Lilja Rún raðar inn gullinu

  • 9. mars 2025
  • Fréttir
Keppt var í gæðingalist í Meistaradeild Líflands og æskunnar í dag.

39 pör voru skráð til leiks og fór keppnin fram í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ. Margar flottar sýningar og gaman að sjá knapa og hesta leika listir sínar.

Lilja Rún Sigurjónsdóttir hélt sigurgöngu sinni áfram en hún og Sigð frá Syðri-Gegnishólum unnu gæðingalistina með 7,10 í einkunn. Þetta er þriðja greinin í röð sem Lilja Rún vinnur í deildinni.

Gabríel Liljendal Friðfinnsson varð annar á Ólsen frá Egilsá með 6,96 í einkunn og í þriðja varð Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Fenri frá Kvistum með 6,87 í einkunn.

Liðaskjöldin hlaut lið Kambs en þær Lilja Rún, Elísabet Líf, Eik Elvarsdóttir og Elísabet Vaka Guðmundsdóttir keppa fyrir lið Kambs.

Næst verður keppt í tölti þann 23. mars en fyrir þá sem misstu af gæðingafiminni geta horft á hana aftur á EiðfaxaTV.

Hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar úr gæðingafiminni.

1.Lilja Rún Sigurjónsdóttir Sigð frá Syðri-Gegnishólum 7,10
2. Gabríel Liljendal Friðfinnsson Ólsen frá Egilsá 6,96
3. Elísabet Líf Sigvaldadóttir Fenrir frá Kvistum 6,87
4. Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Sólon frá Sælukoti 6,73
5. Ragnar Snær Viðarsson Ási frá Hásæti 6,63
6. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker Ísar frá Skáney 6,43
7. Anton Óskar Ólafsson Gná frá Hólateigi 6,37
8.-10. Hjördís Halla Þórarinsdóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 6,23
8.-10. Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Radíus frá Hofsstöðum 6,23
8.-10. Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Óskamey frá Íbishóli 6,23
11.-13. Hrefna Kristín Ómarsdóttir Aðventa frá Víðidal 6,20
11.- 13.Jakob Freyr Maagaard Ólafsson Djörfung frá Miðkoti 6,20
11.-13.  Árný Sara Hinriksdóttir Moli frá Aðalbóli 1 6,20
14. – 15. Eik Elvarsdóttir Salka frá Hólateigi 6,13
14. – 15.  Elva Rún Jónsdóttir Már frá Votumýri 2 6,13
16. Loftur Breki Hauksson Fannar frá Blönduósi 6,10
17. Kristín María Kristjánsdóttir Skjóni frá Skálakoti 6,03
18. Ída Mekkín Hlynsdóttir Ísafold frá Kirkjubæ 6,00
19. Dagur Sigurðarson Amadeus frá Þjóðólfshaga 1 5,97
Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Bjarmi frá Akureyri 5,90
Elsa Kristín Grétarsdóttir Flygill frá Sólvangi 5,90
Viktor Óli Helgason Hreimur frá Stuðlum 5,90
Apríl Björk Þórisdóttir Lilja frá Kvistum 5,87
Unnur Rós Ármannsdóttir Ástríkur frá Hvammi 5,87
Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 5,77
Ísabella Helga Játvarðsdóttir Blædís frá Valshamri 5,73
Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Kjalar frá Völlum 5,70
Róbert Darri Edwardsson Rökkvi frá Hólaborg 5,67
Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir Hrafn frá Eylandi 5,63
Kári Sveinbjörnsson Nýey frá Feti 5,57
Elísabet Benediktsdóttir Glanni frá Hofi 5,43
Hákon Þór Kristinsson Magni frá Kaldbak 5,17
Kristín Rut Jónsdóttir Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ 5,13
Bryndís Anna Gunnarsdóttir Dreyri frá Hjaltastöðum 5,03
Vigdís Anna Hjaltadóttir Hlíf frá Strandarhjáleigu 4,93
Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Alda frá Bakkakoti 4,93
Ragnar Dagur Jóhannsson Alúð frá Lundum II 4,90
Íris Thelma Halldórsdóttir Blakkur frá Árbæjarhjáleigu II 4,43
Fríða Hildur Steinarsdóttir Fimur frá Kýrholti 3,70

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar