Hestamannafélagið Sleipnir Uppskeruhátíð ungra Sleipnisfélaga

  • 5. október 2026
  • Fréttir

F.v. Berglind Sveinsdóttir formaður Sleipnis, Sigrún Freyja Einarsdóttir og Loftur Breki Hauksson

Stigahæstu knapar verðlaunaðir

Laugardaginn 3. október sl. hélt æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Sleipnis uppskeruhátíð yngri flokka félagsins í félagsheimilinu Hliðskjálf á Selfossi. Hátíðin var afar vel heppnuð og glæsileg, en þar gafst kærkomið tækifæri til að fagna öflugu starfi og góðum árangri ungra hestamanna á liðnu keppnis- og starfsári segir í frétt á Facebooksíðu Sleipnis.

Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar í polla-, barna- og unglingaflokki, auk þess sem nemendur sem luku Knapamerki 1 og 2 fengu sérstaka viðurkenningu fyrir áfangann. Fjórum efstu knöpum í stigakeppni barna- og unglingaflokks voru veitt verðlaun, ásamt því að stigahæstu knapar ársins 2026 voru krýndir.

Stigahæstu knapar ársins
  • Barnaflokkur: Sigrún Freyja Einarsdóttir varð stigahæsti knapi ársins í barnaflokki. Hún tók miklum framförum á árinu og keppti ötullega með góðum árangri á hesti sínum, Silfurtoppi frá Kópavogi.
  • Unglingaflokkur: Loftur Breki Hauksson varð stigahæstur í unglingaflokki. Loftur Breki átti glæsilegt tímabil að baki þar sem hæst bar Íslandsmeistaratitill í tölti T1 í unglingaflokki, auk þess sem hann nældi í silfurverðlaun í unglingaflokki á Landsmóti hestamanna.

Betubikarinn, sem gefinn er af Elísabetu Sveinsdóttur, er veittur því ungmenni félagsins sem þykir hafa skarað fram úr og verið áberandi í félagsstarfinu óháð keppnisárangri.
Að þessu sinni hlaut Kamilla Nótt Jónsdóttir bikarinn. Hún hefur verið ötull og jákvæður þátttakandi í starfi félagsins, duglegur og hjálpsamur sjálfboðaliði sem ávallt leggur sitt af mörkum, og góð fyrirmynd fyrir aðra unga hestamenn í Sleipni.

Elísabet Sveinsdóttir og Kamilla Nótt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link