„Við horfum til baka með stolti og þakklæti“

Alls voru þær 228 talsins, sex vetra gömlu hryssurnar, sem sýndar voru í fullnaðardómi á Íslandi í ár. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi var 8,13 og hlutu 161 þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1.verðlaun.

Hæst dæmda hryssa ársins í þessum aldursflokki er Hugsýn frá Ketilsstöðum, sem hlaut í aðaleinkunn 8,99 á vorsýningu á Sörlastöðum en stóð jafnframt efst í sínum aldurflokki á Landsmóti í sumar með 8,91 í aðaleinkunn. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,63 og þar af hæst 9,5 fyrir bak og lend. Fyrir hæfileika hlaut hún 9,18 með 10,0 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið.

Hún afrekaði það ekki eingöngu að vera hæst dæmda hryssa ársins því hún er jafnframt hæst dæmda 6.vetra hryssa frá upphafi dóma.

Eigandi og sýnandi Hugsýnar er Elín Holst en ræktendur eru Olil Amble og Bergur Jónsson. Eiðfaxi hafði samband við Olil sem veitti lesendum innsýn í söguna að baki þessari einstöku hryssu.

Frá verðlaunaafhendingu á Landsmóti í sumar. Stoltir ræktendur og eigendur á sigurstundu.

Gæðingar í röðum í báða leggi

Faðir Hugsýnar er Sleipnisbikarhafinn Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og móðir er Hugrökk frá Ketilsstöðum. Aðspurð um tilurð pörunarinnar segir Olil valið hafa legið nokkuð beint við:

„Valið var auðvelt, þar sem Álfaklettur er í miklu uppáhaldi hjá Elínu og hún vill helst halda undir hann þegar því verður við komið. Annað sem studdi vel við valið var sköpulag og stærð Álfakletts, þar sem Hugrökk og Djörfung, móðir Hugrakkrar, voru fremur smáar og sköpulag þeirra síðra, undir 8,00.“

Þá spilaði ætternið einnig lykilrullu. „Gæðingamæðurnar okkar, Álfadís frá Selfossi og Hugmynd frá Ketilsstöðum, koma tvívegis hvor fyrir í ætt Hugsýnar. Elín velti skyldleikanum aðeins fyrir sér, en þessi útfærsla af skyldleikaræktun hefur reynst okkur mjög vel og fékk því fullan stuðning. Fyrir utan það standa alhliðagæðingar og hross með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í röðum að baki Hugsýnar.“

Hugsýn sem folald ásamt móður sinni, Hugrökk frá Ketilsstöðum

Nafngiftin reyndist svo sannarlega við hæfi enda hlaut Hugsýn, eins og áður segir, 10,0 fyrir samstarfsvilja sem lýst er í dómsorðum;  Mikl framhugsun og þjálni, yfirveguð og samstarfsfús. „Okkur fannst nafnið Hugrökk frumlegt og vel við hæfi dóttur Djörfungar. Okkur þótti Hugsýn eiga skilið sterkt nafn í svipuðum anda og móðir sín, enda hlaut hún 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið aðeins fjögurra vetra gömul með aðaleinkunnina 8,18. Hugsýn hljómar auðvitað svipað, til viðbótar við hvað okkur fannst það fallegt nafn.“

Elín og Hugsýn á flugaskeiði á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Mikið hestefni

Aðspurð hvernig Hugsýn hafi litið út í uppeldinu segir Olil hana ekki endilega hafa hrópað á athygli strax í fyrstu. „Hugsýn var í uppeldinu jafnvaxin og myndarleg, en ekkert sérstaklega áberandi. Hún var bara jákvæð, forvitin og kurteis. Þegar við fórum svo að skoða hana nánar tveggja vetra sáum við að þar væri líklega dálítið mikið hestefni á ferðinni.“

Hugsýn tamdist svo fljótt og vel líkt og gæðinga er siður. „Hugsýn hélt sínu alla tíð, tamdist fljótt og vel eins og bestu tryppin gera. Það var svo sem ekki mikil tamning; það var meira verið að fara yfir málin, leggja línurnar og hjálpa henni að skilja hvað hún ætti að gera. Hún bætti svo bara alltaf í: meiri styrkur, meiri geta.“

Hugsýn kom fram í kynbótadómi fyrir tveimur árum þá fjögurra vetra gömul og vakti þá strax athygli og hlaut þriðja sætið í þeim aldursflokki á Landsmóti 2024 með 8,31 í aðaleinkunn. Olil var viss um að hún gæti gert stóra hluti í ár. „Ég sagði við Elínu í vor að Hugsýn gæti farið yfir 9,0 fyrir hæfileika. Það er svo sem auðvelt að segja, en ótrúlega erfitt að ná. Það var þó nokkuð augljóst að ef allt gengi eftir myndi það takast.“

Krúnan á verkið á Landsmóti

Olil og Bergur eru ekki óvön því að rækta stórgæðingana í fremstu röð, en hvernig var að fylgjast með framgangi Hugsýnar og Elínar á Landsmóti í sumar? „Við horfum auðvitað til baka með stolti og þakklæti. Það var mjög þægilegt að fylgjast með þessu öllu, enda voru Elín og Hugsýn báðar svo yfirvegaðar og öruggar að það þurfti enga heppni – bara venjulegan dag til að allt gengi upp. Maður veit þó aldrei hvernig þetta fer. Það mikilvægasta er auðvitað að vera sáttur við sitt hross. Það var sannarlega gaman og frábært að fá krúnuna á verkið með efsta sæti á Landsmóti.“

Hugsýn lét ekki aðeins að sér kveða á kynbótabrautinni í sumar. Þær Elín mættu til leiks í tölti T1 á Suðurlandsmótinu í ágúst með glæsibrag, þar sem þær leiddu forkeppnina með einkunnina 8,37. „Ákveðið var að halda henni ekki í ár þar sem Elínu langar að njóta þess aðeins lengur að hafa hana undir hnakk. Árangur þeirra á Suðurlandsmótinu í tölti var glæsilegur með svo háa einkunn í forkeppni. Elín hafði þó ákveðið fyrirfram að fara ekki með hana í úrslit vegna aldurs, kæmust þær þangað, en þær stóðu einmitt efstar eftir forkeppni.“

 

10 hæst dæmdu 6.vetra hryssurnar í ár

1. Hugsýn frá Ketilsstöðum – 8,99
2. Brynja frá Nýjabæ – 8,94
3. Alda frá Sumarliðabæ 2 – 8,81
4. Melrós frá Hemlu II – 8,77
5. Ragna frá Sumarliðabæ 2 – 8,64
6. Birta frá Ólafsbergi – 8,64
7. Nótt frá Tjaldhólum – 8,63
8. Sólmyrkva frá Álfhólum – 8,62
9. Lotning frá Dýrfinnustöðum – 8,61
10. Kylja frá Margrétarhofi  – 8,60

Reiðskólar lykill að nýliðun

Á undanförnum árum hefur orðið vart við áhugaverða þróun í íslenskri hestamennsku. Reiðskólar víða um land bjóða nú í auknum mæli upp á námskeið utan hefðbundins sumartíma og skapa þannig tækifæri fyrir börn og unglinga til að stunda hestamennsku allt árið um kring. Þróunin gefur til kynna að sífellt fleiri vilji nálgast hestamennsku á sama hátt og aðrar íþróttagreinar þar sem reglulegar æfingar og samfelld þjálfun eru hluti af starfinu.

Einn þeirra reiðskóla sem hefur markvisst byggt upp slíka starfsemi er Reiðskólinn Hestalíf sem rekinn er af systrunum Erlu Guðnýju og Þórdísi Önnu Gylfadætrum. Þar hafa námskeið fyrir börn og unglinga verið starfrækt frá árinu 2018 og hefur starfsemin þróast úr hefðbundnum sumarnámskeiðum yfir í heilsársstarf með haust-, jóla- og páskanámskeiðum.

Að sögn þeirra hefur eftirspurnin verið mikil frá upphafi og flest námskeið fyllst fljótt. Sérstaklega hafi áhugi aukist hjá þeim sem vilja halda áfram eftir að sumrinu lýkur.

„Það er alltaf hluti af nemendum sumarskólans sem vill halda áfram að koma á bak og við höfum verið að mæta þeirri eftirspurn með útreiðahópum á haustin og stuttum námskeiðum um jól og páska,“ segja þær.

Hestamennska sem heilsársíþrótt

Í flestum íþróttagreinum þykir sjálfsagt að börn sæki æfingar vikulega allt árið um kring. Hestamennska hefur hins vegar oft verið háð aðgengi að hestum og aðstöðu. Nú virðist þó sem sífellt fleiri ungir knapar vilji stunda íþróttina með sambærilegum hætti og jafnaldrar þeirra í öðrum íþróttum.

„Þetta eru nemendur sem vilja æfa hesta rétt eins og að fara á fótboltaæfingu nokkrum sinnum í viku.“

Fyrsta skref margra inn í hestamennsku

Það sem gerir starf reiðskólanna sérstaklega mikilvægt er að stór hluti þátttakenda á ekki eigin hest og hefur oft engin tengsl við hestamennsku í gegnum fjölskyldu eða vini. Um leið sækir nokkuð stór hópur barna og unglinga námskeiðin þótt þau eigi sjálf hest eða hafi bakland í greininni. Oft er ástæðan sú að þau hafa ekki aðgang að hesti við sitt hæfi á hverjum tíma eða að eigin hestar eru í fríi.

„Stærsti hluti nemendanna á ekki hest eða bakland í hestamennsku.“

„Reiðskólarnir eru gríðarlega mikilvægir og jafnvel mikilvægastir hvað varðar nýliðun og aðgengi inn í hestamennskuna.“

Meira en bara reiðkennsla

Þótt megináherslan sé á reiðmennsku ná áhrif námskeiðanna langt út fyrir það að læra að stjórna hesti. Á námskeiðunum læra börn að bera ábyrgð, umgangast dýr af virðingu og sinna verkefnum sem fylgja hestahaldi.

„Þetta er mikil útivera og samvera með hestum og jafnöldrum og það er öllum hollt.“

Frá námskeiði í eigin hest

Að sögn Erlu og Þórdísar eru fjölmörg dæmi um að nemendur haldi áfram þátttöku í hestamennsku eftir að námskeiðum lýkur. Sumir taka þátt í barna- og unglingastarfi hestamannafélaga og eignast síðar eigin hest.

„Nokkrir hafa keypt sér hest með okkar aðstoð og sá þáttur hefur verið að færast í aukana.“

Keppnishestarnir fengu nýtt hlutverk

Upphaf Hestalífs má að hluta rekja til hestanna sjálfra. Erla og Þórdís áttu nokkra reynda og vel tamda hesta sem höfðu staðið sig vel á keppnisbrautinni, í námi með nemendum við Háskólann á Hólum eða öðrum krefjandi verkefnum.

Í stað þess að fara í langt frí fengu þeir nýtt og mikilvægt verkefni, þeir urðu kennarar.

Meðal reiðskólahestanna hafa í gegnum tíðina verið Landsmótssigurvegarar, Íslandsmeistarar, Reykjavíkurmeistarar, hestar sem farið hafa í gegnum reiðkennaranám á Hólum, 1. verðlauna hryssur og fjölmargir aðrir reynslumiklir gæðingar. Hestar sem áður stóðu í fremstu röð á keppnis- og sýningarvellinum sinna nú því hlutverki að leiða nýja kynslóð knapa inn í hestamennskuna.

„Fyrst og fremst af því að það er gaman,“ svara þær þegar þær eru spurðar hvers vegna þær haldi áfram að byggja upp starf fyrir börn og unglinga.

Þær segja það sérstaklega gefandi að fylgjast með börnum koma ár eftir ár, þroskast sem knapar og finna sinn stað í hestamennskunni. Sum þeirra eignast síðar eigin hest, taka þátt í félagsstarfi eða jafnvel starfa sjálf við reiðskólann. Þannig verði þau smám saman hluti af þeirri hestafjölskyldu sem myndast í kringum starfsemina.

Kannski felst einmitt þar mikilvægi reiðskólanna. Reyndir hestar með langa sögu að baki hjálpa nýrri kynslóð að stíga sín fyrstu skref. Fyrir mörg börn er fyrsta ferðin á hesti í reiðskóla upphafið að ævilöngu sambandi við hestinn og hestamennskuna. Þar liggur framtíð greinarinnar.

Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands

Screenshot

Kristján Árni til starfa í Hólshúsum

Kristján Árni Birgisson hefur hafið störf í Hólshúsum þar sem hann mun sinna tamningum og þjálfun hrossa. Kristján er nýútskrifaður frá Háskólanum á Hólum og segir starfið marka nýjan kafla á sínum ferli.

Hafði sjálfur samband

Leiðir Kristjáns og Hólshúsa lágu saman eftir að hann frétti af lausu starfi í Hólshúsum og ákvað að kanna málið nánar. Hann hafði samband við Val, eiganda Hólshúsa, og í framhaldinu hófust viðræður sem leiddu til þess að hann gekk til liðs við búið.

„Ég hafði heyrt af því að það væri laust starf í Hólshúsum og ákvað að hafa samband og láta vita að ég hefði áhuga. Í framhaldinu fórum við að ræða málin og þetta þróaðist þaðan,“ segir Kristján.

Það sem heillaði hann mest við starfsemina í Hólshúsum var heildarmyndin.

„Aðstaðan er frábær, hér eru mjög góð hross og svo auðvitað frábært fólk með mikinn metnað og vilja til að ná langt.“

Námið nýtist vel


Kristján lauk nýverið námi frá Háskólanum á Hólum og segir það hafa veitt sér traustan grunn í tamningum, þjálfun og kennslu.

Að hans sögn lærði hann meðal annars að lesa betur í hrossin, aðlaga þjálfunina að hverju og einu hrossi og leggja ríka áherslu á vandaða grunnvinnu.

„Námið á Hólum hefur nýst mér mjög vel og gaf mér góðan grunn, bæði í tamningum, þjálfun og kennslu.“

Traust og þolinmæði í fyrirrúmi


Aðspurður um sína nálgun í tamningum segir Kristján mikilvægt að gefa hverju hrossi þann tíma sem það þarf og vinna út frá styrkleikum þess.

„Mér finnst mjög mikilvægt að gefa hverju hrossi sinn tíma og reyna að finna hvað hentar því best. Ég legg alltaf mikla áherslu á grunninn og vinn markvisst út frá honum frekar en að flýta hlutunum.“

Hann segir tengingu, gagnkvæma virðingu og jákvæða upplifun skipta miklu máli þegar ung hross koma fyrst í tamningu.

„Ef maður nær að byggja upp traust frá byrjun verður framhaldið yfirleitt miklu auðveldara.“

Efnilegur hestakostur


Þótt Kristján sé nýbyrjaður í Hólshúsum hefur hann þegar fengið fyrstu kynni af hestakostinum og segir þau hafa verið afar jákvæð.

Um þessar mundir eru efnileg tryppi í frumtamningu og eldri hross munu koma inn í þjálfun á næstu vikum. Meðal þeirra hrossa sem vekja hvað mesta eftirvæntingu hjá honum eru tvær hryssur undan Grósku frá Garðshorni, þar af önnur sem fór í kynbótadóm á Landsmóti í sumar.

Þá nefnir hann einnig tvo fjögurra vetra stóðhesta undan mæðgunum Frigg frá Hólshúsum og Finndísi Fjólu frá Meiri-Tungu, auk fleiri hrossa sem nú eru að koma inn í þjálfun.

„Það verður mjög gaman að sjá hvernig þau þróast á næstu misserum.“

Nýr kafli á ferlinum


Kristján lítur á starfið í Hólshúsum sem mikilvægt skref í sinni starfsþróun og tækifæri til að halda áfram að vaxa sem knapi og tamningamaður.

„Þetta er klárlega nýr kafli fyrir mig. Ég hef lagt mikinn metnað í að þróast sem knapi undanfarin ár og finnst þetta starf gefa mér mjög gott tækifæri til að halda því áfram.“

Hann segist jafnframt fullur tilhlökkunar fyrir því sem framundan er.

„Það er heiður að fá þetta tækifæri. Aðstaðan er til fyrirmyndar og mikill metnaður hjá öllum hér. Ég er því fullur tilhlökkunar fyrir framhaldinu.“

Það verður áhugavert að fylgjast með Kristjáni Árna í nýju hlutverki í Hólshúsum á komandi misserum.

Kristján Árni og Vísir frá Ytri Hól. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Kristján Árni og Vísir frá Ytri Hól. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

 

Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga

65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH).

Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október.

Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar.

Kjörnefnd skipa:

Atli Már Ingólfsson, formaður ([email protected])
Jón Geir Sigurbjörnsson ([email protected])
Hafrún Hlín Magnúsdóttir ([email protected])

Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Allir sem voru áður í stjórn gefa kost á sér aftur fyrir utan Ólaf Þórisson og Sveinn Heiðar Jóhannesson.

Til formanns:
Linda Björk Gunnlaugsdóttir

Til aðalstjórnar:
Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn
Ólafur Gunnarsson
Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn
Sigurbjörn Eiríksson
Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn
Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir

Til varastjórnar
Hilmar Guðmannsson
Reynir Atli Jónsson

Uppskeruhátíð ungra Sleipnisfélaga

Laugardaginn 3. október sl. hélt æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Sleipnis uppskeruhátíð yngri flokka félagsins í félagsheimilinu Hliðskjálf á Selfossi. Hátíðin var afar vel heppnuð og glæsileg, en þar gafst kærkomið tækifæri til að fagna öflugu starfi og góðum árangri ungra hestamanna á liðnu keppnis- og starfsári segir í frétt á Facebooksíðu Sleipnis.

Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar í polla-, barna- og unglingaflokki, auk þess sem nemendur sem luku Knapamerki 1 og 2 fengu sérstaka viðurkenningu fyrir áfangann. Fjórum efstu knöpum í stigakeppni barna- og unglingaflokks voru veitt verðlaun, ásamt því að stigahæstu knapar ársins 2026 voru krýndir.

Stigahæstu knapar ársins
  • Barnaflokkur: Sigrún Freyja Einarsdóttir varð stigahæsti knapi ársins í barnaflokki. Hún tók miklum framförum á árinu og keppti ötullega með góðum árangri á hesti sínum, Silfurtoppi frá Kópavogi.
  • Unglingaflokkur: Loftur Breki Hauksson varð stigahæstur í unglingaflokki. Loftur Breki átti glæsilegt tímabil að baki þar sem hæst bar Íslandsmeistaratitill í tölti T1 í unglingaflokki, auk þess sem hann nældi í silfurverðlaun í unglingaflokki á Landsmóti hestamanna.

Betubikarinn, sem gefinn er af Elísabetu Sveinsdóttur, er veittur því ungmenni félagsins sem þykir hafa skarað fram úr og verið áberandi í félagsstarfinu óháð keppnisárangri.
Að þessu sinni hlaut Kamilla Nótt Jónsdóttir bikarinn. Hún hefur verið ötull og jákvæður þátttakandi í starfi félagsins, duglegur og hjálpsamur sjálfboðaliði sem ávallt leggur sitt af mörkum, og góð fyrirmynd fyrir aðra unga hestamenn í Sleipni.

Elísabet Sveinsdóttir og Kamilla Nótt

Sóley tekur við formennsku í Geysi

Breyting hefur orðið á formennsku hestamannafélagsins Geysis en Eiríkur Vilhelm Sigurðarson hefur látið af formennsku í félaginu. Sóley Margeirsdóttir, varaformaður Geysis, tekur við formennsku fram að næsta aðalfundi félagsins, sem fyrirhugaður er í mars eða apríl næstkomandi. Þar verður kosið um formann félagsins að nýju.

Eiríkur tók við starfi sveitarstjóra Rangárþings ytra í sumar og í kjölfar þess óskaði hann eftir því í haust við stjórn Geysis að stíga til hliðar sem formaður.

Við þessi tímamót vill Eiríkur færa öllum þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd á plóg í starfi Geysis síðustu þrjú ár kærar þakkir. „Félagið byggir á öflugu sjálfboðaliðastarfi félagsmanna og hefur verið einstaklega ánægjulegt að sjá starfsemina halda áfram að vaxa og dafna,“ segir Eiríkur.

Æskulýðsstarf félagsins er í miklum blóma, öflugt móta- og félagsstarf hefur verið í gangi og Geysisfélagar stunda hestamennsku af miklum krafti, hvort sem er á keppnisvellinum, í ræktun og þjálfun eða einfaldlega sér til ánægju.

„Það hefur verið bæði lærdómsríkt og skemmtilegt að fá að leiða félagið þessi ár. Geysir á gríðarlega sterkan hóp félagsmanna og sjálfboðaliða sem eru alltaf tilbúnir að leggja sitt af mörkum þegar á þarf að halda. Það er sá kraftur sem gerir félagið að því sem það er. Ég stíg því sáttur til hliðar úr formennskunni, en verð að sjálfsögðu ekkert langt undan þegar Geysir kallar,“ segir Eiríkur.

Sóley þekkir starf félagsins vel og tekur nú við keflinu. Eiríkur óskar henni og stjórninni velfarnaðar í áframhaldandi starfi og hlakkar sjálfur til að vera áfram virkur þátttakandi í starfi Geysis.

Stjórn Geysis eftir breytinguna

Formaður: Sóley Margeirsdóttir
Stjórn: Caro Böse, Hulda Dóra Eysteinsdóttir, Guðmundur Björgvinsson og Edda Thorlacius Sigurðardóttir
Varamaður: Lea Birna Lárusdóttir

Opið fyrir umsóknir í Meistaradeild Líflands og æskunnar

Þátttöku aldur er 14 – 17 ára á keppnisárinu og miðast deildin við unglingaflokk (fædd 2010- 2013). Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri af löglegum mótum ársins 2026. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið að inngöngu lokinni.

Hvert lið er skipað fjórum knöpum og þurfa þrír knapar að keppa í hverri keppnisgrein, þó fjórða knapa sé frjálst að keppa. Þrír efstu knapar telja til stiga fyrir sitt lið. Það að keppa í öllum greinum reynir mjög á hestakost, er krefjandi, en jafnframt frábær reynsla og hvetjum við knapa til að taka þátt í sem flestum greinum.

Keppt verður í: Fjórgangi V1 – Fimmgangi F1, Gæðingalist- Tölti T1, slaktaumatölti T2 -gæðingaskeiði PP1 og 100 m skeiði.

Umsóknareyðublað má finna HÉR og skal umsækjandi hlaða því niður og vista í sinni tölvu, fylla það út og senda inn. Umsóknarfrestur er til og með 15 október og skal senda umsóknina á netfangið: [email protected].
Allar frekari upplýsingar má finna á mdeild.is

Heiðursverðlaunahryssur á Íslandi 2026

Alþjóðlega kynbótamatið fyrir íslenska hestinn var reiknað í september að loknum kynbótasýningum og birt í WorldFeng. Því er orðið ljóst að sextán hryssur á Íslandi hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár en til að hljóta verðlaunin þarf hryssan að eiga að lágmarki fimm dæmd afkvæmi og vera með 116 stig í aðaleinkunn, eða aðaleinkunn án skeiðs í kynbótamatinu. Nokkrar af hryssunum eru jafnar að stigum og eru það því aukastafir í aðaleinkunn sem raða þeim í sæti.

Efsta hryssan í ár er Spá frá Eystra-Fróðholti með 129 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og á nú fimm dæmd afkvæmi. Spá hlýtur því Glettubikarinn í ár sem er farandgripur veittur efstu heiðursverðlaunahryssu ársins. Hún er brún að lit undan Sæ og Glettu frá Bakkakoti og er því af þessu stórmerkilega kyni þeirra Ársæls Jónssonar og Önnu Fíu Finnsdóttur sem hefur skilað óvenjulegum gæðingum í gegnum tíðina. Spá var sjálf gæðingur og afar eftirminnileg á Landsmóti 2011 fyrir mýkt og fjaðurmagn. Hún stóð svo efst í sex vetra flokki hryssna á Landsmóti 2012 með 9,03 fyrir hæfileika og 8,64 í aðaleinkunn. Spá á nú fimm dæmd afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Sparta frá Eystra-Fróðholti undan Rauðskegg frá Kjarnholtum I og stóð hún efst á Landsmóti nú í sumar í elsta flokki hryssna; einn mesti gæðingur sögunnar með 9,35 fyrir hæfileika. Þá var sýndur í sumar fjögurra vetra foli undan Spá, Herskár að nafni undan Óskasteini frá Íbishóli. Herskár er náttúrubarn á gangi og hlaut 8,69 fyrir hæfileika sem var hæsta hæfileikaeinkunn sem fjögurra vetra foli hlaut á árinu. Öll afkvæmi Spáar hafa hlotið fyrstu verðlaun.

Í öðru sæti er Flauta frá Einhamri með 127 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og fimm dæmd afkvæmi. Flauta er grá að lit undan Stála frá Kjarri og Gustu frá Litla-Kambi, Gustsdóttur frá Hóli. Ræktendur Flautu eru Hjörleifur Jónsson og Sif Ólafsdóttir og eigandi er Svarthöfði-Hrossarækt ehf. Flauta var gæðingur á gangi með 8,80 fyrir hæfileika og er óspar á þá í framræktun. Þrjár dætur hennar voru sýndar á Landsmóti í sumar; þær Nóta undan Spuna frá Vesturkoti og Ragna frá Sumarliðabæ 2 undan Rauðskegg frá Kjarnholtum I og eru þær skrefmiklir og magnaðir gæðingar. Þá er Tónlist frá Sumarliðabæ 2 dóttir hennar undan Þráni frá Flagbjarnarholti og er það afar efnileg fjögurra vetra hryssa. Öll afkvæmi Flautu eru með fyrstu verðlaun og ljóst að hérna er á ferðinni úrvals ræktunarhryssa. 

Í þriðja sæti er Katla frá Feti með 124 stig. Hún er brún að lit undan Kiljani frá Steinnesi og Grétu frá Feti en sú er undan Þristi frá Feti og Gerðu frá Gerðum, Baldursdóttur. Ræktandi er Hrossaræktarbúið Fet ehf og eigendur eru Kvíarhóll ehf og Helgi Eggertsson. Katla er framfalleg og fjölhæf alhliða hryssa með 8,39 í aðaleinkunn og var sýnd á Landsmóti 2016 á Hólum. Tvær dætur Kötlu voru á Landsmóti í sumar. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Skák frá Feti undan Þráni frá Flagbjarnarholti. Það er vel gerð hryssa; fótahá með sterka yfirlínu og þá ber hún sig vel í reið með 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 9,0 fyrir skeið. Þá var dóttir Kötlu Þórkatla frá Feti einnig á Landsmóti í sumar fjögurra vetra gömul. Hún er undan Þór frá Stóra-Hofi, falleg og fínleg hryssa og flugefnileg á gangi. Öll afkvæmi Kötlu hafa hlotið fyrstu verðlaun. 

Fjórða í röð er Gleði frá Hemlu II. Hún er jörp að lit undan Mjölni frá Hlemmiskeiði 3 og Hafrúnu frá Hemlu en sú var undan Óði frá Brún og Andvaradótturinni Gná frá Hemlu. Ræktendur eru Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og Þorbergur Vignisson og eigendur eru Vignir og Lovísa. Gleði er fínleg, framfalleg og léttbyggð hryssa með mikið skref og rúmar gangtegundir. Hún hefur reynst afar vel til ræktunar. Dóttir hennar Sigurrós frá Hemlu undan Forki frá Breiðabólsstað er með 8,59 í aðaleinkunn, fallegur gæðingur. Þá var sýndur undan henni flugefnilegur hestur í sumar sem heitir Glaumur frá Hemlu, undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum. Það er afar fríður, fínlegur og vel gerður hestur sem verður gaman að fylgjast með til framtíðar. Öll afkvæmi Gleði eru með fyrstu verðlaun og er hún með 121 stig í kynbótamatinu.

Fimmta er Stefna frá Torfunesi með 121 stig í kynbótamatinu. Hún er brún að lit undan Vita frá Kagaðarhóli og Bylgju frá Torfunesi, Baldursdóttur. Ræktandi og eigandi hennar er Torfunes ehf. Stefna var með afar hátt settan háls og aðgreinda bóga og bjó yfir mýkt og fjaðurmagni á gangi. Hún var sýnd fjögurra vetra gömul og stóð efst á Landsmóti á Hólum árið 2016. Hún á nú fimm dæmd afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Kempa frá Torfunesi, undan Sólon frá Þúfum, með 8,47 í aðaleinkunn. Þá voru tvær dætur hennar á Landsmóti í sumar, þær Klöpp og Kyrrð. Klöpp er alhliða gæðingur undan Hannibal frá Þúfum og þá er Kyrrð frá Torfunesi undan Drangi frá Steinnesi fjögurra vetra; afar vel gerð og efnileg á gangi og á eftir að láta meira að sér kveða síðar. Öll afkvæmi Stefnu eru með fyrstu verðlaun.

Í sjötta sæti er Dögun frá Hjarðartúni með 121 stig. Hún er móbrún að lit undan Aroni frá Strandarhöfði og heiðursverðlaunahryssunni Dögg frá Breiðholti í Garðabæ. Ræktandi Dögunar eru Óskar Eyjólfsson og eigendur eru Einhyrningur ehf, Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir. Dögun er mýktar alhliða hryssa, fínleg reist og fótahá og hefur reynst afar vel til ræktunar. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Sindri frá Hjarðartúni, undan Stála frá Kjarri. Hann stóð efstur í elsta flokki stóðhesta á Landsmóti árið 2022 og vann A-flokk gæðinga á Landsmóti í sumar; úrvals alhliða gæðingur. Þá er Svala frá Hjarðartúni, undan Hrók frá sama bæ, fyrstu verðlauna hryssa; þurrbyggð og léttstíg alhliða hryssa. Svaði sonur hennar og Hrings frá Gunnarsstöðum er fyrstu verðlauna klárhestur með 9,5 fyrir brokk meðal annars. Það er því ljóst að Dögun hefur verið að skila eigendum sínum frábærum afkvæmum.

Sjöunda í röð er Sara frá Stóra-Vatnsskarði með 119 stig. Hún er rauð að lit undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og hinni mögnuðu Lukku frá Stóra-Vatnsskarði. Ræktendur eru Benedikt G. Benediktsson og Hans Þór Hilmarsson og eigendur eru Hans Þór og Einhyrningur ehf. Sara var sjálf stórgóð hryssa; afar fríð og framfalleg, með 9,5 fyrir höfuð og háls, herðar og bóga. Þá var hún hreyfingamikil og hafði til að bera mikla útgeislun með 9,5 í einkunn fyrir tölt og fegurð í reið. Hún á nú fimm dæmd afkvæmi. Hennar hæst dæmda afkvæmi er Dögg frá Hjarðartúni, undan Kveik frá Stangarlæk 1. Það er afar fríð og falleg hryssa, léttstíg, flink og flugrúm á tölti. Þá er Safír frá Hjarðartúni, undan Skýr frá Skálakoti, mikill mýktartöltari, léttviljugur og skemmtilegur hestur með 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir samstarfsvilja og fegurð í reið. 

