjórnarmann í Suðurlandsdeildinni, tali af þessu tilefni.

Að sögn Viktors er undirbúningur fyrir veturinn á fullu og nú þegar hafa 11 lið skráð sig til leiks og búið er að auglýsa eftir fleirum. „Fólk fer bara stolt og með kassann fram inn í næsta tímabil,“ segir Viktor og bætir við að mikill áhugi sé meðal bæði liðseigenda og keppenda fyrir komandi tímabili..

Ómetanlegt fyrir keppendur og áhorfendur

Viktor telur beinar útsendingar EiðfaxaTV gífurlega verðmætar fyrir deildina. „Þetta er bæði mikilvægt fyrir þá sem hafa áhuga á deildinni en komast ekki á staðinn, og ekki má gleyma framtíðinni, að eiga allt þetta myndefni aðgengilegt á einum stað. Þá nýta keppendur sér upptökurnar líka heilmikið til að rýna í eigin frammistöðu.“

Parafimin í sérflokki

Keppt verður áfram í Rangárhöllinni í hefðbundnum greinum, en Suðurlandsdeildin sker sig úr að því leyti að hún er eina deildin á landinu sem býður upp á parafimi. Viktor segir að breytingar sem gerðar voru á greininni fyrir um þremur árum hafi heppnast afar vel; þá var keppendum í hverju liði fækkað úr þremur í tvo og slaktaumatölti bætt inn á móti. „Við það varð greinin styttri, skarpari og mun meiri skemmtun fyrir bæði áhorfendur og keppendur,“ segir Viktor að lokum.

Þeir einstaklingar sem hafa áhuga á að vera með í deildinni í vetur en eru ekki þegar komnir í lið eru hvattir til að senda tölvupóst á netfangið [email protected], þar sem möguleiki er á að komast að í deildinni þótt menn séu ekki komnir í lið.

Mótadagskrá Suðurlandsdeildarinnar á komandi tímabili:

23. febrúar Parafimi og slaktaumatölt (T4)
9. mars Fjórgangur (V2)
23. mars Fimmgangur (F2)
6. apríl Tölt (T3) og skeið í gegnum höllina

Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV

Fyrsti þátturinn í þáttaröðinni Heim í hlað er kominn til sýninga á EiðfaxaTV.

Umsjónarmaður þáttanna er Gísli Guðjónsson, í fyrstu þáttaröðinni heimsækir hann fimm hrossabú á Norðurlandi og eitt á Suðurlandi.

Viðmælandi í fyrsta þætti er Lea Christina Busch sem býr og starfar að Neðri-Ási II í Hjaltadal í Skagafirði. Lea er fædd og uppalinn í Þýskalandi þar sem hún komst í kynni við íslenska hesta í reiðskóla í heimabæ sínum. Áhuginn og ástríðan fyrir hestinum varð til þess að hún gerði hestamennsku að lifibrauði sínu, fluttist til Íslands og nú hefur hún byggt upp glæsilega aðstöðu með rúmgóðu, björtu og fallegu hesthúsi og reiðhöll.

Ekki missa af þessum þætti þar sem við fáum að kynnast Leu betur á sama tíma og við virðum fyrir okkur aðstöðuna að Neðra-Ási.

Stiklu úr fyrsta þætti má horfa á hér að neðan.

Klara Nydahl stóri sigurvegarinn á uppskeruhátíð SIF

Sænska íslandshesta sambandið (SIF) hélt sína árlegu uppskeruhátíð (Islandshästgalan) um helgina í tengslum við haustfund sambandsins. Þar voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á keppnisvellinum og kynbótabrautinni á árinu 2026, auk þess sem eldhugi og reiðkennari ársins fengu sérstaka viðurkenningu. Greint var frá verðlaunahöfum á hestamiðlinum Ridsport.

