Fimm hross hlutu 10 og þrjátíu 9,5 fyrir skeið

  • 11. október 2024
  • Fréttir

Væta frá Leirulæk á flugaskeiði

Kynbótaárið gert upp í einstökum eiginleikum

Nú þegar kynbótasýningum ársins er lokið er gaman að renna yfir “níufimmur og tíur ársins” í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðaxa og beinum sjónum okkar að er skeið.

Skeið skal sýnt á þeim mesta hraða þar sem hesturinn ræður við að ganga í jafnvægi heila ferð. Full sprettlengd er 150 metrar (75 metrar hjá fjögurra vetra hrossum). Auðveld niðurtaka á skeið af stökki á greiðri ferð, létt taumsamband á sprettinum sem og mjúkleg niðurhæging í jafnvægi eru verkefni sem geta vegið til hækkunar á einkunnum enda sýna þau fram á jafnvægi hestsins og öryggi á sprettinum. Að sama skapi skal einkunn lækka um 0,5 hið minnsta séu miklir erfiðleikar í upphafi spretts, hesturinn þarf mikla hjálp frá knapa til að halda jafnvægi á sprettinum eða ef hesturinn styttir sig í niðurhægingu. Skeiðið telst takthreint ef svif er greinilegt og einungis er um lítilsháttar frávik frá niðurkomu hliðstæðra fóta að ræða.

Þau fimm hross sem hlutu 10,0 fyrir skeið í ár eru Herakles frá Þjóðólfshaga, Hildur frá Fákshólum, Liðsauki frá Áskoti, Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 og Væta frá Leirulæk.

Athygli vekur að Sleipnisbikarhafi ársins í ár, Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum, á fimm afkvæmi sem hlutu úrvalseinkunn fyrir skeið enda stendur hann framarlega í kynbótamatinu fyrir skeið. Þá eiga þeir Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Spuni frá Vesturkoti þrjú hross í þessum hópi.

Þá verður að minnast á Gnýpu frá Leirulæk sem er móðir þeirra Hildar frá Fákshólum og Gnýpu frá Leirulæk sem hlutu báðar 10,0 fyrir skeið.

Tvær fjögurra vetra hryssur þær Orka frá Sámsstöðum og Óskadís frá Steinnesi hlutu 9,5 fyrir skeið en þær eru báðar undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk.

Nafn  Uppruni í þgf. Faðir Móðir
Álfatýr Skíðbakka I Víðir frá Enni Ýr frá Skíðbakka 1
Eyfjörð Litlu-Brekku Þráinn frá Flagbjarnarholti Esja Sól frá Litlu-Brekku
Galbjartur Hóli Hófadynur frá Hafsteinsstöðum Mjöll frá Hóli
Gljásteinn Íbishóli Óskasteinn frá Íbishóli Gletta frá Íbishóli
Guttormur Dallandi Spuni frá Vesturkoti Gróska frá Dallandi
Herakles Þjóðólfshaga 1 Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum Hera frá Stakkhamri
Herborg Felli Apollo frá Haukholtum Hlín frá Fákshólum
Hetja Bessastöðum Þór frá Torfunesi Bylting frá Bessastöðum
Hildur Fákshólum Ölnir frá Akranesi Gnýpa frá Leirulæk
Hraundís Selfossi Viðar frá Skör Hafdís frá Hólum
Íshildur Hólum Skýr frá Skálakoti Storð frá Hólum
Jökull Breiðholti í Flóa  Huginn frá Haga I Gunnvör frá Miðsitju
Kamma Margrétarhofi Spuni frá Vesturkoti Harpa frá Gunnarsstöðum I
Kaspar Steinnesi Jarl frá Árbæjarhjáleigu II Kolfinna frá Steinnesi
Koltur Stóra-Bakka Organisti frá Horni I Ynja frá Miðkoti
Léttir Þóroddsstöðum Nói frá Stóra-Hofi Fjöður frá Þóroddsstöðum
Liðsauki Áskoti Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum Dulúð frá Áskoti
Lukka Breiðholti, Gbr. Ómur frá Kvistum Hrund frá Torfunesi
Mjallhvít Sumarliðabæ 2 Stáli frá Kjarri Þyrnirós frá Þjóðólfshaga I
Nóta Flugumýri II Blysfari frá Fremra-Hálsi Smella frá Flugumýri
Númi Árbæjarhjáleigu II Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum Nútíð frá Skarði
Orka Sámsstöðum Adrían frá Garðshorni List frá Sámsstöðum
Óskastund Steinnesi Adrían frá Garðshorni Óskadís frá Steinnesi
Píla Íbishóli Óskasteinn frá Íbishóli Sæunn frá Stórholti
Sandra Þúfu í Kjós Toppur frá Auðsholtshjáleigu Folda frá Þúfu í Kjós
Spönn Örk Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum Hnota frá Koltursey
Stardal Stíghúsi Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Álöf frá Ketilsstöðum
Stikla Stóra-Ási Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum Hending frá Stóra-Ási
Tindra Vinkärgård Ægir från Skeppargården Tibrá fra Vinkærgård
Tindur Laugarbökkum Spuni frá Vesturkoti Blökk frá Laugarbökkum
Tobías Svarfholti Ómur frá Kvistum Tálbeita frá Flekkudal
Tolli Ólafsbergi Ölnir frá Akranesi Teikning frá Keldudal
Valíant Garðshorni á Þelamörk Adrían frá Garðshorni Mánadís frá Hríshóli I
Væta Leirulæk Konsert frá Hofi Gnýpa frá Leirulæk
Ýr Selfossi Kiljan frá Steinnesi Eik frá Ármóti

Fyrri umfjallanir um 9,5-10 fyrir einstaka eiginleika:

9,5-10 fyrir höfuð

9,5-10 fyrir háls, herðar og bóga

9,5-10 fyrir bak og lend

9,5-10 fyrir samræmi

9,5-10 fyrir fótagerð

9,5-10 fyrir hófa

10,0 fyrir prúðleika

9,5-10 fyrir tölt

9,5-10 fyrir brokk

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar