Knapar ársins
Knapar ársins 2014
Nefnd um knapaval og viðurkenningar LH á Uppskeruhátíð hestamanna hefur nú skilað af sér tilnefningum um Knapa ársins og Ræktunarbú keppnishrossa 2015.
Fimm knapar eru tilnefndir í hverjum flokki en flokkarnir eru: íþróttaknapi, skeiðknapi, gæðingaknapi, kynbótaknapi, efnilegasti knapinn og knapi ársins. Við valið er litið til árangurs knapa á árinu, hér heima sem erlendis. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri og frammistaða hans sé álitin reiðmennskunni til framdráttar. Í flokkinum Ræktunarbú keppnishrossa eru tilnefnd þau ræktunarbú sem hafa skilað flestum hrossum í keppni eða sýnt árangur sem eftir er tekið.
Allir tilnefndir verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestamanna í Gullhömrum, Grafarholti þann 7. nóvember næstkomandi og þá kemur einnig fram hver hampar titlinum í hverjum flokki fyrir sig.
Tilnefningar eru eftirfarandi:
Efnilegasti knapinn 2015:
Fanndís Viðarsdóttir
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
Jóhanna Margrét Snorradóttir
Konráð Axel Gylfason
Róbert Bergmann
Skeiðknapi ársins 2015:
Bjarni Bjarnason
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Sigurbjörn Bárðarson
Teitur Árnason
Ævar Örn Guðjónsson
Íþróttaknapi ársins 2015:
Guðmundur Björgvinsson
Kristín Lárusdóttir
Reynir Örn Pálmason
Sigurbjörn Bárðarson
Teitur Árnason
Gæðingaknapi ársins 2015:
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir
Jakob Svavar Sigurðsson
Jóhann K Ragnarsson
Kári Steinsson
Siguroddur Pétursson
Knapi ársins 2015:
Árni Björn Pálsson
Guðmundur Björgvinsson
Kristín Lárusdóttir
Reynir Örn Pálmason
Teitur Árnason
Kynbótaknapi ársins 2015:
Árni Björn Pálsson
Daniel Jónsson
Guðmundur Björgvinsson
Helga Una Björnsdóttir
Jakob Svavar Sigurðsson
Ræktunarbú keppnishrossa 2015:
Árbæjarhjáleiga 2/Skarð
Flugumýri
Holtsmúli 1, Aðalsteinn Sæmundsson
Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
Þóroddsstaðir
Styttu haustið með EiðfaxaTV