Um dómaramál – hugrenningar að afloknu keppnistímabili

Það birtust á dögunum fréttir af því að VAR-dómarar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hefðu verið settir í skammarkrók og fengju ekki að dæma meir um sinn, vegna mistaka sem þeir gerðu við myndbandsdómgæsluna. Þetta atvik og fréttaflutningur af því, hefur hvatt mig til þess að tjá mig aðeins um dómaramál í hestamennsku, bæði almennt og af persónulegum ástæðum.

Það er óumdeilt að dómarar eru alltaf undir smásjá – jafnvel í skotlínu. Þetta á við um alla dómara hvort sem þeir starfa við dómstóla eða íþróttakappleiki, hestaíþróttir, gæðingakeppni eða kynbótadóma. Síðastnefndu greinarnar hafa órofa tengsl við mitt lifibrauð og lífshagsmuni, og fyrir kemur að úrslit í nefndum greinum ráðast af ákvörðunum dómara. Það er því mikið undir því komið að dómarar séu sanngjarnir og réttsýnir, auk þess að vera faglega sterkir og vel undirbúnir.

Hlutverk dómara, hægt tölt og gangrými

Og talandi um ábyrgð, fagmennsku og hlutverk dómara: Hægt tölt er grein sem allir hestadómarar þurfa að glíma við í sínum störfum. Nýleg blaðagrein sem gerir hæga töltið að umfjöllunarefni, hefur vakið athygli og viðbrögð, sem eru umfram verðskuldun. Einfaldlega vegna þess að málið er ekki svo flókið: Á augabragði geta dómararnir lagað það, sem úrskeiðis hefur farið, hætti þeir að gefa fyrir hægt tölt ef það er riðið of hratt!

Rými á gangtegundum er hugtak sem aldrei má vanmeta í kynbótadómum, og gildir jafnt um tölt og brokk og skeið og stökk. Hefur verið nægilega gætt að því? Er hugsanlegt að of mikil áhersla hafi verið lögð á hægu gangtegundirnar, á þeim forsendum að það auðveldi dómurum að meta samstarfsvilja, ef löturhægt er riðið? Þá hugmynd tel ég reyndar alveg úr lausu lofti gripna. Mín reynsla er nefnilega sú, að það sé vel hægt að kenna geðstirðum og / eða viljadaufum hrossum að ganga hægagang, og villa þar með fyrir dómurum, sem leggja traust sitt á þessa matsaðferð.

Það hefur of oft orðið misbrestur á fagmennsku í dómgæslu, sem rýrt hefur traustið, sem ríkja þarf. Alloft hendir það að einn dómari er alveg úr takti við alla hina. Sjálfur hef ég þurft að þola það þrívegis í úrslitum í gæðingakeppni á landsmóti (2006, 2016 og 2022), að einn dómari (af fimm) var alveg út úr korti og setti keppnishest minn í mun lægra sæti en allir hinir dómararnir, og gulltryggði þannig að hann kæmi ekki til greina sem sigurvegari í flokknum. Fleiri dæmi gæti ég nefnt, en læt það vera í bili – en þetta er óásættanlegt og þarf sérstakrar skoðunar við

Hvað er til ráða?

Innra eftirlit í dómarastétt þyrfti að vera langtum virkara og áhrifameira. Augljós mistök og mismunun eiga að hafa afleiðingar. Ytra eftirlit er líka sjálfsagt af hálfu LH og fagráðs í hrossarækt, auk þess aðhalds og gagnrýni, sem veitt er af hálfu knapa og eigenda hrossanna. – og birtist m.a. í þessari grein hér.

Endurnýjun í dómarastétt þarf að vera örari. Það tengist að vissu leyti lokaniðurstöðu þessara hugleiðinga, að maður komi í manns stað. Jafnframt þarf að tryggja að nýir dómarar hljóti örugga handleiðslu hjá því fólki í dómarastétt, sem mests trausts nýtur og er næsta óumdeilt í sínum störfum. Slík endurnýjun er auðvitað alveg nauðsynleg, ef unnt á að vera að beita svipaðri aðferð og vitnað var til hér í upphafi: Að setja – um lengri eða skemmri tíma – þá dómara í skammarkrókinn, sem ekki hafa staðið undir því trausti sem gera verður til allra sem vilja tilheyra dómarastéttinni. Það hefur vissulega verið gert, en sjaldnar en tilefni hafa gefist til.

