Afmælismótaröð Léttis heldur áfram
Skráning er hafin í fimmgangskeppni Afmælismóts Léttis. Mótið verður haldið fimmtudaginn 4. júlí og hefst kl. 18:00, keppt verður í:
Unglingaflokki – 2000 kr. skáningargjald
Ungmennaflokki – 2000 kr. skráningargjald
Opnum flokki. – 2300 kr. skráningargjald
Aðeins verður ein forkeppni en A úrslit í öllum flokkum.
3. dómarar dæma.
Keppt samkvæmt lögum og reglum LH.
Skráning á er á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Skráningu lýkur þriðjudaginn 2 júlí á miðnætti.
Kvittun sendist á [email protected]
Keppendur hvattir til að vera í félagsbúningi Léttis í tilefni afmælisársins.