Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Mynd frá LM á Hólum í Hjaltadal í sumar. Ljósmynd: Landsmót
Í tugi ára hefur verið tekist á um staðsetningu Landsmóts hestamanna og sýna tillögur fyrir 65. landsþing Landssambands hestamannafélaga (LH), sem fer fram í Hveragerði dagana 30. og 31. október, að þeim átökum er ekki lokið.
Ein athyglisverðasta tillagan sem lögð hefur verið fram á vef LH undir dagskrárliðnum um breytingar á reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót, ber heitið „Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað“ og miðar að því að binda enda á flakk með Landsmót á milli staða á landinu.
Að tillögunni standa hestamannafélögin fimm á höfuðborgarsvæðinu; Fákur, Sprettur, Sörli, Hörður og Sóti. Markmið þeirra er að landsþing samþykki stefnu um að finna mótinu einn framtíðarstað sem uppfyllir kröfur samtímans um aðstöðu fyrir gesti, keppendur og keppnis- og sýningarhross.
Verði tillagan samþykkt fær stjórn LH það hlutverk að:
- Skipa starfshóp til að skilgreina hlutlæg og mælanleg viðmið um framtíðarstað.
- Tryggja aðkomu keppenda, mótshaldara og sérfræðinga í dýravelferð, uppbyggingu mannvirkja og rekstri stórviðburða.
- Meta mögulega staði út frá þessum viðmiðum í opnu og gagnsæju ferli.
- Kynna niðurstöður á formannafundi 2027 og leggja lokatillögu fyrir landsþing 2028 til ákvörðunar.
Í greinargerð með tillögunni kemur fram að meginástæða þessarar kröfu sé velferð hrossa, auknar kröfur til mótahalds og vinnuálag á keppendur og aðstoðarfólk þeirra. Bent er á að í dag sé gerð krafa um að hvert hross hafi sína stíu og viðrunaraðstöðu. Skortur á hesthúsplássi á og við mótssvæði hafi oft leitt til þess að flytja þurfi hross langar vegalengdir daglega. Þetta skapar óþarfa álag á hestana og dregur úr jafnræði á milli keppenda.
Jafnframt er bent á ríkari kröfur frá mótsgestum um almenna þjónustu á borð við fjölbreytta gistingu, hreinlætisaðstöðu, aðgang að baðstöðum og rafbílahleðslur, sem og skýra umhverfisstefnu með færri og styttri flutningum.
Flutningsmenn færa rök fyrir því að fjárfesting í uppbyggingu nýtist illa og dreifist um of þegar mótið er fært á milli staða og hver og einn fær mótið aðeins á nokkura ára fresti. Með einum föstum landsmótsstað skapist forsendur fyrir markvissri langtímauppbyggingu sem nýtist innviðum íslenskrar hestamennsku til framtíðar, líkt og þekkist með fasta heimavelli í öðrum íþróttagreinum. Tekið er þó fram að eldri samningar um mótshald verði virtir, þannig að fastur staður tæki ekki gildi fyrr en við fyrsta mót sem ekki hefur nú þegar verið úthlutað.
Saga Landsmóta spannar yfir sjö áratugi þar sem mótið hefur sögulega flakka á milli nokkurra mótsstaða. Fyrsta mótið fór fram á Þingvöllum árið 1950, en síðan hefur það verið haldið á Þveráreyrum, Skógarhólum (Við Þingvelli), Melgerðismelum, Vindheimamelum, Hellu, Reykjavík og Hólum í Hjaltadal, þar sem síðasta mót var haldið nú í ár, 2026.
Frá árinu 2012 hafa Landsmótsstaðirnir eingöngu verið þrír þ.e. Reykjavík, Hella og Hólar í Hjaltadal.
Elli Sig lætur gamminn geisa
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Spretts