Á mörkum örmögnunar á mongólsku steppunni

  • 27. október 2026
  • Fréttir

Markús Ingi endaði í 15. sæti í Mongol Derby, lengstu þolreið heims Myndir: aðsendar

Viðtal við Markús Inga Karlsson um þátttöku hans í Mongol Derby

Mongol Derby er ein erfiðasta, lengsta og hættulegasta þolreið heims samkvæmt Guinness world record. Takmarkið er að ríða 1.000 km á lítið tömdum mongólskum hrossum á tíu dögum. Markús Ingi Karlsson tók þátt í þessari mögnuðu þolraun í ágúst og lauk keppni í 15. sæti sem er besti árangur íslendings en Markús er þriðji íslendingurinn til að taka þátt í þolreiðinni.

„Ég man það varla hvernig þetta byrjaði!“ segir Markús léttur í bragði aðspurður um hvað varð til þess að hann ákvað að skrá sig. „Hugmyndin kom í hausinn á mér fyrir tveimur árum í hestaferð þegar erlendur ferðamaður fór að segja mér frá þessu. Ég ætlaði að sækja um í fyrra en það varð ekki af því fyrr en núna.“

Það var sagan og hestarnir sem heilluðu Markús en keppnin er byggð á hinu fornfræga póstkerfi Genghis Khan og mongólsku hestarnir sagðir líkjast þeim íslensku. „Svo var það líka bara forvitni og áskorunin – að gera eitthvað svona klikkað og sjá hvort maður kæmist í gegnum það.“

„Þetta var bara sturlað! Eftir fimm, sex daga komst maður yfir þreytuna og síðustu fimm dagana var ég farin að skilja kortið betur og því betri að velja leiðir. Þá var þetta bara orðið ferðalag sko“

Þurfti að létta sig um 10 kíló

Markús undirbjó sig vel fyrir keppnina, keypti sér meðal annars sérstakan hnakk sem notaður er á mongólsku hestana og prófaði á lítið tömdum hrossum hér heima.

„Ég þurfti líka að létta mig um tíu kíló fyrir keppnina en strangar reglur gilda um þyngdina sem hestarnir mega bera. Knapinn má ekki vera þyngri en 85 kíló og þú mátt síðan vera með fimm kíló í tösku með þér fyrir utan vatnspokann sem er vigtaður tómur. Ég spáði líka mikið í skóbúnaðinum. Ef maður er kannski í blautum skóm í tíu daga getur maður lent í slæmum málum með fæturna. Ég endaði þó á því að nota bara venjulega, þægilega hestaskó sem höfðu reynst mér vel og þeir sviku ekki.“

Hrossin hafa mikið að segja um árangurinn

Alls eru 28 stöðvar á leiðinni, auk endamarksins á þeirri tuttugustu og níundu. Keppendur þurfa að fara í gegnum 3 – 4 stöðvar á dag og eru um 30 – 40 km. á milli stöðva. Á hverri stöð er skipt um hest og farið í gegnum dýralæknaskoðun en framganga í keppninni ræðst ekki síst af þeim hrossum sem knaparnir fá. Hestarnir eru dregnir úr potti og því hreint happadrætti hvort knaparnir fái viðráðanlega hesta eða ekki.

„Þetta var ótrúlega blandað hvernig hesta maður fékk. Ég var smá stressaður fyrstu dagana en þegar ég fór að hugsa meira um þetta bara eins og íslenska hesta þá varð þetta auðveldara. Ég hélt að hestarnir yrðu miklu villtari en þeir voru í raun og veru. Eftir að ég fór að umgangast þá eins og íslenska hesta var þetta ekkert mál.“

Markús var misheppin með hestakost eins og gengur og gerist í keppninni. Nokkrir eru honum mjög eftirminnilegir og þá annað hvort fyrir óþrjótandi hlaupagleði eða leti.

„Einn brokkaði bara hægt. Á einum tímapunkti hélt ég hann væri að deyja hann fór svo hægt, Það var ekki fyrr en að tveir aðrir knapar náðu mér að þá lifnaði yfir honum, honum vantaði greinilega bara félaga. Annar neitaði algerlega að fara áfram og ég þurfti að hafa ótrúlega mikið fyrir honum. Þegar ég kom í næstu stöð hlógu heimamenn mikið að mér; þeir þekktu vel til hestsins. Þeir báðu mig um að sýna sér hælana á skónum mínum. Þriðji er mér mjög eftirminnilegur en hann hljóp eins og brjálæðingur fyrstu tíu til fimmtán kílómetrana. Það þýddi ekkert að reyna að stoppa hann svo ég varð bara að sitja og leyfa honum að blása út áður en ég náði stjórn.“

Velferð hestsins í forgrunni

Keppendur þurfa ætíð að vera með velferð hestsins í forgrunni en hestarnir þeirra þurfa að komast í gegnum dýralæknisskoðun áður en þeir geta skipt um hest og haldið áfram. Tekinn er púlsinn og athugað með meiðsli, nuddsár, vökvaskort og hvort garnahljóð séu eðlileg. Hver keppandi er með dýralæknabók þar sem skráð er hvernig hann hirðir um og fer með hestana sína og standist hestar ekki skoðun eiga knapar von á tímarefsingu og jafnvel verið vísað úr keppni.

