Opið tölumót Harðar á sunnudaginn
Opið tölumót Harðar verður haldið sunnudaginn 26.janúar. Opnað hefur verið fyrir skráningu í fjórgang V1, tölt T1, slaktaumtatölt T2 og fimmgang F1
„Skráningu lýkur fimmtudaginn 23.janúar kl 24.00. Þrír dómarar munu dæma mótið og verður í boði að fá dómarablöð að móti loknu þar sem ritarar munu taka niður athugasemdir dómara eftir bestu getu. Aðeins er riðin forkeppni og ekki verða veitt verðlaun. Athygli er vakin á því að dagskrá gæti hafist fyrr ef þátttaka er mikil,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Í boði verður upphitunar aðstöðu í Blíðubakka höllinni en hún er í aðeins 150 m. fjarlægð frá reiðhöll Harðar.
Mótið er opið fyrir barnaflokk og uppúr. Þáttökugjald er 5.000 kr. og fer skráning í gegnum sportfeng.com.