Greinarhöfundur er Daníel Jónsson knapi og hrossaræktandi

Laufskálaréttir framundan

Á laugardaginn 26. september nk. eru stóðréttir í Laufskálarétt í Skagafirði. Þetta er ein af vinsælustu stóðréttum landsins og er yfirleitt mikið fjör og gleði í Skagafirðinum þessa helgi.

Þeir sem hafa gaman að því að fylgjast með stóðinu koma niður eru hvattir til að vera komnir að Laufskálarétt kl 12. Réttarstörf hefjast svo upp úr kl 13 undir stjórn Bergs Gunnarssonar á Narfastöðum. Áætlað er að réttarstörf ljúki upp úr kl 15:30.

Opið hús á Varmalandi á föstudeginum

Líkt og síðustu ár verður opið hús á Varmalandi föstudaginn 25. september. frá kl. 13 – 17:00. Kynning á vatnsbrettaþjálfun og hross á öllum aldri til sýnis og sölu. Léttar veitingar og góður félagsskapur.

Menntaráðstefna FEIF og LH í vikunni

Það er nóg um að vera í Skagafirði dagana fyrir réttirnar en Menntaráðstefna FEIF og LH verður haldin í dagana 23.–25. september 2026. Ráðstefnan hefst eftir hádegi miðvikudaginn 23. og endar um hádegi föstudaginn 25. september. Meginþema ráðstefnunnar verður gangskiptingar og gangsetning ásamt hraðabreytingum.

Tamdi tugi villihesta einn

Næsti gestur þáttarins ,,Á mannlegum nótum“ er hestamaðurinn kunni Þorvaldur Ágústsson á Hvolsvelli.
Valdi fer yfir feril sinn í hestamennskunni, m.a. hvernig hann tókst á við að temja stóð villtra hrossa í Svíþjóð einn og óstuddur, stofnun Félags tamningamanna og Eiðfaxa og hvaðan viðurnefnið Roy kemur.
Fjölbreytt og áhugavert spall við kappa sem hefur víða komið við.
Umsjónarmaður og spyrill er Hulda G. Geirsdóttir.

Þátturinn er aðgengilegur kl 20:00 á EiðfaxaTV.

Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH 2026-2027

Þróun Hæfileikamótunar LH hefur verið mikil undanfarin ár. Á þessu starfsári verður boðið upp á tvo hópa líkt og undanfarin ár.

Þetta er gert til þess að veita sem flestum efnilegum knöpum tækifæri til þess að komast í umhverfi Hæfileikamótunar, efla starfið og á sama tíma að veita hverjum knapa enn meiri aðstoð en áður.

Vetrarstarfið í haust hefst á foreldrafundi og svo ferð norður að Háskólanum á Hólum í Hjaltadal þar sem nemendur fá innsýn í námið á Hólum, sýnikennslu og reiðkennslu hjá kennurum við skólann ásamt því að fá helgi til þess að kynnast og hrista saman hópinn.
Eftir áramót eru tvær vinnuhelgar í kennslu á eigin hestum undir umsjón yfirþjálfara auk bóklegrar kennslu í formi fyrirlestra á tímabilinu. Þar að auki taka iðkendur Hæfileikamótunar þátt í viðburðum á vegum landsliðsins í hestaíþróttum.
Í hæfileikamótun LH eru ungir og efnilegir framtíðarknapar Íslands. Á liðnum keppnisárum hafa knapar sem taka þátt í hæfileikamótun LH staðið framarlega í öllum greinum á stærstu mótum ársins í unglingaflokki.

Tilvist hæfileikamótunar er orðin að stórum þætti í afreksmálum Landssambands hestamannafélaga. Það er mjög mikilvægt að aðstoða unga afreksknapa við að verða betri þjálfarar og reiðmenn en einnig að gefa þeim tækifæri til að kynnast landsliðsumhverfinu og verða að flottum fyrirmyndum fyrir aðra.

Fyrir umgjörð afreksstarfsins er þátttaka og stuðningur foreldra mikilvægur og því leggur afreksteymi LH og yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH ríka áherslu á góð samskipti við foreldra og aðstoð þeirra á starfshelgum.

Yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH er Vigdís Matthíasdóttir.

Tekið er á móti umsóknum í hæfileikamótun LH 2026-2027 á vef LH

Umsóknarfrestur er 30. september 2026

 

Margaretehof í Svíþjóð til sölu

Hinn sögufrægi hestabúgarður Margaretehof í Everöd í Kristianstad í Svíþjóð er komið á sölu. Búgarðurinn hefur um árabil verið ein helsta miðstöð íslenska hestsins á Norðurlöndum og haft gríðarlega þýðingu fyrir Íslandshestaheiminn í heild sinni.

Jörðin spannar alls um 174 hektara og státar af aðstöðu á heimsmælikvarða. Þar má nefna 275 fermetra glæsilegt íbúðarhús, sérstaka gestaíbúð með fimm svefnherbergjum, 120 fermetra leiguhús, 60×22 metra reiðhöll, nútímalegt tíu hesta hesthús ásamt tólf útiplássum, og sérhæfða endurhæfingaraðstöðu með vatnsbretti, kælikerfi og titringsgólfi. Á jörðinni eru einnig stórar vélaskemmur, dýralæknisaðstaða, umtalsvert skóglendi, ræktarland og grösug beitilönd.

Margaretehof hefur verið vettvangur fjölmargra stórmóta í hestaíþróttum í gegnum áratugina. Á svæðinu eru tvær keppnisbrautir, 200 og 250 metra hringvellir, ásamt 300 metra skeiðbraut.

Seljendur jarðarinnar, Montan-fjölskyldan, sem hefur byggt upp og hlúð að þessari merku starfsemi, vonast til þess að nýir eigendur muni hugsa staðinn áfram sem hestamiðstöð og halda merki íslenska hestsins áfram á lofti á þessum sögufræga stað. Ásett verð er 37 milljónir sænskra króna.

Hér má skoða auglýsingu um söluna.

„Ótrúlegur heiður að fá þetta tækifæri“

Sigurður Vignir Matthíasson, Edda Rún Ragnarsdóttir og fjölskylda eru orðin nýir staðarhaldarar að hestamiðstöðinni í Dallandi.

Eiðfaxi heimsótti fjölskylduna í Dalland og ræddi við Sigurð, Eddu Rún og dóttur þeirra, Helgu Rún. Í spjallinu fara þau yfir tilkomu flutninganna, hvernig ný aðstaða breytir öllu fyrir daglegan rekstur og þjálfun, áframhaldandi tengsl við Fák og reiðskólann, sem og sögufræga fortíð Dallands sem þau taka nú við keflinu á.

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni

 

 

„Vildi gera frumtamningar svalari“

Benedikt Líndal, tamningameistari, hitti á blaðamann Eiðfaxa á kaffihúsi og ræddi við hann um kennslumyndbönd sín sem nú eru aðgengileg á Eiðfaxa TV, stöðuna í hestamennskunni og mikilvægi þess að gleyma ekki uppbyggingunni og fjölbreytninni í tamningu og þjálfun.

Benedikt býr að Gufuá í Borgarfirði þar sem lífið gengur sinn vanagang. „Það er allt gott að frétta, rólegt og gott. Ég er heima og er að vinna með einhverja þrjá unga hesta í tamningu og svo þrjá hesta sem eru aðeins eldri,“ segir Benedikt spurður um verkefnin þessa dagana. Hann kveðst halda sig við hæfilegan fjölda hesta enda taki hnakkagerðin einnig sinn tíma.

Kennslumyndböndin eldast vel

Kennslumyndbönd Benedikts um tamningu og þjálfun, sem nutu gríðarlegra vinsælda þegar þau komu út, eru nú komin inn á streymisveituna Eiðfaxi TV. Myndböndin eru orðin rúmlega tuttugu ára gömul en fyrri hlutinn kom út um árið 2000 og sá síðari árið 2004. „Ég vildi vanda vel til með fyrra myndbandið og koma því fram sem mig langaði til að kæmi fram,“ rifjar Benedikt upp. „Þá langaði mig líka til að sýna hvert þetta leiddi þegar maður væri kominn með eldri hesta og meira þjálfaða hesta. Maður er náttúrulega bara stoltur af þessu og sér að þetta hefur haft áhrif víða. Það var raunverulega það sem mig langaði til, og fyrir utan það að mig langaði endilega til að gera frumtamningar svalari.“

Benedikt bendir á að oft hafi verið litið svo á að einhver væri „bara“ frumtamningamaður. „Ég fer alltaf í smá óróa við þetta ‚bara‘. Í alvöru talað held ég að við séum öll frumtamningafólk í grunninn sem þróast svo yfir í að vinna líka með eldri hesta.“

Uppbygging og rétt tímasetning lykilatriði

Benedikt fylgist vel með þróuninni í reiðmennsku og hrossarækt. Spurður hvað honum finnist mikilvægast að hafa í huga í nútímaþjálfun nefnir hann fjölbreytni og agaða uppbyggingu: „Það sem kemur fyrst upp í hugann, hvort sem unnið er með unga hesta eða eldri hesta, er að hafa nógu mikla fjölbreytni í þjálfuninni og að það sé alltaf uppbygging til staðar. Ef hún dettur út af einhverjum völdum, að farið sé of snemma í eitthvað eða tímasetningarnar séu ekki réttar, þá tapar maður hestinum fljótt og þá skilar þetta sér ekki. Það þarf alltaf að vera tímasett rétt, hvort sem verið er að leggja áherslu á vinnu eða hvíld.“

Aðspurður lýsir Benedikt yfir mikilli ánægju með tilkomu Eiðfaxa TV og þá miklu heimildavinnu sem þar fer fram. „Mér finnst þetta geggjað og bara takk fyrir það! Gullkistan þarna inni er dýrmæt og frábær. Þetta er eins og gott bókasafn þar sem maður gengur að hlutunum vísum,“ segir Benedikt Líndal að lokum.

Við hvetjum alla till þess að horfa á myndirnar hans Benna á EiðfaxaTV en þær eru aðgengilegar á íslensku, ensku, þýsku og sænsku.

Vísir frá Kagaðarhóli á leið til Þýskalands

Vísir frá Kagaðarhóli er seldur og á leið til Þýskalands. Vísir og fyrrum knapi hans og eigandi Páll Bragi Hólmarsson hafa náð frábærum árangri á keppnisbrautinni undanfarin ár og þá sérstaklega í tölti. Þeir hafa m.a. unnið töltið í Meistaradeild Líflands, Meistaradeild KS og á Reykjavíkurmeistaramótinu 2024. Þeir hafa hæst farið í 8,67 í tölti og í 8,88 í úrslitum og á gæðingamótinu á Flúðum í sumar unnu þeir B flokkinn með 9,04 í einkunn.

Nú skilja hins vega leiðir en nýr knapi er Mia Hrastelj.

„Það er stefnt á að hesturinn fari út í nóvember. Hesturinn er búin að vera hjá Gústafi Ásgeiri Hinrikssyni á Árbakka og hefur Mia verið þar og við verið að aðstoða hana á meðan hún kynnist klárnum,“ segir Páll Bragi en stefnir Mia með Vísi á Heimsmeistaramótið í Rieden á næsta ári.

„Hún hefur verið að keppa töluvert og langaði að komast á hæsta level en hún ætlar sér stóra hluti með klárinn. Það er gaman að sjá hvað þau ná vel saman og það hefur gengið mjög vel með hann.“

Páll Bragi og Vísir voru á einum tímapunkti valdir í landsliðið en ákváðu að fara ekki út. Aðspurður hvort hann hafi sjálfur ekki vilja stefna með hestinn á mótið segir hann tímapunktinn til að selja hann hafi verið núna.

„Það hefði auðvitað verið gaman að enda okkar feril saman úti en það er ekkert á vísan að róa með að komast í liðið hér heima. Við þurfum líka að lifa á þessu og það var gluggi núna til að selja hann. Ég sé auðvitað mikið eftir honum en við erum búnir að eiga mjög góða tíma saman og mér þykir mjög vænt um þennan hest. Nú fær maður líka að hafa puttana í þessu með Miu og aðstoða hana áfram sem er mjög skemmtilegt,“ segir Páll að lokum.

Páll Bragi og Vísir frá Kagaðarhóli

 

Hvað segir hegðun hestsins um velferð hans í keppni?

Atferlisfræðingurinn og meistaraneminn Ronja Berg hefur þróað atferlismiðað matskerfi til að meta velferð íslenskra keppnishesta. Verkefnið er unnið við sænska landbúnaðarháskólann (SLU) í samstarfi við sænska Íslandshestasambandið (SIF), undir handleiðslu Jenny Yngvesson og Önnu Lundberg. Verkefnið var fjármagnað af Agria dýratryggingum (Agria Djurförsäkring) þegar það hófst árið 2025, en nýtur nú styrks frá Sænsku dýraverndarsamtölunum (Svenska Djurskyddsföreningen) árið 2026.

Áhersla á jákvæða velferð og gangskiptingar

Kerfið er hannað til þess að greina bæði merki um vanlíðan og góða velferð. Vísbendingar um góða velferð hestsins eru meðal annars takthreinar hreyfingar, slakur munnur, frjáls hreyfing tagls og frýs. Gangskiptingar reynast sérstaklega upplýsandi til að greina bæði jákvætt samband knapa og hests og árekstra (e. conflict behaviours).

Á nokkrum mótum í sumar prófaði SIF matskerfið auk nýrra verkfæra til að auka öryggi þess. Eitt þeirra móta var Norðurlandamótið sem fram fór í Svíþjóð. Ronja var þar á staðnum ásamt hópi reynsluskrásetjara (e. pilot observers) og voru keppnispör valin af handahófi. Allt var skráð nafnlaust og er tilgangurinn ekki að dæma einstaklinga eða hesta, heldur að fylgjast með og meta velferð íslenskra keppnishrossa og þróa kerfið áfram til þess að geta metið og greint velferð hrossa í keppni. Eiga gögnin svo að gefa heildstæðari mynd af því hvað gengur vel og hvað má bæta í umhverfi keppnishesta.

Vonandi skref í átt að vitundarvakningu

Aðspurð um hvar íslenski hestaheimurinn standi í velferðarmálum keppnishesta eftir reynslu sumarsins segir Ronja að erfitt sé að gefa einfalt svar við svo flókinni og viðkvæmri spurningu. Hún hafi bæði séð ýmislegt sem gefi ástæðu til bjartsýni, en jafnframt hluti sem fái mann til að staldra við og spyrja hvað sé ásættanlegt innan íþróttarinnar.
Verkefni hennar sé fyrsta skrefið í að fá vísindalegt og kerfisbundið yfirlit yfir velferð hestanna, sem hægt verði að byggja raunhæfar aðgerðir á. Að mati Ronju getur tilvist slíkra verkefna í sjálfu sér haft jákvæð áhrif og hvatt fólk til að staldra við og íhuga eigin gjörðir og áhrif þeirra á hestinn.

Reynsla sumarsins hefur gert hana vongóða um framtíðina: „Ég hef hitt margt fólk sem vill innilega ræða þessar spurningar, líta í eigin barm og leggja sitt af mörkum til að bæta bæði íþróttina og þetta verkefni. Fyrir mér er þessi vilji til að skoða okkur sjálf með gagnrýnum hætti, án þess að umræðan snúist upp í ásakanir, ótrúlega mikilvægur,“ segir Ronja að lokum.

Frá vinnuaðstöðu Ronju í sumar

Stærsti núlifandi hestur í heimi

Fjögurra vetra gamall hestur af Shire kyni hefur verið skráður í heimsmetabók Guinness sem sá lifandi hestur í heiminum í dag sem hæstur er á herðarkamb. Hesturinn heitir Hugo og mælist hann hvorki meira né minna en 199 sentimetrar á herðakamb, ójárnaður.

Í samtali við BBC segir einn af eigendum hans að svo ör vöxtur og stærð krefjist nákvæmrar umhirðu þar sem reglulega koma við sögu dýralæknir, hestanuddari, hnykkjari og tannlæknir, auk þess sem fóðrun hans er vandlega stýrt. Þrátt fyrir stærðina að þá er einnig sagt frá því að Hugo sé einstaklega vinalegur og rólegur risi.

Þótt að Hugo sé nú stærsti lifandi hestur heims nær hann ekki sögulega metinu en það átti hesturinn Sampson sem mældist á sínum tíma 219 sentimetrar á herðarkamb.