Opið fyrir umsóknir í Vesturlandsdeildina

Aðalfundur Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum verður haldinn 22. október og verða þar lagðar línur fyrir veturinn.

„Fyrir liggur að hægt verður að bæta við amk. tveimur liðum. Er því auglýst eftir áhugasömum sem vilja stilla upp liði og taka þátt í deildinni.“

Keppt er í fimm greinum (V1, T2, F1, T1 og skeið í gegn) á fjórum þriðjudagskvöldum og er keppt í Faxaborg. Stigahæsta lið er verðlaunað eftir hverja keppni en svo í lokin stendur eitt lið uppi sem samanlagður sigurvegari og einn knapi sem stigahæsti knapinn.

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við einhvern stjórnarmanna deildarinnar eða senda póst á [email protected].

Reiðhallarþakið orðið að raforkuveri

Á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið tekið í notkun umfangsmikið birtuorkukerfi á þaki reiðhallarinnar. Kerfið samanstendur af 340 birtusellum með 172 kW uppsettu hámarksafli og rafhlöðugeymslu sem rúmar 253 kWh. Áætlað er að kerfið framleiði um 115–120 þúsund kílóvattstundir (kWh) af raforku á ári.

Að sögn Geirs Sveinssonar hjá Ljósorku er þetta stærsta birtuorkukerfi sem sett hefur verið upp á Íslandi til þessa, eftir því sem fyrirtækið best veit.

Verkefnið vekur jafnframt spurningar um hvort eigendur fleiri reiðhalla, tamningastöðva og stærri hesthúsa geti nýtt þakfleti til eigin raforkuframleiðslu og þannig lækkað rekstrarkostnað.

Vaxandi rekstur kallaði á nýjar lausnir

Á Lýsuhóli reka Jóhanna Ásgeirsdóttir og Agnar Gestsson fjölskyldufyrirtæki sem hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Þar hafa verið byggð reiðhöll og hótel auk þess sem sumarbústöðum hefur verið fjölgað. Í dag eru um 130 hross á staðnum og þar er rekin fjölbreytt ferðaþjónusta samhliða búskapnum.

Með auknum umsvifum hefur raforkunotkunin einnig aukist. Lýsuhóll er á köldu svæði þar sem ekki er aðgangur að hitaveitu og raforka er því meðal annars notuð til húshitunar.

„Með auknum umsvifum jókst rafmagnsnotkunin og rafmagnsreikningurinn varð mjög hár. Við fórum því að skoða hvernig við gætum framleitt meiri orku sjálf og gert reksturinn umhverfisvænni og sjálfbærari,“ segja Jóhanna og Agnar.

Þau skoðuðu möguleika á að nýta vindorku og vatnsorku sem gætu komið til greina síðar, en ákváðu að byrja á því að nýta stóran þakflöt reiðhallarinnar.

Jóhann, tilvonandi tengdasonur þeirra frá Þýskalandi er menntaður orkuverkfræðingur og nýttist þekking hans vel við undirbúning verkefnisins.

Raforkan nýtist allri starfseminni

Þótt birtusellurnar séu á þaki reiðhallarinnar er kerfið ekki eingöngu ætlað henni. Markmiðið er að framleidd raforka nýtist starfseminni á Lýsuhóli sem best og dragi úr þörfinni fyrir að kaupa raforku af dreifikerfinu.

Ljósorka sá um heildarhönnun kerfisins, val og útvegun búnaðar og undirbúning framkvæmdarinnar. Fyrirtækið Rafbox annaðist uppsetningu og tengingar á snjallorkukerfi frá Sigenergy sem stýrir raforkuframleiðslu, orkugeymslu og nýtingu raforkunnar.

„Snjallorkustýringin frá Sigenergy samhæfir sjálfvirkt raforkuframleiðslu, orkugeymslu og notkun þannig að hægt sé að nýta sem mest af framleiddu rafmagni á staðnum,“ útskýrir Geir.

Geir segir áætlaða ársframleiðslu vera 115–120 þúsund kWh. Heildarraforkunotkun Lýsuhóls undanfarin ár hafi verið ríflega tvöföld sú raforka sem kerfið er áætlað að framleiði.

