Mette og Hannibal í stuði
Mette og Hannibal Ljósmynd: Linaimages
Í gærkvöldið fór fram keppni í gæðingalist í Meistaradeild KS í hestaíþróttum. Var um annað mót ársins að ræða en áður hafði verið keppt í fjórgangi.
21 knapi tók þátt í gæðingalistinni og léku listar sýnar á gólfi Svaðastaðahallarinnar á Sauðárkróki og á meðal þeirra var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem keppti sem villiköttur fyrir lið Storm Rider. Hún var fimmta í rásröð og tók hún afgerandi forystu í keppninni með 8,30 í einkunn á Flóvent frá Breiðstöðum. Það var ekki fyrr en Mette Mannseth kom í brautina að það dró til tíðinda og nældi hún sér í fyrsta sætið á Hannibal frá Þúfum með einkunnina 8.37. Bergur Jónsson varð svo í þriðja sæti á Ljósálfi frá Syðri-Gegnishólum með 7,70 í einkunn.
Stigahæsta lið kvöldsins var svo lið Stormrider en liðsmenn þar voru Bergur Jónsson, Elvar Einarsson og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir.
Næsta mót í KS deildinni er þann 11.apríl þegar keppt verður í fimmgangi.
Heildarniðurstaða í gæðingalist
| Sæti | Knapi og hestur | Einkunn |
| 1 | Mette Mannseth og Hannibal frá Þúfum | 8,37 |
| 2 | Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum | 8,3 |
| 3 | Bergur Jónsson og Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum | 7,7 |
| 4 | Þórarinn Eymundsson og Þráinn frá Flagbjarnarholti | 7,3 |
| 5 | Katla Sif Snorradóttir og Sæmar frá Stafholti | 6,97 |
| 6 | Guðmar Hólm Ísólfsson og Grettir frá Hólum | 6,9 |
| 7 | Kristján Árni Birgisson og Kolgrímur frá Breiðholti Grb. | 6,73 |
| 8 | Freyja Amble Gísladóttir og Álfatrú frá Syðri-Gegnishólum | 6,6 |
| 9 | Klara Sveinbjörnsdóttir og Druna frá Hólum | 6,53 |
| 10 | Elvar Einarsson og Muni frá Syðra-Skörðugili | 6,47 |
| 11 | Kristófer Darri Sigurðsson Brimir frá Heimahaga | 6,47 |
| 12 | Ingunn Ingólfsdóttir og Ugla frá Hólum | 6,47 |
| 13 | Þórey Þula Helgadóttir og Kjalar frá Hvammi I | 6,23 |
| 14 | Sigrún Rós Helgadóttir og Hagur frá Hofi á Höfðaströnd | 6,2 |
| 15 | Þorsteinn Björn Einarsson og Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd | 6,13 |
| 16 | Björg Ingólfsdóttir og Assa frá Dýrfinnustöðum | 6,1 |
| 17 | Lea Busch – Pálmi frá Þúfum | 6,03 |
| 18 | Þorsteinn Björnsson og Eiður frá Hólum | 5,83 |
| 19 | Sigurður Heiðar Birgisson og Rosi frá Berglandi I | 5,8 |
| 20 | Guðmar Freyr Magnússon og Eljar frá Gljúfurárholti | 5,57 |
| 21 | Þorvaldur Logi Einarsson og Saga frá Kálfsstöðum | 0 |
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar