Nýir eigendur á Feti í Rangárvallasýslu

  • 25. nóvember 2026
  • Fréttir

Bylgja Gauksdóttir, Ólafur Andri Guðmundsson og Anton Páll Níelsson

Markmiðið að hafa "öll járn í eldinum"

Þau Anton Páll Níelsson, Ólafur Andri Guðmundsson og Bylgja Gauksdóttir eru nú orðnir eigendur og staðarhaldarar á hinu sögufræga hrossaræktarbúi Feti í Rangárvallasýslu. Samningar um kaup náðust í lok sumars eftir langan aðdraganda sem hófst þegar staðurinn fór á sölu.

Ólafur Andri á Skák frá Feti og Bylgja Gauksdóttir á Rögn frá Feti. LM2026. Ljósmynd: KollaGr

Öll þrjú þekkja þau vel til á Feti og hafa átt í fjölbreyttu samstarfi í gegnum árin. Nú tekur við nýr kafli þar sem þau munu í sameiningu byggja upp fjölbreytta starfsemi á staðnum.

„Það er ekki hægt að hætta þessu, eða mjög erfitt“

Anton Páll og þau Ólafur Andri og Bylgja eiga langt samstarf að baki. Anton fékk Ólaf Andra upprunalega til starfa á Feti á sínum tíma, og í gegnum árin hafa þau átt í farsælu samstarfi og sameiginlegum verkefnum í hrossarækt. Þegar staðurinn Fet bauðst til sölu fóru þau að skoða möguleikana í sameiningu, ekki síst af fjárhagslegum ástæðum.

Vilmundur frá Feti hlaut heiðursverðlaun á LM 2014. Hér eru þeir fremst á myndinni Anton Páll og Ólafur Andri

„Fyrir tveimur árum var ég eiginlega búinn að skoða að hætta þessu brölti og seldi ræktunarhryssurnar sem ég átti.“ Segir Anton Páll. „En mín ákvörðun um að halda áfram og fara í fjárfestingar byggist á því að það er ekki hægt að hætta að rækta hross, eða mjög erfitt. Ræktunaráhuginn er mikill þó að ég hafi fyrst og fremst lifibrauð af því að ferðast um heiminn og kenna. Hér á Feti þekkti maður hverja þúfu og vissi hvernig hlutirnir virkuðu. Þegar búið selst svo ekki strax gerum við í sameiningu tilboð í þetta sem að er svo samþykkt og nú er það svo að ég á helminginn á móti þeim tveimur.“

Að sögn Antons Páls felst næsta verkefni í því að móta reksturinn til framtíðar og skapa aðstöðu til að halda hross og rækta. Reiðhöllin á staðnum bjóði upp á frábæra aðstöðu til kennslu, bæði fyrir einstaklinga og á fjölbreyttum námskeiðum. Markmiðið sé að byggja upp eins konar miðstöð þjálfunar og fræðslu á sem fagmannlegastan hátt, allt frá pörun til fullmótaðs reiðhests.

Anton Páll starfaði áður á Feti og segir það afar spennandi að stíga inn í eigendahópinn á stað sem beri nafn með svo sterkan sess í hrossaræktinni. Hann bendir á að Brynjar Vilmundarson hafi rekið búið í yfir tuttugu ár áður en Karl Wernersson tók við og hafi haft það í um tuttugu ár, þannig að nafnið hafi skapað sér mikla hefð. Þau muni þó ekki byggja eingöngu á eldri ræktun á staðnum nema að litlu leyti, heldur taki inn í ræktunarhópinn sína ræktunargripi.. „Ég er búinn að rækta hross lengi með allskyns árangri, stundum góðum og stundum minni.“

Anton Páll hefur átt langan feril í hestamennsku. Á myndinni er hann í hlutverki Hesta-Bjarna á Landsmóti árið 2016. Ljósmynd: Eiðfaxi

Um verkaskiptinguna og samstarfið á milli þeirra þriggja segir Anton Páll að tíminn verði að leiða í ljós hvernig hlutirnir þróast og hvernig best tekst að skapa góðan rekstrargrundvöll. Framtíðin sé í mótun og líklegast verði vinnulagið eins og víðast annars staðar í greininni, þar sem haft sé „öll járn í eldinum“

Hér að neðan má sjá myndbandviðtal við Ólaf Andra Guðmundsson og Bylgju Gauksdóttur þar sem þau ræða aðdragandann að kaupunum, tengslin við Fet, breytta áherslu í rekstri og framtíðina.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link