Opið fyrir umsóknir um styrki til þróunarverkefna
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna í ýmsum búgreinum og er hrossaræktin þar á meðal. Þetta er kærkomið tækifæri fyrir fagfólk í hestamennsku til að sækja um stuðning við framsækin og mikilvæg verkefni. Umsóknarfrestur rennur út 15. október næstkomandi.
Eins og greint er frá á vef Bændablaðsins eru þau verkefni styrkhæf sem talin eru efla og styrkja íslenska hrossarækt til framtíðar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem fela í sér að viðhalda þeim dýrmætu eiginleikum sem prýða íslenska hrossastofninn, auk þess sem velferð hestsins þarf að vera í öndvegi.
Auk hrossaræktar er tekið við umsóknum vegna þróunarverkefna í nautgripa- og sauðfjárrækt, auk garðyrkju.
Við hvetjum hestafólk með góðar hugmyndir að velferðar- eða ræktunarverkefnum að kynna sér málið vel. Sótt er um á Afurð og þarf umsókn að hafa borist fyrir 15. október.
Styttu haustið með EiðfaxaTV