„Þú þarft að huga að mörgu t.d. á kortinu eru merkt vatnsból og þú þarft að taka ákvörðun um hvort þú ætlar að sleppa þeim eða fara í þau. Síðan þegar þú kemur að þeim eru þau kannski uppþornuð. Ég lenti einu sinni í því að eftir hádegi var orðið alveg svakalega heitt og ég kem að vatni sem ég leyfi hestinum að fara út í til að kæla sig. Ég hélt ég myndi ekki ná honum upp úr aftur. Maður varð alltaf að passa hestana gríðarlega vel því annars var manni refsað. T.d. ef púlsinn var ekki farinn niður í 56 slög innan hálftíma fékk maður tímavíti.“

Slóst í för með tveimur öðrum

43 keppendur voru skráðir til leiks, 36 konur og 7 karlar. Í upphafi reið Markús mikið einn en seinni hluta ferðarinnar slóst hann í för með tveimur öðrum keppendum, Sven-Erik Gullbekk frá Noregi og Kris Rugloski frá Bandaríkjunum.

„Sven hafði misst samferðafólk sitt úr leik og var orðinn einn, svo við ákváðum að taka saman. Við hittum Kris síðan aðeins seinna á leiðinni. Ég fékk einn helvíti hressann hest sem rauk endalaust með mig og stakk því Sven af. Þá næ ég Kris en hún hafði verið með öðrum hóp sem var búinn að stinga hana af. Við ríðum saman inn í næstu stöð og Sven-Erik nær okkur þar.“

Markús segist vera einfari að eðlisfari en ákvað að þó að halda hópinn. Það sé ákveðið öryggi að vera með einhverjum ef eitthvað kemur upp á.

„Stundum hefði ég geta farið hraðar yfir þegar ég fékk góðann hest en ég hugsaði bara til hvers? Betra að hafa einhvern með sér ef eitthvað kæmi upp á og þá er það fljótlegra afgreitt. Líka eins og þegar ég lenti á þessum sem ég kom ekki áfram þá hefði verið gott að vera í hópi. Þetta er kannski meira upp og niður þegar maður er einn. Kemst hraðar en ferð síðan kannski hægar á næsta hesti. Nærð meiri stöðugleika þegar þú ert með einhverjum öðrum.“

Markús, Sven-Erik og Kris riðu saman í endamarkið og deildu 15. sætinu.

Sven-Erik, Markús og Kris að koma í endastöðina en þau kláruðu þolreiðina saman og deildu 15. sætinu

Hóf keppni slasaður

Aðspurður hvort keppnin taki meira á líkamlega eða andlega segir Markús ekki geta gert upp á milli. Keppnin hafi tekið á bæði líkamlega og andlega. Viku fyrir keppnina eða áður en Markús ferðaðist út hafði hann dottið af baki þegar hann var að æfa sig og tognaði á innra læri. Segir hann að hann hafi fundið fyrir því fyrstu dagana en síðan hafi hann verið orðinn það verkjaður alls staðar í líkamanum að hann hugsaði ekki út í það.

„Það bjargaði mér líka kannski að hestarnir þarna eru grennri en íslenskir hestar, svo maður situr meira beinn og klofar þá ekki eins mikið.“

Það var þó ekki það eina sem plagaði Markús á leiðinni en eftir stöð 15 fékk Markús svakalega magapest, líklega eitthvað tengt því sem hann hafði borðað og varð fárveikur. Hann kastaði upp, fékk hitakast og missti allann mátt.

„Ég var hálf dauður. Ég lá bara í grasinu tveimur kílómetrum frá næstu stöð og gat hreinlega ekki meir. Læknirinn fann mig liggjandi og neitaði mér að halda áfram. Hann gefur mér tvo poka af vökva í æð, lyf við upp- og niðurgangnum og sýklalyf. Læknirinn var búinn að vera segja við mig að hann ætlaði að fara bara aftur með mig á fyrstu stöðina og ég var farinn að sætta mig við það að þetta væri bara búið. Síðan hressist ég aðeins og hann ákveður að leyfa mér að sofa í stöðinni sem ég var alveg að komast við. Ég náði rosalega góðum svefn, vaknaði reyndar um miðnætti og mundi eftir að hann hafði gefið mér Pepsi-flösku. Ég fálmaði eftir henni í myrkrinu og hún hvarf ofan í mig. Morguninn eftir tók hann öll próf – blóðþrýsting, púls og þvagprufu – og gaf mér rétt svo grænt ljós á að halda áfram. Ég fékk hálftíma víti fyrir að hafa ekki hringt strax í lækninn. Tveir dagar eftir það voru mjög erfiðir, maginn var í algjöru rugli og svo er maður bara á einhverjum brokkurum.“

Eitthvað var um meiðsli og óhöpp meðal annarra keppenda líka og margir þurftu að hætta. „Ein stelpa fékk smábrot í sköflunginn en kláraði samt keppnina með því að stíga bara í annað ístaðið – hún var alveg svakalega hörð,”

Markús var illa kominn eftir að hafa fengið líklegast matareitrun. Hér er læknirinn að huga að honum svo hann gæti haldið keppni áfram.

Gestrisni hirðingjanna stendur upp úr

Markús segir samskiptin við heimamenn og menningin á steppunum sé það sem standi upp úr sem ein dýrmætasta reynslan.

„Fólkið tekur svakalega vel á móti manni. Þau búa í þessum hefðbundnu tjöldum (ger) og bjóða manni alltaf inn. Eitt kvöldið gisti ég hjá manni sem sendi dóttur sína á næsta bæ svo ég gæti fengi rúmið hennar! Morguninn eftir blessaði hann okkur með reykelsi áður en við fórum á bak. Hann fór líka í sykurskálina, mokaði hrúgu af sykri á brauðsneið, hellti heitu kaffi yfir til að mýkja það og rétti okkur. Þegar maður hafði ekki fengið almennilegt kaffi í marga daga var þetta algjör himnasending!“

Keppendur fengur mat í hverri stöð og var mest um lambakjöt og hryssumjólk á boðstólnum.

„Maturinn var fínn og ég er líka vanur að drekka mysu og merarmjólkin var svipuð á bragðið. Þeir eru líka með einhvers konar ost grjótharðan og geymist endalaust; það var gott að vera með hann í vasanum til að narta í. Ég tók líka með mér íslenskt neftóbak og gaf þeim þegar ég tók við hestunum. Þeir eru miklir tóbaksmenn sjálfir og höfðu mjög gaman að því – sumir báðu um meira!“

Markús segir gestrisni heimamanna verið eitt af því sem stóð upp úr eftir þessa ferð.

Myndi gera þetta aftur ef tækifærið býðst

Markús segir reiðhefð mongóla vera frábrugna þeirri íslensku þótt báðar þjóðirnar eigi það sameiginlegt að búa yfir ríkri hefð, harðgerðum hrossakynjum og djúpstæðri tengingu við hestinn. Heimamenn hafa sérstakt lag á hestunum og gaman að fylgjast með þeim meðhöndla hrossin.

„Þeir fara alltaf á bak hægra megin og ríða oftast með aðra hönd á taumi. Ef hestarnir ókyrrast skamma þeir þá eins og hunda og þeir hlýða strax. Ég fékk einn hest sem var með óklippt fax, en venjulega raka þeir faxið á þeim. Heimamenn sögðu mér að þetta væri sérstakur ‚hátíðarhestur‘ sem notaður væri við hefðbundnar athafnir. Hann var með mikið fax og álfafléttur og var hreint ótrúlegur – hann flaug bara áfram á stökki eins og engill!“

Markús Ingi á hátíðarhestinum

Náttúran og dýralífið voru engu lík að sögn Markúsar sem segir landslagið hafa verið eins og risavaxna útgáfu af Íslandi.

„Víðáttumiklar hæðir og sléttur sem breytast hægt. Það var ótrúlega mikið líf í jörðinni; íkornar og skordýr út um allt, ránfuglar sem sveimuðu yfir og svo reið maður fram á úlfalda, jakuxa og geitur.“

Aðspurður hvort hann myndi taka þátt aftur segir Markús svo vera.

„Já, klárlega, ef einhver myndi borga fyrir mig! Þetta kostar sitt, um 18 þúsund dollara (u.þ.b. 2,2 milljónir kr.) aðgangseyrir auk alls búnaðar og ferðakostnaðar. Ef ég færi aftur myndi ég hiklaust stefna á topp fimm. Nú veit maður hvernig allt virkar, maður er búinn að læra meira inn á kortið og hvernig á að velja leiðirnar. Þetta var sturlað ævintýri sem ég mun búa að alla ævi.“

Verðlaunaafhending en eins og áður hefur komið fram endaði Markús Ingi í 15. sæti sem er besti árangur Íslendings í Mongol Derby.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link