Þótt kerfið hafi ekki verið komið í fulla virkni fyrr en um miðjan september framleiddi það tæplega 5.000 kWh þann mánuð. Yfir 95% framleiðslunnar nýttust á staðnum.

„Það sem skiptir þó jafnvel meira máli en heildarframleiðslan er hversu mikið af rafmagninu tekst að nýta beint á staðnum. Þar kemur orkugeymslan mjög sterkt inn. Í stað þess að senda umframorku út á dreifikerfið þegar framleiðslan er mest er hægt að geyma hana og nota síðar sama dag eða um kvöldið,“ segir Geir.

Hvernig nýtist kerfið yfir veturinn?

Ein helsta spurningin varðandi birtuorku á Íslandi er hvernig kerfin nýtast yfir dimmustu mánuði ársins þegar raforkunotkun getur verið mikil en dagsbirtan takmörkuð.

Geir segir mikilvægt að gera sér grein fyrir því að raforkuframleiðslan sé lítil yfir háveturinn.

„Birtuorka á Íslandi er ekki lausn þar sem við framleiðum í júlí og geymum rafmagnið í rafhlöðu fram í desember. Rafhlöðurnar eru fyrst og fremst til þess að færa orku milli klukkustunda og daga, ekki árstíða.“

Hann bendir þó á að birtusellur nýti bæði beina sólargeislun og dreifða dagsbirtu og geti því framleitt raforku þótt skýjað sé. Framleiðslan sé minni við slíkar aðstæður en langir dagar yfir vor og sumar skapi góð tækifæri til raforkuframleiðslu. Köld hitastig séu jafnframt hagstæð fyrir nýtni sellanna.

Geir kýs að nota orðið birtusellur fremur en sólarsellur þar sem það lýsi betur hvernig tæknin virkar við íslenskar aðstæður.

Jóhanna og Agnar segja kerfið hafa reynst vel fyrstu vikurnar og allt gengið samkvæmt áætlun. Enn eigi þó eftir að koma í ljós hvernig það skilar sér yfir heilt ár.

Reiðhöllin á Lýsuhóli með birtusellum á þakinu. Mynd: Unnsteinn Fannar Ingólfsson.

Fjárfesting til lengri tíma

Hagkvæmni birtuorkukerfa ræðst meðal annars af raforkunotkun, stærð og staðsetningu kerfisins, stofnkostnaði og því hversu stóran hluta framleiðslunnar eigandinn getur nýtt sjálfur.

Jóhanna og Agnar telja að fjárfestingin á Lýsuhóli geti borgað sig upp á um sjö árum miðað við þær forsendur sem þau hafa lagt til grundvallar.

Geir segir að hagkvæmniútreikningar Ljósorku fyrir verkefnið hafi sýnt áætlaðan uppgreiðslutíma á bilinu sjö til átta ár, eftir því hvaða forsendur séu notaðar.

Hann leggur áherslu á að horfa þurfi til lengri tíma.

„Birtusellurnar eru hannaðar fyrir 25–30 ára rekstur og jafnvel lengur, og þær LONGi sellur sem við notum eru með 30 ára framleiðsluábyrgð.“

Geir segir eigin nýtingu raforkunnar sérstaklega mikilvæga fyrir hagkvæmnina. Raforka sem framleidd er og notuð á staðnum komi í stað raforku sem annars þyrfti að kaupa, ásamt tilheyrandi dreifingar- og öðrum gjöldum.

Endanlegur sparnaður á Lýsuhóli liggur þó ekki fyrir þar sem kerfið hefur aðeins verið í notkun í stuttan tíma.

Rafhlöður ekki alltaf nauðsynlegar

Að sögn Geirs er alls ekki nauðsynlegt að rafhlöðugeymsla fylgi öllum birtuorkukerfum.

„Ef rekstur notar mikið rafmagn á sama tíma og sellurnar eru að framleiða getur einfalt kerfi án rafhlöðu verið mjög hagkvæmt.“

Rafhlöður geti hins vegar aukið eigin nýtingu raforkunnar, geymt umframframleiðslu fram á kvöld og hjálpað til við að draga úr kostnaðarsömum afltoppum.

