Gormur og Þórður á toppinn
Norðurlandamótið hófst nú í morgun og er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, í dag er keppt í forkeppni í gæðingakeppni. Síðasta forkeppni dagsins var í A flokki gæðinga. Dagskráin hefst svo aftur á morgun kl. 7:00 að íslenskum tíma á keppni í tölti ungmennaflokki.
16 kepptu í A flokki og átti Ísland þar einn fulltrúa, Þórð Þorgeirsson og Gorm fra Villanora. Eru þeir efstir eftir forkeppni með 8,53 í einkunn en þeir unnu einmitt þennan flokk á síðasta Norðurlandamóti.
Í öðru sæti var Svava fran Ekeby og Daníel Ingi Smárason með 8,52 í einkunn en kepptu þau fyrir Svíþjóð og þriðja með sömu einkunn en aukastöfum neðar er Völsungur frá Skeiðvöllum og Susanne Larsen Murphy en þau keppa fyrir Danmerkur. Það er því mjótt á munum á efstu hestum og eflaust hart barist í A úrslitunum sem fara fram á föstudaginn.
Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.
Niðurstöður úr forkeppni í A flokki
| Sæti | Hross | Knapi | Einkunn |
| 1 | Gormur fra Villanora | Þórður Þorgeirsson | 8,53 |
| 2 | Svava från Ekeby | Daníel Ingi Smárason | 8,52 |
| 3 | Völsungur frá Skeiðvöllum | Susanne Larsen Murphy | 8,52 |
| 4 | Týr från Svala Gård | Louise Löfgren | 8,50 |
| 5 | Laxnes frá Lambanesi | Lene Thorud | 8,42 |
| 6 | Vaki frá Auðsholtshjáleigu | Alberte Smith | 8,41 |
| 7 | Gilda fra Stenkullagård | Laura Nyström | 8,40 |
| 8 | Heimir från Solhäll | Eyvindur Mandal | 8,40 |
| 9 | Sólrún fra Teland | Steffi Svendsen | 8,38 |
| 10 | Grímur fra Gavnholt | Ida Kvande | 8,37 |
| 11 | Golíat fra Dysterud | Celine Berild Vold | 8,25 |
| 12 | Gustur frá Stóra-Vatnsskarði | Caroline Agerhill | 8,23 |
| 13 | Sunna frá Hásæti | Ingrid Tvergrov | 8,23 |
| 14 | Mestur fra Lífsvatn | Viivi Soimes- Mattila | 8,13 |
| 15 | Hraði fra Skovhuset | Laura Midtgård | 8,11 |
| 16 | Kolka från Fögruhlíð | Katie Sundin Brumpton | 7,61 |
Gormur og Þórður á toppinn
Safír í hæstu hæðir
Skráning á Áhugamannamót Íslands til miðnættis!