Umsóknir í nefndina

  • 1. október 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum.

Umsóknir um þátttöku í Framhaldsskólanefndinni í hestaíþróttum er hafin. Í nefndinni kemur saman ungt hestafólk sem stundar nám við framhaldsskóla landsins og skipuleggjum við saman hið árlega Framhaldsskólamót í hestaíþróttum. Þar taka skólar frá öllu landinu þátt.

„Störf nefndarinnar eru fjölbreytt, áhugaverð og skemmtileg. Við auglýsum því eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni í vetur.

Í umsókninni þurfa ykkar helstu upplýsingar að koma fram; fullt nafn, aldur, símanúmer, skóli og af hverju þið hafið áhuga á að vera í nefndinn. Upplýsingar umfram þessar eru einnig vel þegnar. Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 31. október næstkomandi á [email protected].

Við í nefndinni hvetjum hestafólk í mennta- og framhaldsskólum landsins sem hafa áhuga á keppnum og mótshaldi að sækja um og taka þátt í starfinu með okkur.

Ef einhverjar spurningar vakna, getið þið haft samband í síma 847-8061 (Thelma Harðardóttir) eða sent e-mail á okkur.

Ekki vera feimin, hlökkum til að heyra í ykkur!“
Framhaldsskólanefndin í hestaíþróttum 2015-2016

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link