Úrslit folaldasýningar Glaums

  • 6. desember 2012
  • Fréttir
Úrslit folaldasýningar Glaums

Nýstofnað félag hestaáhugafélag, Glaumur, hélt sína fyrstu folaldasýningu þann 25. nóvember sl. í reiðhöllinni í Vorsabæ 2 á Skeiðum.  Þar sló í gegn jarpskjótt hestsfolald, Erpir frá Blesastöðum 2A, að er fram kemur í tilkynningu frá félaginu:

„Góð mæting var af áhorfendum og er talið að milli 60 og 70 manns hafi verið á staðnum.  Sýningin gekk vel og mættu 25 folöld til leiks.  Dómari var Óðinn Örn Jóhannsson og veitti hann umsögn um hvert folald og valdi til verðlauna 3 folöld af hvoru kyni.  Einnig völdu áhorfendur besta folaldið að þeirra mati.

Úrslitin urðu eftirfarandi:

Hestar:

1.      Erpir frá Blesastöðum 2A/ jarpskjóttur, eigandi: Gunnlaugur Bjarnason

a.      Faðir: Dynur frá Dísarstöðum

b.      Móðir: Andrá frá Blesastöðum 2a

2.      Gaukur frá Steinsholti/ rauðstjörnóttur, eigandi: Gunnar Örn Marteinsson

a.      Faðir: Kjarni frá Þjóðólfshaga

b.      Móðir: dögg frá Steinsholti II

3.      Kappi frá Vorsabæ 2 / jarpstjörnóttur, eigandi: Björn Jónsson

a.      Faðir: Kinnskær frá Slefossi

b.      Móðir: Snerpa frá Vorsabæ 2  

 

Hryssur:

 

1.      Nóta frá Brúnavöllum 1/ Rauð, eigandi: Hermann Þór Karlsson

a.      Faðir: Dropi frá Efri-Brúnavöllum 1

b.      Móðir: Frökk frá Bakka

2.      Afródíta frá Kálfhóli 2 / Jarpstjörnótt, eigandi: Hannes Ólafur Gestsson.

a.      Faðir: Grunur frá Oddhóli

b.      MóðirKúnst frá Kálfhóli 2

3.      Hugsýn frá Ósabakka / rauð, eigandi: Hildur og Jökull Ósabakka

a.      Faðir: Stígandi frá Stóra-Hofi

b.      Móðir: Dís undan Hróði frá Refsstöðum

 

Áhorfendaval

           Erpir frá Blesastöðum 2A/ jarpskjóttur.  Eigandi: Gunnlaugur Bjarnason. Erpir hlaut afgerandi kostningu, önnur folöld hlutu færri en 10 atkvæði.“

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link