Óhætt er að segja að stóri sigurvegari kvöldsins sé Klara Nydahl, sem sópaði að sér verðlaunum. Hún hlaut alls þrenn einstaklingsverðlaun – sem knapi ársins, gæðingaknapi ársins í ungmennaflokki og ungi kynbótaknapi ársins – auk þess sem keppnishestur hennar, Dagur frá Ketilsstöðum (undan Aðli frá Nýjabæ og Djörfungu frá Ketilsstöðum), var valinn gæðingur ársins. Þá átti Guðmundur Einarsson einnig frábært kvöld og fór heim með tvenn verðlaun, sem íþróttaknapi ársins og sendiherra ársins.

Íþrótta- og gæðingaknapar ársins

Guðmundur Einarsson var valinn íþróttaknapi ársins í fullorðinsflokki eftir glæsilegt keppnisár, þar á meðal á Norðurlandamótinu. Tekla Petersson var valin íþróttaknapi ársins í ungmennaflokki og Vera Elgholm í unglingaflokki.

Í gæðingakeppni var Nicolina Marklund valin gæðingaknapi ársins í fullorðinsflokki, Klara Nydahl í ungmennaflokki (GDY) og Michelle Edvall Karlsson í unglingaflokki (GDT). Þá var Kjarval från Knutshyttan valinn sænskræktaði íþróttahestur ársins.

Ræktunarverðlaun

Á kynbótavængnum var Máni Hilmarsson útnefndur kynbótaknapi ársins eftir gott ár á sýningarbrautinni og Klara Nydahl hlaut verðlaun sem ungi kynbótaknapi ársins. Ræktunarbúið Agersta var svo valið ræktunarbú ársins 2026.

Sendiherra ársins og félagsstörf

Auk verðlaunanna sem íþróttaknapi ársins hlaut Guðmundur Einarsson sæmdarheitið sendiherra ársins 2026 (Årets ambassadör). Í umsögn dómnefndar segir að sannur sendiherra sé ekki aðeins sá sem keppir á stærstu mótunum, heldur einnig sá sem kemur heim, brettir upp ermarnar og vinnur fyrir sitt félag og framgang hestamennskunnar. Er þar sérstaklega nefnt að gullverðlaunin frá Norðurlandamótinu hafi varla verið kominn upp á hillu áður en hann var mættur á fjórhjólið sem vallarstjóri á félagsmóti Gneista til að tryggja að vellirnir væru í toppstandi fyrir félagsmenn.

Þá hlutu eftirtaldir aðilar viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf í þágu greinarinnar í Svíþjóð:

  • Félag ársins: Hestamannafélagið Fálki, fyrir fjölbreytt stört þar sem gleðin er við völd, allt frá prjónaklúbbum og strandmyndatökum til keppna, auk góðs samstarfs við önnur félög á borð við Feng.
  • Reiðkennari/þjálfari ársins: Anna Andersson, reiðskólastjóri sem síðan 2022 hefur byggt upp öruggt og opið reiðskólastarf með velferð hestsins og sjálfbæra þjálfun að leiðarljósi.
  • Sjálfboðaliði ársins (Årets eldsjäl): Ulla Lönn, fyrir ómetanlegt starf bak við tjöldin hjá félaginu Kulltorp Katla Ryttarförening, sem vaxið hefur í yfir 200 félagsmenn síðan 2022 og leggur mikla áherslu á starf fyrir fatlaða.
Yfirlit yfir verðlaunahafa á uppskeruhátíð SIF:
  • Knapi ársins: Klara Nydahl
  • Íþróttaknapi ársins: Guðmundur Einarsson
  • Íþróttaknapi ársins (ungmenni): Tekla Petersson
  • Íþróttaknapi ársins (unglingar): Vera Elgholm
  • Gæðingaknapi ársins: Nicolina Marklund
  • Gæðingaknapi ársins (GDY): Klara Nydahl
  • Gæðingaknapi ársins (GDT): Michelle Edvall Karlsson
  • Gæðingur ársins: Dagur frá Ketilsstöðum
  • Sænskræktaði íþróttahestur ársins: Kjarval från Knutshyttan
  • Kynbótaknapi ársins: Máni Hilmarsson
  • Ungi kynbótaknapi ársins: Klara Nydahl
  • Ræktunarbú ársins: Agersta
  • Reiðkennari ársins: Anna Andersson
  • Sendiherra ársins: Guðmundur Einarsson
  • Sjálfboðaliði ársins: Ulla Lönn
  • Félag ársins: Fálki Islandshästförening

