Hestamannafélagið Sprettur Þórunn Helga Sigurðardóttir er nýr framkvæmdastjóri Spretts

  • 21. september 2024
  • Fréttir
Alls sóttu 12 einstaklingar um starfið

Stjórn hestamannafélagsins Spretts gekk í gær frá ráðningu á Þórunni Helgu Sigurðardóttur sem nýjum framkvæmdastjóra félagsins, og mun Þórunn hefja störf mánudaginn 23. september.

Þórunn er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands ásamt því að hafa tekið nám hjá Yale í stjórnun og markaðsmálum og lært leiðtogafræði í Barcelona. Hún er því talsvert menntuð á sviði fjármála, markaðsmála og stjórnunar ásamt því að hafa tekið fjöldann allan af námskeiðum sem styðja hana í starfinu. Þórunn hefur starfað sem framkvæmdastjóri verktakafyrirtækis undanfarið, áður sinnti hún sölu og markaðsmálum hjá þyrluþjónustu og jafnframt starfaði hún í sölu og markaðsmálum fyrir Bláa Lónið í um 11 ára skeið.

Þórunn gæti verið einhverjum Spretturum kunn, en hún stundaði sína hestamennsku í Spretti fram til ársins 2021 og hefur setið á skólabekk í Reiðmanninum með einhverjum Spretturum.

Þórunn mætir á félagsfundinn miðvikudaginn 25. september og kynnir sig fyrir félagsmönnum.

Vonandi taka allir Sprettarar vel á móti Þórunni og gefa henni tækifæri til að stýra félaginu áfram veginn.

Alls sóttu 12 einstaklingar um starfið. Það bárust mjög góðar umsóknir sem er ánægjuleg staða fyrir stjórn að hafa úr fjölbreyttum og hæfum umsækjendum að velja.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar