Hans Þór er gæðingaknapi ársins
Hans Þór Hilmarsson er gæðingaknapi ársins 2026. Aðrir tilnefndir voru Jóhanna Margrét Snorradóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Ásmundur Ernir Snorrason og Jakob Svavar Sigurðsson
Gæðingaknapi ársins 2026 er Hans Þór Hilmarsson en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíó. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Hans Þór sigraði A flokk á Landsmóti hestamanna á eftirminnilegan hátt á Sindra frá Hjarðartúni með einkunina 9,13. Sýning þeirra einkenndist af fagmennsku og krafti og voru skeiðsprettir sýningarinnar sérstaklega eftirminnilegir.“
Eiðfaxi óskar Hans Þór innilega til hamingju með árangur ársins!
Aðrir tilnefndir voru:
- Ásmundur Ernir Snorrason
- Glódís Rún Sigurðardóttir
- Jakob Svavar Sigurðsson
- Jóhanna Margrét Snorradóttir
Margareterhof er selt