Ungknapar keppa í fjórgangi
Katla Sif Snorradóttir og Gustur frá Stykkishólmi.
Þriðja mótið í Meistarakeppni æskunnar og Íshesta verður haldið sunnudaginn 19. apríl nk. í Sprettshöllinn á Kjóavöllum.
„Keppt verður í fjórgangi í barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki og er mótið opið fyrir alla í þessum aldursflokkum. Keppnisfyrirkomulagið er V3, þar að sem eru 3 inn á í einu og riðið eftir þul, hægt til milliferðar tölt, brokk, fet, stökk svo milliferðar til greitt tölt. Ekki þarf að taka það fram að fylgt er keppnisreglum LH varðandi keppnisbúnað og járningarreglur.
Skráning fer fram á Sportfengur.com og lýkur föstudagskvöldið 17. apríl. Nánari dagskrá og ráslistar verða svo birtir á laugardeginum. Skráningargjald er aðeins kr. 500.
Þegar skrá á keppandia þarf að velja „Aðrir“ sem hestamannafélag og í atburð velja Meistarkeppni Æskunnar og Íshesta. Ekki verður tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.
Mótið hefst seinnipartinn á sunnudaginn (fer eftir skráningafjölda hvenær það hefst) og áætluð mótslok eru kl. 19:00 er úrslit klárast. Mótið er sjálfstætt sem slíkt en einnig er það liður í mótaröð Meistarakeppni Æskunnar og Íshesta og munu stigahæstu knaparnir verða svo verðlaunaðir í lok Meistarakeppninnar.
Eitt mót er eftir, fimmgangur, og það verður haldið þann 26. apríl í Fáki (keyrt með Líflandsmótinu),“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH