Landsmót 2026 Kór efstur á stöðulista í B flokki

  • 27. júní 2026
  • Fréttir

Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar á Landsmóti 2024 Mynd: Kolla Gr.

Það styttist í Landsmót hestamannafélaga á Hólum.

Það styttist í að Landsmót hestamanna hefjist á Hólum en keppni hefst á sérstakri forkeppni í barnaflokki á sunnudeginum 5. júlí. Keppni í B flokki gæðinga hefst eftir hádegi á mánudeginum, 6. júlí. Keppni í B-flokki gæðinga á Landsmóti er einn af hápunktum mótsins og þar reynir á taktfestu, rými og glæsileika gæðingsins.

Meteinkunn inn á Landsmót

Efstur á stöðulista í B flokki inn á mótið eru Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigurðsson en þeir eru engir nýgræðingar í greininni og verða teljast sigurstranglegir. Þeir unnu B flokkinn á Fjórðungsmótinu í fyrra og voru í úrslitum á síðasta Landsmóti. Það eru 10 ár síðan Jakob vann B flokk á Landsmóti og var það einmitt á Hólum spennandi verður að sjá hvort hann endurtaki leikinn.

Hvarmur frá Brautarholti en er annar inn á mótið með knapa sínum Hönnu Rún Ingibergsdóttur en þau hafa vakið verðskuldaða athygli á keppnisbrautinni það sem af er sumri. Þriðji er Útherji frá Blesastöðum 1A, knapi Jóhanna Margrét Snorradóttir, en þau enduðu í 3 sæti á Landsmóti 2024.

Það verður nóg að gera hjá Adrían á Landsmótinu en hann kemur fjórði inn á mótið í B flokki og mun taka á móti afkvæmaverðlaunum á mótinu. Knapi á Adrían er Glódís Rún Sigurðardóttir og keppa þau fyrir hestamannafélagið Sprett. Fimmti inn á mótið er Pensill frá Hvolsvelli, knapi Elvar Þormarsson, þeir keppa fyrir hestamannafélagið Geysi og unnu B úrslitin á síðasta Landsmóti og enduðu í 4. sæti í A úrslitunum.

Fyrrum Landsmótssigurvegari keppir í öðrum flokki

Það var Safír frá Mosfellsbæ og knapi hans Sigurður Vignir Matthíasson sem unnu B flokkinn á síðasta Landsmóti. Safír verður í nýju hlutverki á mótinu en dóttir Sigurðar, Helga Rún, mun keppa á Safír í barnaflokki fyrir hestamannafélagið Fák. Safír mun einnig taka á móti fyrstu verðlaunum fyrir afkvæmi á mótinu. Sigurður Vignir er skráður með eitt hross í B flokknum og á fjórum í A flokki.

Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV

Landsmót hestamanna verður sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.

Stöðulisti í B flokki gæðinga

Hér fyrir neðan er stöðulistinn í B flokki gæðinga, 30 efstu hestar.

1 Jakob Svavar Sigurðsson IS2017184162 Kór frá Skálakoti 8,99
2 Hanna Rún Ingibergsdóttir IS2018137637 Hvarmur frá Brautarholti 8,84
3 Jóhanna Margrét Snorradóttir IS2014187804 Útherji frá Blesastöðum 1A 8,82
4 Glódís Rún Sigurðardóttir IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 8,82
5 Elvar Þormarsson IS2015184975 Pensill frá Hvolsvelli 8,80
6 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir IS2014181422 Flaumur frá Fákshólum 8,79
7 Mette Mannseth IS2015158162 Hannibal frá Þúfum 8,78
8 Eyrún Ýr Pálsdóttir IS2017281816 Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 8,77
9 Teitur Árnason IS2015282365 Auðlind frá Þjórsárbakka 8,76
10 Jón Herkovic IS2015258560 Tesla frá Ásgarði vestri 8,75
11 Helgi Þór Guðjónsson IS2014187695 Þröstur frá Kolsholti 2 8,74
12 Hans Þór Hilmarsson IS2019284869 Dögg frá Hjarðartúni 8,73
13 Eyrún Ýr Pálsdóttir IS2017158627 Fróði frá Flugumýri 8,73
14 Skapti Steinbjörnsson IS2018157341 Kulur frá Hafsteinsstöðum 8,73
15 Ólafur Þórisson IS2018184620 Fáfnir frá Miðkoti 8,72
16 Signý Sól Snorradóttir IS2018165100 Bárður frá Litla-Dal 8,72
17 Bjarni Jónasson IS2018135715 Hrafn frá Oddsstöðum I 8,71
18 Siguroddur Pétursson IS2014237860 Sól frá Söðulsholti 8,71
19 Eyrún Ýr Pálsdóttir IS2017158319 Jarl frá Skúfsstöðum 8,71
20 Snorri Dal IS2016125727 Sæljómi frá Stafholti 8,71
21 Sigurður Baldur Ríkharðsson IS2019180326 Fálki frá Traðarlandi 8,70
22 Katla Sif Snorradóttir IS2017287977 Gleði frá Efri-Brúnavöllum I 8,69
23 Sara Sigurbjörnsdóttir IS2016180376 Skálkur frá Koltursey 8,69
24 Þórarinn Eymundsson IS2018157802 Náttfari frá Varmalæk 8,69
25 Birgitta Bjarnadóttir IS2018187841 Kór frá Kálfhóli 2 8,68
26 Þorgeir Ólafsson IS2018182122 Steinn frá Stíghúsi 8,67
27 Barbara Wenzl IS2019158592 Loftur frá Kálfsstöðum 8,67
28 Hinrik Bragason IS2017156275 Hugur frá Hólabaki 8,67
29 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir IS2016101056 Þór frá Hekluflötum 8,66
30 Teitur Árnason IS2013181608 Hylur frá Flagbjarnarholti 8,66
31 Benjamín Sandur Ingólfsson IS2017187460 Áki frá Hurðarbaki 8,66

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link