Með réttum búnaði og uppsetningu geti kerfin einnig nýst sem varaafl við rafmagnsleysi svo lengi sem næg orka sé í rafhlöðunum eða berist frá birtusellunum. Það geti skipt verulegu máli í umfangsmiklum rekstri þar sem rafmagnsleysi veldur truflunum eða jafnvel tjóni.

Gæti þetta hentað stærri hesthúsum?

Geir telur að birtuorka geti verið áhugaverður kostur fyrir stærri hesthús og tamningastöðvar en segir mikilvægt að byrja á að skoða raforkunotkunina fremur en stærð þaksins.

Á 800–1.000 fermetra þaki gæti tæknilega verið pláss fyrir kerfi með vel yfir 100 kW uppsettu hámarksafli en það þýði ekki að svo stórt kerfi sé hagkvæmast.

„Ef ársnotkun hússins réttlætir aðeins 40 eða 60 kWp kerfi væri lítil skynsemi í að setja upp 150 kWp eingöngu vegna þess að plássið væri til staðar.“

Við hönnun þurfi meðal annars að skoða halla og stefnu þaks, burðarþol, skuggamyndun, vind- og snjóálag og hvernig raforkunotkun dreifist yfir sólarhringinn og árið.

„Við hjá Ljósorku getum metið mögulega ársframleiðslu út frá staðsetningu og aðstæðum á hverjum stað, reiknað út stofnkostnað og áætlaðan sparnað og þannig hjálpað fólki að sjá hvort fjárfestingin sé hagkvæm,“ segir Geir.

Á Lýsuhóli eru til að mynda báðar hliðar reiðhallarþaksins nýttar þótt þær snúi í suðaustur og norðvestur. Það geti stuðlað að jafnari raforkuframleiðslu yfir daginn.

Geir segir Lýsuhól fyrsta verkefni Ljósorku af þessari stærðargráðu sem tengist sérstaklega hestamennsku en fyrirtækið hafi komið að öðrum birtuorkuverkefnum og fleiri séu í undirbúningi.

Birtusellurnar séðar eftir endilöngu reiðhallarþakinu. Mynd: Unnsteinn Fannar Ingólfsson

Stór þök geta orðið lítil orkuver

Jóhanna og Agnar telja að sambærileg lausn geti hentað öðrum reiðhöllum, tamningastöðvum og stærri hesthúsum, sérstaklega þar sem raforkunotkun er mikil. Þau leggja þó áherslu á að meta þurfi aðstæður á hverjum stað.

Geir tekur í sama streng og telur að áhugi á birtuorku muni aukast á næstu árum, meðal annars vegna tækniframfara og aukinna möguleika á orkugeymslu.

„Á sama tíma eru víða í íslenskum landbúnaði gríðarlega stór þök sem í dag standa ónýtt. Fyrir mér er mjög rökrétt að byrja að líta á þessi þök sem möguleg lítil orkuver.“

Ráð hans til þeirra sem vilja kanna möguleikana eru einföld:

„Byrjið ekki á spurningunni ‚hversu margar sellur komast á þakið?‘ Byrjið á ‚hversu mikla orku nota ég og hvenær nota ég hana?‘“

Á Lýsuhóli verður næsta skref að fylgjast með raforkuframleiðslu kerfisins í gegnum allar árstíðir. Fyrst að loknu heilu rekstrarári verður hægt að meta með meiri vissu hversu stórum hluta raforkuþarfar það annar og hvaða sparnaði fjárfestingin skilar í reynd. Fyrstu niðurstöður lofa þó góðu.

Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing

Í tugi ára hefur verið tekist á um staðsetningu Landsmóts hestamanna og sýna tillögur fyrir 65. landsþing Landssambands hestamannafélaga (LH), sem fer fram í Hveragerði dagana 30. og 31. október, að þeim átökum er ekki lokið.

Ein athyglisverðasta tillagan sem lögð hefur verið fram á vef LH undir dagskrárliðnum um breytingar á reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót, ber heitið „Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað“ og miðar að því að binda enda á flakk með Landsmót á milli staða á landinu.

Að tillögunni standa hestamannafélögin fimm á höfuðborgarsvæðinu; Fákur, Sprettur, Sörli, Hörður og Sóti. Markmið þeirra er að landsþing samþykki stefnu um að finna mótinu einn framtíðarstað sem uppfyllir kröfur samtímans um aðstöðu fyrir gesti, keppendur og keppnis- og sýningarhross.

Verði tillagan samþykkt fær stjórn LH það hlutverk að:

  • Skipa starfshóp til að skilgreina hlutlæg og mælanleg viðmið um framtíðarstað.
  • Tryggja aðkomu keppenda, mótshaldara og sérfræðinga í dýravelferð, uppbyggingu mannvirkja og rekstri stórviðburða.
  • Meta mögulega staði út frá þessum viðmiðum í opnu og gagnsæju ferli.
  • Kynna niðurstöður á formannafundi 2027 og leggja lokatillögu fyrir landsþing 2028 til ákvörðunar.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að meginástæða þessarar kröfu sé velferð hrossa, auknar kröfur til mótahalds og vinnuálag á keppendur og aðstoðarfólk þeirra. Bent er á að í dag sé gerð krafa um að hvert hross hafi sína stíu og viðrunaraðstöðu. Skortur á hesthúsplássi á og við mótssvæði hafi oft leitt til þess að flytja þurfi hross langar vegalengdir daglega. Þetta skapar óþarfa álag á hestana og dregur úr jafnræði á milli keppenda.

Jafnframt er bent á ríkari kröfur frá mótsgestum um almenna þjónustu á borð við fjölbreytta gistingu, hreinlætisaðstöðu, aðgang að baðstöðum og rafbílahleðslur, sem og skýra umhverfisstefnu með færri og styttri flutningum.

Flutningsmenn færa rök fyrir því að fjárfesting í uppbyggingu nýtist illa og dreifist um of þegar mótið er fært á milli staða og hver og einn fær mótið aðeins á nokkura ára fresti. Með einum föstum landsmótsstað skapist forsendur fyrir markvissri langtímauppbyggingu sem nýtist innviðum íslenskrar hestamennsku til framtíðar, líkt og þekkist með fasta heimavelli í öðrum íþróttagreinum. Tekið er þó fram að eldri samningar um mótshald verði virtir, þannig að fastur staður tæki ekki gildi fyrr en við fyrsta mót sem ekki hefur nú þegar verið úthlutað.

Saga Landsmóta spannar yfir sjö áratugi þar sem mótið hefur sögulega flakka á milli nokkurra mótsstaða. Fyrsta mótið fór fram á Þingvöllum árið 1950, en síðan hefur það verið haldið á Þveráreyrum, Skógarhólum (Við Þingvelli), Melgerðismelum, Vindheimamelum, Hellu, Reykjavík og Hólum í Hjaltadal, þar sem síðasta mót var haldið nú í ár, 2026.

Frá árinu 2012 hafa Landsmótsstaðirnir eingöngu verið þrír þ.e. Reykjavík, Hella og Hólar í Hjaltadal.

 

Fyrsta bandaríska meistaramótið tókst vel

Mótið fór fram á Harmony Icelandics búgarðinum í Iowa og komu þátttakendur um langan veg, allt frá bæði austur- og vesturströnd Bandaríkjanna t.d. sem er um þriggja daga akstur. Dagana fyrir mótið fóru fram ýmsir fræðsluviðburðir og þjálfun fyrir bandaríska landsliðið og er áhuginn mikill. Ekki er laust við að Íslendingurinn kími þegar hugsað er til kvartana hér heima yfir því að mót séu haldin hinum megin á landinu, sem er þó aldrei nema nokkurra klukkustunda akstur.

Mótið fór fram á Harmony Icelandics búgarðinum í Iowa, hér má sjá hringvöllinn á svæðinu. Mynd: Hulda G. Geirsdóttir

Þátttaka á mótinu var góð, en boðið var upp á keppni í öllum hefðbundnum greinum, bæði í World ranking flokkum og léttari flokkum. Þarna mátti því sjá þverskurð bandarískra knapa, allt frá landsliðsknöpum í fremstu röð yfir í byrjendur að stíga sín fyrstu skref í keppni.

Gaman var að sjá fjölbreytni í keppnisgreinum, en auk hefðbundinnar keppni var boðið upp á flokka fyrir svokallaða „græna“ hesta í keppni og knapa sem eru byrjendur. Þá eru aðeins langhliðar dæmdar. Einnig svokallað „pleasure tölt“ þar sem leitað er að þeim reiðhesti sem virðist þægilegastur og skemmtilegastur til útreiða. Þá má einnig nefna liðakeppni í fjórgangi sem er mjög vinsæl, en hún fer þannig fram að fjórir knapar eru saman í liði, hver sýnir eina gangtegund og svo er það samanlagður árangur liðsins sem gildir.

Ásta Dögg Bjarnadóttir-Covert gerði góða ferð með hest sinn Gíg frá Ketilsstöðum, þau unnu bæði tölt með 8.11 og fjórgang með 7.90 og urðu samanlagðir fjórgangsmeistarar. Næst henni varð svo Caeli Cavanagh á Dimmu frá Feti en þær hlutu 7,83 í tölti og 7.03 í fjórgangi. Bæði þessi pör kepptu fyrir hönd Bandaríkjanna á síðasta heimsmeistaramóti og reikna má með að þær stefni aftur á HM enda bæði hrossin í mikilli framför og góðu formi. Lucy Nold tók svo bronsið í bæði tölti og fjórgangi á Vindi frá Dalalíf sem er ræktaður í Bandaríkjunum. Öll nánari úrslit mótsins er að finna í Icetest appinu.

Lucy Nold á Vindi frá Dalalíf. Mynd: Susan K. Eleeson

World Ranking mót hafa verið haldin víðsvegar um Bandaríkin undanfarin ár, en þetta er í fyrsta sinn sem bandarísku samtökin standa að mótinu undir merkjum Bandaríkjameistaramóts. Fyrirkomulag mótsins var tvískipt, fyrst var boðið upp á eins dags mót þar sem aðeins var riðin forkeppni og svo tveggja daga mót þar sem riðin var bæði forkeppni og úrslit. Gestir og þátttakendur voru almennt á því að vel hefði til tekist og það væri mikill heiður að geta hampað Bandaríkjameistaratitli. Unnið hefur verið markvisst að því að styrkja og byggja upp öflugt landslið og má reikna með að Ameríkanar sendi góðan hóp á HM í Þýskalandi nk. sumar.

Eiðfaxi óskar Bandaríkjamönnum til hamingju með sitt fyrsta meistaramót!

Gleði ríkti á mótinu Mynd: Hulda G. Geirsdóttir

Elli Sig lætur gamminn geisa

Erling Ó. Sigurðsson hóf íþróttaferilinn í boltaíþróttum og lék m.a. í meistaraflokki í handbolta áður en hann snéri sér alfarið að hestaíþróttunum. Þar hefur hann komið víða við og keppt í nánast öllu sem til er, m.a. hindrunarstökki, en þekktastur er hann þó líklega fyrir afrek sín á skeiðbrautinni.

Elli hefur aldrei legið á skoðunum sínum, vill helst ekki ríða með hjálm og mætti einu sinni með tvo píska í keppni – af því það var ekkert sem bannaði það!

Elli Sig er næsti gestur í viðtalsþættinum ,,Á mannlegum nótum” þar sem Hulda Geirsdóttir ræðir við hann um fjölbreyttan feril, lífið og tilveruna í hressandi spjalli í kvöld kl 20:00 á EiðfaxaTV.

 

 

Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Spretts

Nú er undirbúningur komin á fullt fyrir nýtt keppnisár í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts. Opnað hefur verið fyrir umsóknir og þurfa öll lið sem hafa áhuga á að taka þátt að skila inn umsókn fyrir 1. nóvember næstkomandi. Umsóknir skulu berast á e-mail ahugamannadeild(hja)sprettur.is og skulu innihalda nöfn fimm knapa liðsins auk kennitölu þeirra og starfheitis. Þar að auki þjálfara, heiti liðs og kennitölu greiðanda liggi það fyrir. Þátttökugjald fyrir hvert lið er 250.000 ISK.

Í Áhugamannadeildinni 2027 verða að hámarki 14 lið. 12 efstu liðin frá síðasta keppnistímabili öðlast keppnisrétt en þurfa hins vegar að sækja um til að staðfesta þátttöku.  3 knapar úr hverju liði hafa þátttökurétt í hverri grein.

Sjá lið 7 úr reglum Áhugamannadeildarinnar um inngönguskilyrði:

„7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði

7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.

7.2 Þáttökuréttur í Áhugamannadeildinni ákvarðast af reglum LH um þáttökurétt í Áhugamannamóti Íslands, aðgengileg á heimasíðu LH.

7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.

7.5 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta síðustu 3 ár.

7.8 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði.“

Sjá neðst allar reglur Áhugamannadeildarinnar

12 efstu liðin frá síðasta ári eru eftirfarandi, í stafrófsröð:
ath að liðin þurfa að staðfesta þátttöku með e-mail á ahugamannadeild(hja)sprettur.is eins og önnur lið sem sækja um.

Fossvélar
Frosti
Hótel Rangá
JBT Marel & Tommy Hilfiger
Lið Spesíunnar
Nýsmíði
Rembrandt
Réttverk
Stafholthestar
Sveitin
Trausti
Vestlendingarnir

 

Dagsetningar 2026 – Birt með fyrirvara um breytingar

Fjórgangur – föstudaginn 26. febrúar kl. 18:30
Slaktaumatölt – fimmtudaginn 18. mars kl. 18:30
Fimmgangur – fimmtudaginn 1. apríl kl. 18:00
Tölt – fimmtudaginn 15. apríl kl. 18:30
Skeið og lokahóf laugardaginn 24. apríl

Meðfylgjandi eru allar leikreglur Áhugamannadeildarinnar

Leikreglur_Ahugamannadeildar_Spretts

Opið fyrir umsóknir í Suðurlandsdeildina

Suðurlandsdeildin hóf göngu sína árið 2017 og er samstarfsverkefni Rangárhallarinnar og Hestamannafélagsins Geysis. Keppnin fer fram í Rangárhöllinni á fjórum kvöldum:

Dagsetning

23. febrúar Parafimi og slaktaumatölt (T4)

9. mars Fjórgangur (V2)

23. mars Fimmgangur (F2)

6. apríl Tölt (T3) og skeið í gegnum höllina

Umsóknir nýrra liða

Hvert lið er skipað 2–3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Keppendur skulu ná að minnsta kosti 18 ára aldri á keppnisárinu.

  • Atvinnumenn: Allir keppendur sem uppfylla aldurs- og inngönguskilyrði deildarinnar mega keppa sem atvinnumenn.
  • Áhugamenn: Keppandi má ekki hafa keppt í meistaraflokki síðastliðin tvö ár. Ungmenni sem hafa keppt í meistaraflokksgreinum (V1, F1, T1 eða T2) á Íslandsmóti eða sambærilegum mótum erlendis síðastliðin tvö ár skulu keppa sem atvinnumenn.

Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður, en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur lokaákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngönguskilyrði deildarinnar, þar á meðal skilyrði til að keppa sem áhugamenn.

Allir skráðir knapar skulu keppa að minnsta kosti einu sinni, annars verða 50 stig dregin af liðinu.

Suðurlandsdeildin er fyrst og fremst liðakeppni og verða þrjú stigahæstu liðin verðlaunuð. Jafnframt fer fram einstaklingskeppni þar sem stigahæsti atvinnumaðurinn og stigahæsti áhugamaðurinn verða verðlaunaðir. Reglur um stigagjöf í Suðurlandsdeild eru aðgengilegar á síðu Rangárhallarinnar.

Þátttökugjald er 230.000 kr. Innifalið er skráningargjald á alla viðburði deildarinnar og fjórir æfingatímar í Rangárhöllinni, ein klukkustund í senn.

Umsóknir skulu sendar á [email protected], ásamt upplýsingum um liðsmenn, eigi síðar en 8. nóvember 2026.

Lið með keppnisrétt

Eftirtalin lið eiga keppnisrétt og þurfa einnig að staðfesta þátttöku sína á [email protected] eigi síðar en 8. nóvember 2026:

  • Árbakki / Árbæjarhjáleiga
  • Bakkakot
  • Hestefli
  • Húsasmiðjan
  • Kastalabrekka
  • Krappi
  • Miðkot / Skeiðvellir
  • Raflagnaþjónusta Selfoss
  • Vöðlar / Snilldarverk
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar

Stjórnin helst óbreytt frá fyrra ári. Eftirtalin skipa stjórn fyrir keppnistímabilið 2027:

  • Hekla Katharína Kristinsdóttir, formaður
  • Þorgerður Guðmundsdóttir
  • Guðmundur Björgvinsson
  • Rebekka Rut Leifsdóttir Söring
  • Viktor Sigurbjörnsson

Nánari upplýsingar og reglur deildarinnar eru á vef Rangárhallarinnar. Fyrirspurnir má senda á [email protected].

Rýnihópur um framtíðarsýn Landsmóta

Í framhaldi af stefnumótunarvinnu LH fyrir árin 2026–2030, sem unnin var á síðasta ári, hefur stjórn LH ákveðið að hefja rýnivinnu um framtíð Landsmóta en þetta kemur fram á vef LH.

„Landsmót hefur verið haldið frá árinu 1950 og byggir á sterkum hefðum. Landsmót er fjöregg okkra hestamanna og mikilvægt að rýna og þróa viðburðinn. Nokkur ár eru liðin frá því sambærileg vinna fór fram. Hagsmunaaðilar eru margir og skoðanir ólíkar á því hvert skuli stefna.“

Markmið verkefnisins er að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Landsmót; hvert það eigi að stefna, hvað vel sé gert og hvað megi bæta. Meginspurningin er: Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?

Skipaður verður sjö manna stýrihópur, jafnframt verða kallaðir saman minni rýnihópar hagsmunaaðila, svo sem keppenda, sjálfboðaliða, mótshaldara, áhorfenda og gesta, hestamannafélaga og samstarfsaðila.

Utanaðkomandi verkefnastjóri hefur verið fenginn til að stýra vinnunni, Ragnhildur H. Magnúsdóttir, ráðgjafi.

Fyrsti rýnihópurinn sem skipaður verður fulltrúum hestamannafélaga, kemur saman á Landsþingi. Stefnt er að því að framtíðarsýn Landsmóta liggi fyrir áður en næstu óúthlutuðu Landsmótum verður úthlutað.

Beit eykur kolefni í jarðvegi

Meira kolefni mælist í jarðvegi þar sem beit er samfelld heldur en á svæðum sem friðuð hafa verið. Niðurstöður nýrrar vísindarannsóknar ganga þvert á þá ríkjandi hugmyndafræði að beit sé skaðleg fyrir vistkerfi og sýna að beitin gegnir lykilhlutverki í að viðhalda fjölbreytileika úthagans. Frá þessu er greint á vefsíðu Háskóla Íslands.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar vísindamanna við Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands ásamt innlendum og erlendum samstarfsstofnunum sýna að marktækt meira kolefni mælist í jarðvegi á beittu landi en á svæðum sem verið hafa friðuð fyrir beit. Rannsóknin, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis, birtist nýverið í hinu virta vísindatímariti Global Change Biology Communications.

Þessar niðurstöður eru sérstaklega athyglisverðar fyrir hestamenn og bændur, enda hefur umræðan undanfarna áratugi oft einkennst af þeirri afstöðu að beit sé að mestu til trafala eða beinlínis skaðleg íslenskum vistkerfum.

Ríkjandi hugmyndafræði dregin í efa

„Síðastliðna áratugi hefur þeirri hugmyndafræði verið haldið mjög á lofti hérlendis að beit sé skaðleg bæði plöntum og vistkerfum og friðun úthaga fyrir beit hefur verið ein af megináherslum í náttúruvernd á Íslandi. Fáar rannsóknir hafa hins vegar verið gerðar á áhrifum beitar á plöntur og vistkerfi hérlendis,“ segir Anna Guðrún Þórhallsdóttir, prófessor í náttúruauðlindum við Háskóla Íslands og einn höfunda rannsóknarinnar.

Rannsóknin sýnir að sú nálgun að útiloka beit sé ekki endilega rétta leiðin þegar kemur að kolefnisbúskap og verndun vistkerfa.

Úthaginn hverfur án beitar

Anna Guðrún bendir á að erlendar rannsóknir síðustu tveggja áratuga sýni að úthagi ,óplægt og óræktað beitiland, hverfi ef dýr beita það ekki, og að trjákenndur gróður taki þá yfir.

Á Íslandi er að finna víðáttumesta úthaga í allri Norður-Evrópu, sem að mestu samanstendur af gras- og mólendi. „Graslendi og mólendi eru vistgerðir sem er viðhaldið með beit, slætti eða bruna. Ef þessara þátta nýtur ekki við þá taka runnar og trjákenndur gróður yfir,“ segir Anna Guðrún.

Beit sem náttúruvernd

Þegar úthagi víkur fyrir trjákenndum gróðri getur það haft veruleg áhrif á lífríkið og leitt til þess að plöntu- og dýrategundir sem reiða sig á opinn úthaga hörfi. Áherslur í náttúruvernd í Evrópu hafa einmitt verið að breytast í þessa átt, þar sem beitin er ekki lengur álitin óvinur heldur mikilvægt stjórntæki.

„Í dag er beit til að viðhalda úthaga ein megináherslan í náttúruvernd í Evrópu,“ segir Anna Guðrún og vísar þar meðal annars til gagna frá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Fyrir íslenska hestamennsku, sem byggir á fornum merg á nýtingu úthagans og beitilands, renna þessar nýju niðurstöður styrkum stoðum undir mikilvægi beitar fyrir bæði náttúrufar og kolefnisbindingu í jarðvegi.

 

Vill að heiðursverðlaun byggist á staðfestum ræktunarárangri

Umræða um heiðursverðlaun fyrir afkvæmi heldur áfram í kjölfar umfjöllunar Eiðfaxa um Fantasíu frá Breiðstöðum, sem uppfyllir árangursskilyrði verðlaunanna en getur ekki hlotið þau þar sem hún er fallin.

Í pistli sem Olil Amble birti á Facebook-síðu Gangmyllunnar fjallar hún um fyrirkomulag heiðursverðlauna fyrir afkvæmi og mikilvægi þess að greina á milli viðurkenningar fyrir staðfestan ræktunarárangur og verðlauna sem veitt eru á viðburðum.

Viðurkenning fyrir staðfestan ræktunarárangur

Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi eiga að heiðra framúrskarandi ræktunarhross og ræktunarstarf að mati Olil. Þau séu jafnframt gæðastimpill á hrossið, viðurkenning fyrir ræktandann og mikilvægar upplýsingar fyrir aðra ræktendur.

Í pistlinum er rifjað upp hvernig fyrirkomulag verðlaunanna hefur breyst í gegnum tíðina. Áður þurftu hross að mæta með afkvæmum sínum á Landsmót en síðar var horfið frá því fyrirkomulagi, meðal annars vegna kostnaðar og fyrirhafnar við flutning hryssna og afkvæma þeirra. Nú eru verðlaunin afhent að hausti og byggja dómsorð á þeim upplýsingum sem liggja fyrir um hrossin.

Að mati Olil er eðlilegt að hross þurfi að vera á lífi og staðsett hér á landi þegar þeim er raðað í sæti á Landsmóti eða á haustráðstefnu fagráðs. Þar sé meðal annars verið að kynna hross sem enn eru í notkun og standa ræktendum til boða.

Öðru máli gegni hins vegar um heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, enda sé þar verið að viðurkenna ræktunarárangur sem þegar hefur náðst. Hún telur því að hross sem fallið hafa frá eigi einnig að geta hlotið slíka viðurkenningu og að árangur þeirra sé skráður og kynntur.

Telur tímabært að endurskoða reglurnar

Í pistlinum hjá Olil er vísað til sögu Fantasíu frá Breiðstöðum og lýst skilningi á vonbrigðum eiganda hryssunnar yfir því að hún geti ekki hlotið heiðursverðlaun þrátt fyrir að uppfylla árangursskilyrðin.

Jafnframt er bent á að þetta sé ekki einsdæmi og að fleiri hross hafi farið á mis við viðurkenninguna vegna þess að þau voru fallin frá áður en verðlaunin voru afhent.

Olil fagnar ummælum Þorvaldar Kristjánssonar hrossaræktarráðunautar  í samtali við Eiðfaxa. En þar sagði hann að það komi til greina að endurskoða reglurnar með það að markmiði að viðurkenna staðfestan ræktunarárangur í WorldFeng, óháð því hvort hross séu enn á lífi.

Þótt hún segist skilja hvernig núverandi fyrirkomulag varð til telur hún tímabært að endurskoða það.

Lesa má greinina í heild sinni á facebook síðu Gangmyllunnar með því að smella hér.