Áttunda er Gleði frá Kaldbak með 118 stig í kynbótamatinu. Hún er brún að lit, undan Blæ frá Torfunesi og Bendingu frá Kaldbak sem var undan Jöfri frá Syðra-Langholti. Ræktandi og eigandi er Sigmundur Jóhannesson. Gleði var sjálf rúm og flugvökur hryssa með 9,0 fyrir tölt og skeið og hefur nú gefið fimm fyrstu verðlauna hross. Þeirra hæst dæmd er Sunna frá Syðra-Langholti, undan Pensli frá Hvolsvelli; jafnvíg alhliða hryssa með 8,34 í aðaleinkunn. Þá er Gleði öflug að skila frábæru skeiði en tvær dætur hennar, þær Sæld undan Ópal frá Miðási og Kátína undan Geisla frá Sælukoti eru með 9,5 fyrir skeið og Kilja undan Kiljan frá Steinnesi og Sæmd undan Trymbli frá Stóra-Ási með 9,0 fyrir skeið. 

Í níunda sæti er Ömmustelpa frá Ásmundarstöðum 3 með 117 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Hún er sótrauð, tvístjörnótt að lit, undan Arði frá Brautarholti og Gullhettu frá Ásmundarstöðum en sú er undan Kyndli frá Kirkjubæ og Siggu-Brúnku frá Ásmundarstöðum. Ræktendur eru Jón Ágúst Jóhannsson og Sigríður Sveinsdóttir og eigandi er Nanna Jónsdóttir. Ömmustelpa var sjálf öflug alhliða hryssa, afar fríð og framfalleg með klipna kverk eins og svo mörg hross útaf Höfða-Gusti. Hennar hæst dæmda afkvæmi er Ögri frá Ásmundarstöðum 3, fimm vetra gamall undan Sóloni frá Þúfum; fallegur hestur og efni í alhliða gæðing. Þá er Özur, undan Sjóði frá Kirkjubæ, afar myndarlegur og magnaður mýktartöltari en hann hlaut 9,5 fyrir tölt. Þá hefur sonur hennar Lazarus frá Ásmundarstöðum
3 verið í fremstu röð fimmgangara á Íslandi undanfarið og varð Íslandsmeistari í þeirri grein í sumar.

Í tíunda sæti er Ríma frá Auðsholtshjáleigu með 116 stig og fimm dæmd afkvæmi. Hún er brún að lit undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og Limru frá Laugarvatni. Ræktendur eru Gunnar Arnason og Kristbjörg Eyvindsdóttir og eigandi er Gunnar Arnarson ehf. Ríma er stórmyndarleg og reist alhliða hryssa og hlaut sjálf 8,49 í aðaleinkunn. Hennar hæst dæmda afkvæmi er Rödd frá Auðsholtshjáleigu, undan Hrannari frá Flugumýri II með 8,44 í aðaleinkunn, eðlishágeng og mjúk alhliða hryssa. Þá er Hamar frá Auðsholtshjáleigu, undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum afar fallegur, reistur og efnilegur stóðhestur og var á meðal hæst dæmdu fjögurra vetra stóðhesta sumarsins.

Í ellefta sæti er Þruma frá Árdal með 116 stig og fimm dæmd afkvæmi. Hún er brún að lit undan Aðli frá Nýjabæ og Eldingu frá Árdal en sú var undan Svarti frá Unalæk. Ræktandi og eigandi Þrumu er Pétur Jónsson á Hvanneyri. Þruma var sjálf mýktar alhliða hryssa með reistan, hátt settan háls og hlaut 8,38 í aðaleinkunn. Hæst dæmda afkvæmi hennar er hinn stórmerkilegi Tinni frá Árdal, undan Kveik frá Stangarlæk 1. Hann var hæst dæmdi fimm vetra stóðhestur ársins, glæsilegur alhliða gæðingur og varð fyrsta hrossið í sögunni til að hljóta einkunnina 10 fyrir háls, herðar og bóga. Þá er Tindur frá Árdal, undan Ljósvaka frá Valstrýtu, fótahár og fallegur alhliða hestur. Öll afkvæmi Þrumu hafa hlotið fyrstu verðlaun og þrjú þeirra 8,50 eða hærra fyrir hæfileika.

Í tólfta sæti er Elding frá Oddsstöðum I í Lundareykjadal með 116 stig og fimm dæmd afkvæmi. Elding er rauð að lit undan Kvisti frá Skagaströnd og Brák frá Oddsstöðum I en sú var undan Kanslara frá Efri-Rauðalæk og útaf Gáska frá Hofsstöðum í móðurætt. Ræktandi Eldingar er Sigurður Oddur Ragnarsson. Elding var sjálf virkjamikil klárhryssa með 8,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir bæði brokk og stökk. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Hrafn frá Oddsstöðum I, undan Vita frá Kagaðarhóli. Það er vel gerður og stórfallegur hestur með 8,98 fyrir sköpulag og hlaut 9,5 fyrir flesta þætti hæfileikanna; fjaðurmagnaður og framhár. Þá er Sigð frá Oddsstöðum næm og léttstíg klárhryssa undan Konsert frá Hofi en hún hlaut 9,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir brokk. 

