Norðurlandamót „Fallegur staður og gott fólk“

  • 5. ágúst 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Knút Lützen og Valborg Laksáfoss frá Færeyjum

Norðurlandamótið í hestaíþróttum hófst í gær en hægt er að fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV. Tveir knapar komu með hesta sína frá Færeyjum og keppa fyrir hönd síns lands en það eru Knút Lützen og Valborg Laksáfoss.

Þau tóku bæði þátt í keppni í B-flokki í gær, Knút keppti á Kára frá Ásbrú sem hlaut 8,52 í einkunn og tryggðu þeir sér því þátttökurétt í A-úrslitum. Valborg keppti á Stæl frá Skagaströnd og munu þau taka þátt í B-úrslitum og hlutu 8,31 í einkunn.

Ásta Björk Friðjónsdóttir hitti á þessa hressu Færeyinga og tók þau tali. Viðtalið er hægt að sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link