 

 

Ræktunarbú og knapar ársins 2026 útnefnd í Danmörku

Danska íslenska hestasambandið (DI) veitti á dögunum sín árlegu verðlaun fyrir árið 2026 í tengslum við aðalfund sambandsins. Þar heiðruðu bæði ræktunarnefnd og íþróttanefnd þá knapa, ræktendur, sýnendur og hross sem skarað hafa fram úr á árinu, bæði á kynbótabrautinni og keppnisvellinum.

Jóhann Rúnar Skúlason og ræktunarbú hans, Stutteri Slippen, sópuðu að sér verðlaunum á ræktunarvængnum og var það valið ræktunarbú ársins, auk þess sem hross frá búinu hlutu titlana stóðhestur og hryssa ársins. Þá var Hlynur Pálsson valinn kynbótaknapi ársins. Í útnefndum knöpum ársins á keppnisvængnum voru það félagsmenn DI sem kusu á milli tilnefndra knapa og hlutu Ditte Sommer, Alberte Smith og Amanda Frandsen verðlaunin í ár.

Jóhann Rúnar Skúlason

Verðlaun ræktunarnefndar

Ræktunarnefndin veitti verðlaun í fimm flokkum fyrir framúrskarandi árangur í ræktun og kynbótasýningum á árinu.

Kynbótaknapi ársins 2026: Hlynur Pálsson
Þessi verðlaun hlýtur sá sýnandi sem nær hæsta meðaltali fimm efstu hrossa sinna á kynbótasýningum ársins, að teknu tilliti til aldurs hrossanna, auk þess sem horft er til þess að viðkomandi sé góð fyrirmynd.

Hlynur Pálsson hlaut titilinn eftir glæsilegt ár á sýningarbrautinni bæði í Danmörku og erlendis. Hrossin fimm sem lögðu grunninn að sigri hans eru öll frá ræktunarbúinu Lindholm Høje:

Mjölnir fra Lindholm Høje (8,50)
Ofélia fra Lindholm Høje (8,37)
Teitur fra Lindholm Høje (8,06)
Meistari fra Lindholm Høje (7,95)
Þokki fra Lindholm Høje (7,81)

Meðaltal þessara fimm hrossa, leiðrétt fyrir aldri, reyndist 8,38.

Hlynur Pálsson

Stóðhestur ársins: Evert fra Slippen
Verðlaunin hlýtur danskræktaður stóðhestur sem hefur vakið sérstaka athygli í ræktun eða keppni.
Evert fra Slippen, sem er ræktaður af og í eigu Jóhanns Rúnars Skúlasonar, hlaut titilinn í ár. Evert, sem er undan Hnokka frá Fellskoti og Líf fra Slippen, er dæmdur með 8,60 í aðaleinkunn sem klárhestur (9,02 án skeiðs). Á árinu hlaut hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi með 15 dæmd afkvæmi og 125 stig í BLUP. Auk þess átti hann frábært keppnisár, keppti fyrir hönd danska landsliðsins, varð samanlagður Norðurlandameistari í fjórgangi og situr í einu af þremur efstu sætunum á heimslistanum í bæði T1 og V1.

Hryssa ársins: Líf fra Slippen
Verðlaunin hlýtur danskræktuð hryssa sem skarað hefur fram úr á árinu, annaðhvort sjálf eða í gegnum afkvæmi sín.
Líf fra Slippen (undan Garra frá Reykjavík og Andrá frá Skarði) er hryssa ársins 2026. Hún náði á árinu þeim merka áfanga að uppfylla skilyrði fyrir heiðursverðlaun FEIF fyrir afkvæmi, sem er æðsta alþjóðlega viðurkenning sem hryssa getur hlotið fyrir ræktunarárangur (lágmark 5 dæmd afkvæmi og 116 í BLUP). Meðal afkvæma hennar eru stóðhestur ársins, Evert fra Slippen, og Lögg fra Slippen, sem bæði unnu til verðlauna fyrir Danmörku á Norðurlandamótinu í ár.

Nýliði ársins á kynbótabrautinni: Rebecca Hesselbjerg Taulborg
Verðlaunin eru veitt knapa sem hefur sýnt færri en tíu hross í fullnaðardóm á ferlinum og sýnir eitt eða fleiri hross í Danmörku á árinu.
Rebecca Hesselbjerg Taulborg þreytti frumraun sína á kynbótabrautinni í ár og sýndi fjögur hross í fullnaðardóm með glæsilegum árangri:

Drakúla frá Akurgerði (7,97)
Tindra fra Kirstineholm (7,94)
Tóra fra Almindingen (7,89)
Depill fra Rødstenskær (7,81)

Meðaleinkunn hennar fyrir þessi fjögur hross var 7,90.

Ræktunarbú ársins: Stutteri Slippen
Verðlaunin eru veitt ræktanda sem hefur náð framúrskarandi árangri á kynbótasýningum og keppnisvellinum á árinu.

Stutteri Slippen (Jóhann Rúnar Skúlason) stóð uppi sem ræktunarbú ársins eftir einstakt ár. Það þykir einsdæmi að sami ræktandi fái á sama árinu bæði stóðhest og hryssu úr eigin ræktun með 1. verðlaun og heiðursverðlaun FEIF fyrir afkvæmi (Evert og Líf fra Slippen), auk þess sem Líf hlaut úrvalsviðurkenningu DI fyrir afkvæmi.
Auk þess átti búið hæst dæmdu fjögurra vetra hryssu ársins, Karen fra Slippen, og hæst dæmda sjö vetra stóðhestinn, Klassa fra Slippen – en bæði eru þau undan Köru fra Slippen, sem einnig er úr ræktun búsins. Á keppnisvellinum sköruðu hross frá Slippen einnig fram úr, þar sem Evert og Lögg fra Slippen fóru fremst í flokki á Norðurlandamótinu.

Knapar ársins 2026

Í aðdraganda aðalfundar gátu félagsmenn kosið á milli þriggja tilnefndra knapa í hverjum flokki, sem sérstök dómnefnd valdi út frá innsendum tilnefningum frá félagsmönnum og hestamannafélögum. Velferð hestsins og góðar fyrirmyndir vógu þungt í öllum flokkum.

Íþróttaknapi ársins (fullorðinsflokkur): Ditte Sommer Ditte Sommer var kjörin íþróttaknapi ársins í fullorðinsflokki. Í umsögnum um hana kemur fram að hún mæti jafnt mönnum sem hestum ætíð með hlýju og brosi, og að reiðmennska hennar einkennist af þolinmæði, mikilli virðingu og einlægum áhuga. Ditte þykir markviss, þrautseig og metnaðarfull en setur velferð hesta sinna alltaf í fyrsta sæti. Hún mætir bæði meðbyr og mótlæti af auðmýkt og vilja til að læra, og er sögð mikil fyrirmynd fyrir aðra knapa.

Gæðingaknapi ársins (fullorðinsflokkur): Alberte Smith
Alberte Smith hlaut titilinn gæðingaknapi ársins í fullorðinsflokki. Hún hlaut tilnefningu fyrir mikla hæfni, gott samstarf við hestana og djúpan skilning á þeim. Sérstaklega var tekið fram að Alberte ríði af mikilli tilfinningu fyrir þroska og þjálfunarstigi hvers hests, gefi þeim þann tíma sem þeir þurfa til að ná upp á hæsta stig og hafi velferð hestsins að leiðarljósi í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur.

Efnilegasti knapi ársins: Amanda Frandsen
Amanda Frandsen var valin efnilegasti knapi ársins í sterkri samkeppni við þær Gabrielle Steenfeldt-Johansen og Andrea Schmidt-Laursen. Amanda fær mikið lof fyrir að hafa þjálfað keppnishest sinn sjálf og náð frábærum árangri á alþjóðlegum mótum undanfarin ár. Þessum árangri hefur hún náð samhliða því að hlífa hestinum við ofálagi , meðal annars með því að hafa keppnistímabilið stutt og draga sig úr úrslitum ef of stuttur tími líður á milli keppnisgreina.