Þrettánda í röð er Maístjarna frá Lundi með 114 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 120 stig í aðaleinkunn án skeiðs, og fimm dæmd afkvæmi. Hún er rauðstjörnótt glófext að lit undan Gusti frá Hóli og Halastjörnu frá Lundi en sú var undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Eldingu frá Lundi sem var aftur undan Bjarti frá Egilsstaðabæ. Ræktandi er Sigurhans Þ. Jónsson. Maístjarna var mögnuð klárhryssa sjálf, með sterka yfirlínu og hlaut 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið meðal annars. Hæst dæmda afkvæmi hennar er fjögurra vetra foli sem kom fram í sumar, Andvari frá Lundi, undan Vökli frá Efri-Brú. Andvari hlaut 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Þá er sonur hennar Kveikur frá Lundi, klárhestur með flotta framgöngu undan Blundi frá Þúfum en hann hlaut meðal annars 9,0 fyrir fegurð í reið í dómi.

Í fjórtánda sæti er Grund frá Grund II með 114 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 117 stig í aðaleinkunn án skeiðs, og fimm dæmd afkvæmi. Ræktandi er Gunnar Egilsson og eigandi er Örn Stefánsson. Grund er undan Andvara frá Ey I og Glímu frá Vindheimum en sú var undan Mekki frá Varmalæk. Grund var sjálf myndarleg, sterkbyggð og skrefmikil klárhryssa. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Glíma frá Grund II, undan Glúmi frá Dallandi. Það er hágeng og virkjamikil afrekshryssa á gangi og stóð efst í fimm vetra flokki hryssna á Landsmótinu í sumar. Gyðja frá Grund II, undan Ísak frá Þjórsárbakka, er stórfalleg alhliða hryssa með 8,60 í aðaleinkunn. Þá er Perla frá Grund II undan Draupni frá Stuðlum fótahá og framfalleg úrvals klárhryssa með 9,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir hægt stökk; framhá og fjaðrandi í framgöngu. 

Í fimmtánda sæti er Gola frá Þjórsárbakka með 114 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 122 stig í aðaleinkunn án skeiðs, og fimm dæmd afkvæmi. Hún er rauðtvístjörnótt að lit undan Andvara frá Ey og Eldingu frá Hóli sem var heiðursverðlaunahryssa undan Hrynjanda frá Hrepphólum. Ræktandi og eigandi er Þjórsárbakki ehf. Gola var sjálf eðlishágeng og aðsópsmikil klárhryssa með 9,0 fyrir flesta þætti hæfileikanna og 9,5 fyrir hægt tölt. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Auðlind frá Þjórsárbakka, undan Loka frá Selfossi en það er úrvals gæðingur með háan kynbótadóm og einnig góðan árangur í keppni. Eldey frá Þjórsárbakka undan Álfi frá Selfossi og Sigurrós frá Þjórsárbakka undan Framherja frá Flagbjarnarholti eru frábærar klárhryssur og ljóst að Gola hefur skilað sínum góðu kostum áfram til afkvæma sinna. 

Þá er hryssan sem er sextánda í röð Planta frá Skrúð með 111 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 116 stig í aðaleinkunn án skeiðs og á sex dæmd afkvæmi. Planta er brún að lit undan Blæ frá Torfunesi og Sunnu frá Skrúð. Ræktandi er Sigfús K. Jónsson og eigandi er Susanne Braun. Planta er stólpamyndarleg hryssa með 9,0 fyrir bæði háls, herðar og bóga og samræmi og var skrefmikil, hreingeng, mjúk og rúm klárhryssa. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Blóma frá Dvergasteinum, undan Styrk frá Leysingjastöðum II. Hún var sýnd fimm vetra gömul; stór og falleg hryssa eins og móðirin og hlaut 8,5 fyrir flesta þætti hæfileikanna. Álfarós frá Dvergasteinum, undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum var einnig sýnd fimm vetra gömul með 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja, einnig falleg og vel gerð hryssa.

Þá er rétt að nefna einnig hryssur sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi utan landssteinanna en það eru þær Garún frá Árbæ og Líf frá Slippen. Garún er stödd í Noregi og Líf í Danmörku og verða heiðraðar í sínum heimalöndum. 

Þetta er afar góður hópur hryssna sem hljóta heiðursverðlaun í ár og taka eigendur þeirra við viðurkenningum fyrir sínar heiðurshryssur á árlegri hrossaræktarráðstefnu fagráðs í hrossarækt sem haldin verður 7. nóvember næstkomandi.

Hinn goðsagnakenndi Kóki

Herbert ,,Kóki” Ólason er fyrir löngu orðin goðsögn í Íslandshestaheiminum. Hann er frumkvöðull og ævintýramaður, hefur komið víða við og margar sögur gengið um hann.

Kóki er gestur Huldu Geirsdóttur í nýjasta þætti af Á mannlegum nótum þar sem hann rekur líflegan feril sinn á Íslandi og í Þýskalandi, útskýrir Kóka nafnið og svarar því hvort hann sé kvennabósi.

Hressilegt spjall í kvöld kl 20:00 á EiðfaxaTV.