Hestamannafélagið Geysir Sóley tekur við formennsku í Geysi

  • 4. október 2026
  • Fréttir

Breyting hefur orðið á formennsku Hestamannafélagsins Geysis en Eiríkur Vilhelm Sigurðarson hefur látið af formennsku í félaginu. Sóley Margeirsdóttir, varaformaður Geysis, tekur við formennsku fram að næsta aðalfundi félagsins, sem fyrirhugaður er í mars eða apríl næstkomandi. Þar verður kosið um formann félagsins að nýju.

Eiríkur tók við starfi sveitarstjóra Rangárþings ytra í sumar og í kjölfar þess óskaði hann eftir því í haust við stjórn Geysis að stíga til hliðar sem formaður.

Við þessi tímamót vill Eiríkur færa öllum þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd á plóg í starfi Geysis síðustu þrjú ár kærar þakkir. Félagið byggir á öflugu sjálfboðaliðastarfi félagsmanna og hefur verið einstaklega ánægjulegt að sjá starfsemina halda áfram að vaxa og dafna.

Æskulýðsstarf félagsins er í miklum blóma, öflugt móta- og félagsstarf hefur verið í gangi og Geysisfélagar stunda hestamennsku af miklum krafti, hvort sem er á keppnisvellinum, í ræktun og þjálfun eða einfaldlega sér til ánægju.

„Það hefur verið bæði lærdómsríkt og skemmtilegt að fá að leiða félagið þessi ár. Geysir á gríðarlega sterkan hóp félagsmanna og sjálfboðaliða sem eru alltaf tilbúnir að leggja sitt af mörkum þegar á þarf að halda. Það er sá kraftur sem gerir félagið að því sem það er. Ég stíg því sáttur til hliðar úr formennskunni, en verð að sjálfsögðu ekkert langt undan þegar Geysir kallar,“ segir Eiríkur.

Sóley þekkir starf félagsins vel og tekur nú við keflinu ásamt öflugri stjórn. Eiríkur óskar henni og stjórninni velfarnaðar í áframhaldandi starfi og hlakkar sjálfur til að vera áfram virkur þátttakandi í starfi Geysis.

Stjórn Geysis eftir breytinguna

Formaður: Sóley Margeirsdóttir
Stjórn: Caro Böse, Hulda Dóra Eysteinsdóttir, Guðmundur Björgvinsson og Edda Thorlacius Sigurðardóttir
Varamaður: Lea Birna Lárusdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link