Röðull hlaut þrjár 10

  • 21. ágúst 2026
  • Fréttir

Röðull frá Haukagili Hvítársíðu var sýndur á síðsumarsýningunni á Hellu. Hann hlaut þrjár 10 fyrir einstaka eiginleika í hæfileikadómi. Hann hlaut 10 fyrir tölt, hægt tölt og samstarfsvilja. Hann hlaut fyrir hæfileika 8,77 og fyrir sköpulag 8,29 sem gerir 8,60 í aðaleinkunn.

Röðull er níu vetra undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Kötlu frá Steinnesi. Ræktandi og eigandi er Ágúst Þór Jónsson og sýnandi var Flosi Ólafsson.

108)
IS2017136937 Röðull frá Haukagili Hvítársíðu
Örmerki: 956000004715676
Litur: 15000 Rauður
Ræktandi: Ágúst Þór Jónsson
Eigandi: Ágúst Þór Jónsson
F.: IS2007186189 Arion frá Eystra-Fróðholti
Ff.: IS1997186183 Sær frá Bakkakoti
Fm.: IS1995286176 Gletta frá Bakkakoti
M.: IS2002256286 Katla frá Steinnesi
Mf.: IS1996156290 Gammur frá Steinnesi
Mm.: IS1993256299 Kylja frá Steinnesi
Mál (cm): 147 – 134 – 138 – 66 – 142 – 36 – 47 – 42 – 6,7 – 30,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,3
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,0 = 8,29
Hæfileikar: 10,0 – 9,0 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 10,0 – 9,5 – 8,5 = 8,77
Hægt tölt: 10,0

Aðaleinkunn: 8,60
Hæfileikar án skeiðs: 9,45
Aðaleinkunn án skeiðs: 9,05
Sýnandi: Flosi Ólafsson
Þjálfari:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link