Einn hestur Danska landsliðsins frá því á NM fallinn
Í kjölfar Norðurlandamótsins (NM) á Margaretehof í Svíþjóð hafa þrír hestar úr danska landsliðinu verið greindir með ristilbólgu (e. colitis). Tveir hestanna veiktust á meðan á mótinu stóð, en sá þriðji greindist föstudaginn 4. september. Þrátt fyrir mikið og stöðugt eftirlit dýralækna tókst ekki að bjarga lífi eins þeirra. Danska íslenska hestasambandið hefur sent frá sér tilkynningu þar sem þeir sýna samhug til eigenda og knapa hestsins sem fallin er.
Mygla í heyi rannsökuð sem hugsanleg orsök
Ítarleg rannsókn stendur nú yfir á orsökum veikindanna. Danska sambandið hefur unnið náið með dýralæknum, knöpum og eigendum að greiningu á ástandinu.
- Tekin voru sýni úr því heyi sem fyrsti veiki hesturinn fékk að borða kvöldið áður en hann var lagður inn á dýraspítala þann 4. ágúst.
- Niðurstöður greiningar sýndu mikla ræktun á myglusvepp í heyinu.
Að sögn dýralækna er ekki hægt að útiloka samhengi á milli myglunnar í heyinu og ristilbólgunnar sem dró þriðja hestinn til dauða. Þó tekur danska sambandið skýrt fram að frekari rannsókna sé þörf áður hægt sé að draga endanlegar ályktanir.
Landsliðsknapar Dana hafa verið beðnir um að fylgjast sérstaklega vel með heilsu hesta sinna á næstu vikum svo hægt sé að grípa inn í án tafar ef ný tilfelli koma upp. Markmið sambandsins með rannsókninni er að draga lærdóm af atvikinu til að koma í veg fyrir álíka uppákomur á stórmótum framtíðarinnar.
Styttu haustið með EiðfaxaTV