Alberte Smith og Amanda Fransen

 

Garðshorn á Þelamörk keppnishestabú ársins

Keppnishestabú ársins 2026 er Garðshorn á Þelamörk en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Garðshorn á Þelamörk hefur um árabil ræktað hross í fremstu röð. Frá búinu kemur einn afkastameski skeiðhestur samtímans, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk. Kastor sigraði 250 metra skeið á Landsmóti hestamanna auk þess sem hann var í 4 sæti í A flokki gæðinga á sama móti. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er fasmikill og mjúkur klárhestur sem endaði annar í B flokki á Landsmóti hestamanna.“

Eiðfaxi óskar ræktendunum Agnari Þór Magnússyni og Birnu Tryggvadóttur innilega til hamingju með árangur ársins!

Önnur bú tilnefnd:
  • Garðshorn á Þelamörk
  • Íbishóll
  • Strandarhjáleiga
  • Strandarhöfuð
  • Þúfur

Jakob Svavar knapi ársins

Knapi ársins 2026 er Jakob Svavar Sigurðsson en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Jakob Svavar átti stórkostlegt ár á keppnisbrautinni. Jakob Svavar sigraði B flokk á Landsmóti hestamanna á Kór frá Skálakoti með einkunnina 9,19. Þeir tilltu sér á toppinn eftir sérstaka forkeppni, sýndu mikið öryggi og voru á toppnum allt til enda. Jakob var jafnframt í 2.sæti í tölti á Landsmóti hestamanna á Skarpi frá Kýrholti og í 5 sæti í A flokki á Goða frá Bjarnarhöfn. Jakob Svavar er líka þrefaldur íslandsmeistari. Hann sigraði tölt á Skarpi frá Kýrholti með 9,61 í einkunn en þeir sigruðu einni fjórgang með 8,20 í einkunn. Jakob sigraði slaktaumatölt á Hrefnu frá Fákshólum með 8,88 í einkunn.“

Eiðfaxi óskar Jakobi Svavari innilega til hamingju með árangur ársins.

Aðrir tilnefndir í þessum flokki eru þeir knapar sem tilnefndir voru í fullorðinsflokki

 

Ásmundur er íþróttaknapi ársins

Íþróttaknapi ársins 2026 er Ásmundur Ernir Snorrason en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíó. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Ásmundur varð Landsmótssigurvegari í tölti á Hlökk frá Strandarhöfði þegar þau fóru í hæstu tölur sem gefnar hafa verið í tölti, 9,27 í forkeppni og 9,78 í úrslitum. Ásmundur er jafnframt samanlaðgður Íslandsmeistari í fjórgangsgreinum á Hlökk. Ásmundur og Hlökk eru efst á FEIF world ranking í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum. Ásmundur var í þriðja sæti í fimmgangi á Íslandsmóti á Aski frá Holtsmúla auk þess sem þeir sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti.“

Eiðfaxi óskar Ásmundi Erni innilega til hamingju með árangur ársins!

Aðrir tilnefndir voru:
  • Arnhildur Helgadóttir
  • Árni Björn Pálsson
  • Gústaf Ásgeir Hinriksson
  • Jakob Svavar Sigurðsson

 

Hans Þór er gæðingaknapi ársins

Gæðingaknapi ársins 2026 er Hans Þór Hilmarsson en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíó. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Hans Þór sigraði A flokk á Landsmóti hestamanna á eftirminnilegan hátt á Sindra frá Hjarðartúni með einkunina 9,13. Sýning þeirra einkenndist af fagmennsku og krafti og voru skeiðsprettir sýningarinnar sérstaklega eftirminnilegir.“

 

Eiðfaxi óskar Hans Þór innilega til hamingju með árangur ársins!

Aðrir tilnefndir voru:
  • Ásmundur Ernir Snorrason
  • Glódís Rún Sigurðardóttir
  • Jakob Svavar Sigurðsson
  • Jóhanna Margrét Snorradóttir