Úrslit annars vetrarmóts Fáks
Annað vetrarmót Fáks var haldið sl. laugardag í fínu vetrarveðri, sól og smá andvara. Til mikils var að vinna því í konu- og karlaflokkum fengu sigurvegarnir fjórir gjafabréf að verðmæti 50.000 í bensínúttekt hjá ATLANTSOLÍU. Ágæt þátttaka var í flestum flokkum nema ekki var keppt í ungmennaflokki þar sem þau voru að keppa á Framhaldsskólamótinu. Dómari var Hjörtur Bergstað og þökkum við honum kærlega fyrir vel unnin störf sem og öðrum starfsmönnum mótsins, Unni, Jóhönnu, Hildu Karen, Steini Hauki, Önnu og Árna.
Pollaflokkur:
1. Annabella R Sigurðardóttir á Tuma brúnum 17 vetra frá Litla-Hofi.
2. Jóhanna Guðmundsdóttir á Háfeta, jörpum 20 vetra frá Þingnesi.
3. Hákon Dan Ólafsson á Feng, brúnum 13 vetra frá Brattholti.
4. Selma María Jónsdóttir á Vin, rauðum 10 vetra frá Skarði.
5. Maríanna Sól Hauksdóttir á Faxa, rauðglófextum 20 vetra frá Sogni
Allir aðrir pollar fengu einnig verðlaun enda knapar framtíðarinnar og það voru:
Hekla Rist á Vafa
Kolka Rist á Eldi
Þorbjörg Kristjánsdóttir á Erli
Jónas Thor á Nótt
Bertha Marín á Megasi
Arnar Máni á Bollu
Haukur Ingi Hauksson á Skörungi
Auður Rós á Tínu
Barnaflokkur:
1. Arnór Dan Kristinsson á Patta, brúnum 13 vetra frá Reykjavík.
2. Heiða Rún Sigurjónsdóttir á Hrafni, brúnum 20 vetra frá Ríp.
3. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir á Gammi, brúnum 14 vetra frá Ási.
4. Snorri Egholm Þórsson á Fannari, gráum 11 vetra frá Grásteini.
5. Svanberg Óskarsson á Eljari, móálóttur 11 vetra frá Oddhóli.
Unglingaflokkur:
1. Rakel Jónsdóttir á Íkoni, svartur 8 vetra frá Hákoti.
2. Rebekka Rut Petersen á Magna, jörpum 10 vetra frá Reykjavík.
3. Garíel Óli Ólafsson á Sunnu, brúnni 9 vetra frá Læk.
4. Nína María Hauksdóttir á Ófeigi, jörpum 10 vetra frá Syðri-Ingveldarstöðum.
5. Bjarki Freyr Arngrímsson á Gými, jörpum 7 vetra frá Syðri-Löngumýri.
Konur II
1. Guðborg Kolbeins á Glað, rauðum 8 vetra frá Kjarnholtum I.
2. Sigrún Sveinbjörnsdóttir á Draumi, móálóttum 10 vetra frá Hjallanesi.
3. Jóhanna Þorbjargardóttir á Fóstra, jörpum 14 vetra frá Bessastöðum.
4. Arna Kristín Gísladóttir á Tvisti, tvístjörnóttum 12 vetra frá Þorkelshóli.
5. Unnur Sigurþórsdóttir á Ás, rauðum 8 vetra frá Dalsmynni.
Karlar II
1. Kjartan Guðbrandsson á Salvöru, móálóttri 10 vetra frá Glæsibæ.
2. Jón Guðlaugsson á Gyðju, grárri 13 vetra frá Kaðalstöðum.
3. Dagur Benónýsson á Sprota, rauðstjörnóttum 9 vetra.
4. Jóhann Ólafsson á Neista, rauðum 7 vetra frá Heiðarbót.
5. Ragnar Ólafsson á Glaumi, brúnum 8 vetra frá Minni-Borg.
Konur I
1. Sif Jónsdóttir á Vigdísi, rauðstjörnóttri 5 vetra frá Vakursstöðum.
2. Birgitta Magnúsdóttir á Kubbi, brúnum 9 vetra.
3. Hrefna María Ómarsdóttir á Eirvöru, jarpri 4 vetra frá Hamrahóli.
4. Rósa Valdimarsdóttir á Krafti, brúnskjóttum 7 vetra frá Strönd.
5. Susi Haugaard á Diðriki, rauðum 9 vetra frá Grenstanga.
Karlar I
1. Rúnar Bragason á Þrá, rauðri 8 vetra frá Tungu.
2. John Kristinn Sigurjónsson á Freyju, rauðstjörnóttri 12 vetra frá Brekkum.
3. Sigurbjörn Viktorsson á Glóð, rauðri 7 vetra frá Hvanneyri.
4. Hilmar Binder á Óskari Erni, brúnum 10 vetra frá Hellu.
5. Sigurþór Sigurðsson á Kóngi, bleikum 8 vetra frá Blönduósi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH