Norðurlandamót Lukku-Blesi og Christina Lund á toppnum í B-flokki

  • 4. ágúst 2026
  • Fréttir

Lukku-Blesi frá Selfossi og Christina Lund. Ljósmynd: Cassandra Laikmets/CLfoto

Íslensku knaparnir báðir í A-úrslit

Norðurlandamótið hófst nú í morgun og er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, í dag er keppt í forkeppni í gæðingakeppni. Að loknu hádegishléi var komið að keppni í B-flokki gæðinga, Ísland átti þar tvo fulltrúa en alls kepptu 16 hestar og knapar í forkeppni.

Á toppnum er Lukku-Blesi frá Selfossi með 8,74 í einkunn, knapi á honum er Christina Lund og keppa þau fyrir hönd Noregs. Fast á hæla hennar koma svo fulltrúar Ísland í öðru og þriðja sætinu. Agnar frá Margrétarhofi sýndur af Reyni Erni Pálmasyni hlaut 8,61 og Nátthrafn frá Varmalæk sem Þórarinn Eymundsson situr hlaut 8,59. Þeir hafa því báðir tryggt sér sæti í A-úrslitum þar sem þeir munu gera atlögu að Norðurlandameistaratitli í B-flokki

Hægt er að nálgast allar niðurstöður, dagskrá, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.

A-úrslit í B-flokki gæðinga fara fram seinni partinn á föstudag.

B flokkur
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Lukku-Blesi frá Selfossi Christina Lund 8,74
2 Agnar frá Margrétarhofi Reynir Örn Pálmason 8,61
3 Náttfari frá Varmalæk Þórarinn Eymundsson 8,59
4 Varða frá Feti Thea Hansen 8,55
5 Brekka frá Margrétarhofi Jessica Hou Geertsen 8,53
6 Hrímnir frá Vatnsleysu Nicolina Marklund 8,52
7 Kári frá Ásbrú Knút Lützen 8,52
8 Huginn frá Halakoti Kelly Eriksson 8,47
9 Herjann från Stenholmen Sofie Fältsjö 8,46
10 Rögnir frá Minni-Völlum Maja Lindgaard 8,43
11 Börkur frá Fákshólum Kathrine Vittrup Andersen 8,39
12 Milljón fra Bergkåsa Liv Runa Sigtryggsdottir 8,38
13 Ljúfa fra Kise Camilla Mood Havig 8,33
14 Stæll frá Skagaströnd Valborg Laksáfoss 8,31
15 Fimur frá Selfossi Lisa Lantz 8,30
16 Alvar fra Bråta Ina Cecilie Riis 8,30

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link