Styttist í Íslandsmót fullorðinna
Nú styttist í það að Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum hefjist. Skráning stendur nú yfir en frestur til að skrá sig til leiks rennur út 2. júlí, eða að kvöldi þriðjudags.
Skráð er í gegn um skráningarkerfið Sportfeng og er leiðbeiningar m.a. að finna á heimasíðu mótsins http://www.islandsmotlh.is/. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingur um mótið og undirbúning þess.
Er þess vænst að margir leggi leið sína í Borgarnes dagana 11. – 14. júlí.