Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stjórn deildar hrossabænda. F.v. Ólafur Sigurgeirsson, Guðný Helga Björnsdóttir, Jón Vilmundarson, Ólafur Þórisson, Rúnar Þór Guðbrandsson, Agnar Þór Magnússon og Þórdís Ingunn Björnsdóttir
Um 40 fulltrúar voru mættir á fundinn en m.a. annars á dagskrá fundarins var að kjósa nýjan formann og fulltrúa í stjórn deildar hrossabænda. Nanna Jónsdóttir, fyrrum formaður deildarinnar, bauð sig ekki fram til formannsetu aftur en í framboði til formanns var Ólafur Þórisson hrossabóndi í Miðkoti sem er nú nýr formaður. Rúnar Þór Guðbrandsson kemur inn sem varamður í stað Ragnhildar Loftsdóttur. Annars er stjórnin óbreytt.
Ný stjórn lýtur svona út:
Formaður: Ólafur Þórisson, Guðný Helga Björnsdóttir, Jón Vilmundarson, Ólafur Sigurgeirsson, Agnar Þór Magnússon
Varamenn: Sonja Líndal Þórisdóttir, Þórdís Ingunn Björnsdóttir, Rúnar Þór Guðbrandsson kemur inn í stað Ragnhildar Loftsdóttur.
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Einvígi í vændum í Meistaradeild Líflands