Ætla sér stóra hluti með Safír frá Mosfellsbæ

  • 15. október 2026
  • Fréttir

F.v. Cecilia Nancke, Kristján Magnússon, Safír frá Mosfellsbæ, Árni Jökull Árnason, Edda Rún Ragnarsdóttir og Sigurður V. Matthíasson

Safír seldur og fer til Svíþjóðar

Árni Jökull Árnason er nýr eigandi á hinum þekkta stóðhesti Safír frá Mosfellsbæ sem mun halda utan nú á næstunni til Svíþjóðar þar sem Kristján Magnússon mun verða knapi hans og taka við honum til þjálfunar.

Safír er 13. vetra gamall undan Hring frá Fossi og Perlu frá Mosfellsbæ, ræktaður af Marteini Magnússyni en hefur verið í eigu Hollendinga Van Leeuwen og Hofkens nú um nokkura ára skeið. Hann stóð efstur í B-flokki gæðinga á Landsmóti árið 2024, sýndur af Sigurði V. Matthíassyni, hefur hlotið háan kynbótadóm og á Landsmótinu í sumar hlaut hann 1.verðlaun fyrir afkvæmi. Þar keppti á honum Helga Rún Sigurðardóttir og reið honum til B-úrslita í barnaflokki. Hann hefur þá einnig náð góðum árangri í fjórgangi og slaktaumatölti í íþróttakeppni

Blaðamaður Eiðfaxa ræddi við þá Árna og Kristján um kaupin og markmiðin framundan.

„Ætla að verða heimsmeistari“

Aðspurður hver markmiðin með kaupunum séu svarar Kristján strax að bragði: “Ég ætla bara að verða heimsmeistari! En svona að gamni slepptu þá er markmiðið að keppa á honum á komandi keppnistímabili með það að markmiði að komast í sænska landsliðið fyrir HM á næsta ári.”

Árni Jökull segir aðdragandann ekki hafa verið langan: „Þetta er hugmynd sem Stjáni kom til mín með fyrir mánuði síðan. Hugmyndin var þá ekkert endilega að stefna á heimsmeistaramót með hann, heldur að kaupa hestinn, nota hann til ræktunar og svo framvegis. Svo fékk ég eiginlega þá hugmynd að Kristján myndi gera atlögu að heimsmeistaratitli á honum – og hann var til í það!“

Sigurður Vignir Matthíasson fagnar sigri á Safír frá Mosfellsbæ á LM2024

Draumahestur

Kristján hafði áður prófað hestinn og hreifst mjög af honum: „Hesturinn er náttúrulega alveg rosalega vel þjálfaður. Það að kaupa hann er eiginlega bara eins og maður segir á slæmri íslensku “no-brainer.” Ég held að það sé bara ekkert til hestur sem er meira heimsmeistaraefni.“ Kristján gerir ráð fyrir að keppa á honum í fjórgangi og bendir á að hesturinn fari utan strax í næstu viku. Sigurður Vignir Matthíasson mun koma að kennslu og leiðsögn þegar Safír er kominn út.

Safír hefur vakið mikla athygli hér heima fyrir afkvæmi sín og gerir Árni fastlega ráð fyrir því að mikil eftirspurn verði eftir honum sem ræktunar hesti erlendis:

„Ég geri fastlega ráð fyrir því að hann verði einn af vinsælustu ræktunar hestunum í Evrópu. Ef Stjáni sýnir hann vel og gengur vel með hann. Það er erfitt að finna betri hest og ég held að hann tali bara fyrir sig sjálfur.“

Báðir eru þeir félagar sammála um að markmiðin séu skýr og að lagt sé af stað af fullum krafti.
„Við erum allavegana þannig að við erum báðir í þessu af heilum hug. Þó að ég sé á baki á honum, þá á Árni stóran hlut að máli. Ef maður er ekki með markmið, þá getur maður gleymt þessu. Markmiðin eru háleit og svo bara sér maður hvað setur,“ sagði Kristján að lokum.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link