Landsmót Stjörnusýning Ása og Hlakkar

  • 10. júlí 2026
  • Fréttir
Niðurstöður úr A úrslitum í tölti

9.78 ! Það þarf ekki að segja meira til að lýsa þessari töltveislu sem fór fram hér í Hjaltadalnum í kvöld. Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði sýndu ótrúlega takta og verður þetta töltsýning sem fólk mun seint, ef nokkurn tímann, gleyma. Landsmótssigurvegarar í tölti með 9,78 í einkunn. Enginn hefur fengið hærra í A úrslitum í tölti. Þau fengu 10,0 í meðaleinkunn fyrir greitt tölt og gaf dómari 3 þeim 10 í einkunn fyrir öll atriðin.

Jakob Svavar Sigurðsson varð í öðru sæti á Skarpi frá Kýrholti með 9,17 í einkunn og í því þriðja varð Brynja Kristinsdóttir og Sunna frá Haukagili Hvítársíðu með 8,83 í einkunn.

Niðurstöður úr A úrslitum í tölti

Nr. 1
Knapi: Ásmundur Ernir Snorrason – Geysir – Hlökk frá Strandarhöfði – 9.78
Hægt tölt 9,50 9,50 10,00 9,50 9,50 = 9,50
Tölt með hraðamun 10,00 9,50 10,00 10,00 9,50 = 9,83
Greitt tölt 10,00 9,50 10,00 10,00 10,00 = 10,00

Nr. 2
Knapi: Jakob Svavar Sigurðsson – Dreyri – Skarpur frá Kýrholti – 9.17
Hægt tölt 9,00 9,00 9,00 9,00 9,50 = 9,00
Tölt með hraðamun 9,00 9,00 9,00 9,00 9,00 = 9,00
Greitt tölt 9,50 9,50 9,50 9,50 9,50 = 9,50

Nr. 3
Knapi: Brynja Kristinsdóttir – Sörli – Sunna frá Haukagili Hvítársíðu – 8.83
Hægt tölt 8,50 8,50 9,00 9,00 8,50 8,67
Tölt með hraðamun 9,00 9,00 9,00 8,50 8,50 8,83
Greitt tölt 9,00 9,00 9,00 9,00 8,50 9,00

Nr. 4
Knapi: Jóhanna Margrét Snorradóttir – Geysir – Orri frá Sámsstöðum – 8.39
Hægt tölt 8,00 8,50 8,00 8,00 8,00 = 8,00
Tölt með hraðamun 8,50 8,00 8,50 8,00 8,50 = 8,33
Greitt tölt 8,50 8,50 9,00 9,00 9,00 = 8,83

Nr. 5
Knapi: Hulda Gústafsdóttir – Fákur – Flauta frá Árbakka – 7.83
Hægt tölt 7,50 8,00 8,00 8,00 8,50 = 8,00
Tölt með hraðamun 7,50 7,50 8,00 8,00 8,00 = 7,83
Greitt tölt 8,00 7,50 7,00 7,50 8,00 = 7,67

Nr. 6
Knapi: Sara Sigurbjörnsdóttir – Geysir – Dísa frá Syðra-Holti – 7.61
Hægt tölt 7,50 7,00 7,50 8,50 8,00 = 7,67
Tölt með hraðamun 7,50 7,50 7,50 7,50 8,00 = 7,50
Greitt tölt 8,00 7,50 7,50 7,50 8,00 = 7,67

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link