Gæðingaveisla Sörla
Mótanefnd Sörla ætlar að halda Gæðingaveislu Sörla 20. – 23. ágúst á Hraunhamarsvellinum.
„Sækið gæðingana ykkar, dustið af reiðtygjunum og takið þátt í einu af síðustu mótum tímabilsins – Hinu glæsilega móti Sörla – GÆÐINGAVEISLUNNI !!!“
Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til 16. ágúst.
Keppt verður í:
- A- og B-flokki – opinn flokkur (gæðingaflokkur 1) og áhugamenn (gæðingaflokkur 2)
- A- og B-flokki ungmenna
- Unglingaflokki og barnaflokki gæðinga
- 100m skeiði
- Gæðingatölti fullorðinna (opinn og áhugamenn) og ungmenna.
Skráningargjald:
- Börn & unglingar: 7.500 kr.
- Aðrir flokkar: 9000 kr.
Fyrirspurnir & afskráningar: motanefnd@sorli.is
„Mundu: Eftir að skráningarfresti líkur tvöfaldast gjaldið – og eftir að ráslistar eru gefnir út verður ekki hægt að bæta við keppendum á mótið. Við lofum góðri stemningu, mögnuðum keppnisanda og glæsilegustu mótsaðstöðu sem völ er á. Ekki missa af þessu tækifæri – sjáumst á vellinum!“
Gæðingaveisla Sörla
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð
Skráning á síðsumarssýningar opnar 20. júlí
Nýtt frumtamninganámskeið í Reiðmanninum