Fenrir efstur sex vetra stóðhesta

  • 24. október 2025
  • Fréttir

Fenrir frá Finnastöðum og Viðar Ingólfsson Ljósmynd: Nicki Pfau

Hæsta hæfileikaeinkunn ársins

Á Íslandi voru 83 sex vetra gamlir stóðhestar sýndir í fullnaðardómi í ár. Hæstan dóm af þeim hlaut Fenrir frá Finnastöðum sem sýndur var af Viðari Ingólfssyni. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,54 þar sem hæst ber einkunnin 9,5 fyrir hófa 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hann 9,04, sem er hæsta hæfileikaeinkunn ársins á Íslandi í ár. Hlaut hann einkunnina 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, greitt stökk, fet og hægt tölt. Aðaleinkunn hans er því 8,86. Fenrir er ræktaður af þeim Björgvini Daða Sverrissyni og Helenu Ketilsdóttur og er undan Þránni frá Flagbjarnarholti og Aþenu frá Akureyri.

Sá sex vetra stóðhestur sem hæsta einkunn hlaut fyrir sköpulag var Skúmur frá Skagaströnd sýndur af Teiti Árnasyni, ræktaður af Þorláki Sigurði Sveinssyni en eigandi er Eyrún Ýr Pálsdóttir. Skúmur er undan Apollo frá Haukholtum og Þrumu frá Skagaströnd og hlaut hann 8,88 fyrir sköpulag. Þar af 9,5 fyrir samræmi og 9,0 fyrir höfuð, háls, herðar og bóga, bak og lend og samræmi.

 

Hæst dæmdu sex vetra hestar ársins

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn 
Fenrir Finnastöðum Viðar Ingólfsson 8.54 9.04 8.86
Neisti Ytri-Skógum Hlynur Guðmundsson 8.51 8.82 8.72
Karl Kráku Helga Una Björnsdóttir 8.55 8.72 8.66
Aríus Bjarnarhöfn Vera Evi Schneiderchen 8.4 8.75 8.63
Draupnir Kverk Benjamín Sandur Ingólfsson 8.28 8.76 8.59
Drangur Ketilsstöðum Bergur Jónsson 8.56 8.58 8.57
Skuggi Sumarliðabæ 2 Þorgeir Ólafsson 8.46 8.62 8.56
Ringó Austurási Teitur Árnason 8.57 8.55 8.56
Fáfnir Hjarðarholti Árni Björn Pálsson 8.55 8.52 8.53
Fálki Traðarlandi Teitur Árnason 8.44 8.58 8.53

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar