Heimsmeistarinn Frár allur
Frár frá Sandhól og Jón Ársæll Bergmann á HM 2023 Mynd: Bert Collet
Fyrrum heimsmeistari Frár frá Sandhóli er fallinn en þetta tilkynnti Jamila Berg, annar eigandi Frás á Instagram.
„Frá því að vera fullkomlega heilbrigður fékk hann skyndilega hrossasótt sem endaði með kviðarholsaðgerð. Þrátt fyrir allar tilraunir og vonina um að hann myndi jafna sig, hrakaði honum síðar og að lokum var ekkert meira sem við gátum gert,“ skrifar Jamila.
Frár var tvöfaldur heimsmeistari í ungmennaflokki en hann og Jón Ársæll Bergmann kepptu á HM árið 2023 þar sem þeir unnu fjórganginn og samanlagðar fjórgangsgreinar. Þeir höfðu þá fyrr um sumarið orðið þrefaldir Íslandsmeistarar í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum.
Frár var staðsettur í Svíþjóð en þær Jamila Berg og Linda Malarberg eignuðust hestinn í desember í 2025. Jamila keppti á honum á sænska meistaramótinu í fjórgangi þar sem þau enduðu í 4. sæti.
„Við erum óskaplega leið og höfum tekið fráfall hans afar nærri okkur. Við fengum allt of lítinn tíma með þessum frábæra hesti. Um leið reynum við að vera þakklát fyrir að hafa yfirhöfuð fengið tækifæri til að hafa hann í lífi okkar,“ skrifar Jamila Berg.
Frár var undan Loka frá Selfossi og Freyju frá Hafnarfirði. Ræktendur voru Margrét H Vilhjálmsdóttir og Þorvaldur H Kolbeins. Hann hlaut í kynbótadómi 8,41. 8,33 fyrir sköpulag og 8,46 fyrir hæfileika. M.a. 9,5 fyrir stökk, hægt stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk og hægt tölt. Það var Rósa Birna Þorvaldsdóttir sem sýndi Frá.
Frár á 38 skráð afkvæmi í WorldFeng og hafa tvö verið sýnd í kynbótadómi.
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Hetja í 9,01 fyrir hæfileika
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Kristín Eir stigahæsti knapi í unglingaflokki