Íslendingar í þremur efstu sætunum
Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli með örugga forustu eftir forkeppni í tölti T1 Mynd: CL Foto
Dagur tvö á Norðurlandamótinu hófst í morgun kl. 7 á keppni í ungmennaflokki. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagurinn hófst á forkeppni í tölti T1 í ungmennaflokki en 26 keppendur mættu til leiks. Íslendingar áttu tíu fulltrúa í flokknum og röðuð þau sér í efstu sæti.
Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli eru að gera gott mót í Svíþjóð en þeir eru með nokkuð örugga forustu með 7,50 í einkunn. Þeir standa einnig efstir eftir forkeppni í ungmennaflokki.
Á eftir þeim eru þær Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti í öðru sæti með 6,93 og í þriðja Hekla Rán Hannesdóttir á Tind frá Árdal með 6,83 í einkunn. Elva Rún Jónsdóttir á Kvasa frá Steinnesi, Fanndís Helgadóttir á Ötul frá Narfastöðum og Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Dygg från Stummelbol nældu sér í sæti í B úrslitum.
Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.
Niðurstöður úr forkeppni í tölti T1 í ungmennaflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jón Ársæll Bergmann | Viskusteinn frá Íbishóli | 7,40 |
| 2 | Eva Kærnested | Logi frá Lerkiholti | 6,93 |
| 3 | Hekla Rán Hannesdóttir | Tindur frá Árdal | 6,83 |
| 4 | Óskar Erik Kristjánsson | Kjarkur frá Vorsabæ II | 6,67 |
| 5 | Lára Gardarsdottir Hesselman | Álfur från Knutshyttan | 6,63 |
| 6 | Amanda Frandsen | Tinna frá Litlalandi | 6,57 |
| 7 | Elva Rún Jónsdóttir | Kvasir frá Steinnesi | 6,50 |
| 8 | Fanndís Helgadóttir | Ötull frá Narfastöðum | 6,40 |
| 9 | Pernille Hansen-Christiansen | Bakkus fra Grundet Hus | 6,33 |
| 10 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir | Dyggur från Stummelbol | 6,30 |
| 11 | Molly Eriksson | Erró frá Ármóti | 6,30 |
| 12 | Sara Dís Snorradóttir | Nökkvi frá Syðra-Skörðugili | 6,23 |
| 13-14 | Frøydis Musdalslien | Kormákur frá Miðhrauni | 6,07 |
| 13-14 | Guðmar Hólm Líndal | Arthúr frá Baldurshaga | 6,07 |
| 15 | Linnea Søby | Alvin fra Kringeland | 5,83 |
| 16 | Bianca Söderholm | Skálmöld frá Skáney | 5,80 |
| 17-18 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg | Tindra fra Kirstineholm | 5,77 |
| 17-18 | Filippa Gram | Kristall frá Skagaströnd | 5,77 |
| 19 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan | 5,73 |
| 20 | Julie Thorsbye Andersen | Aron frá Þóreyjarnúpi | 5,50 |
| 21 | Maiken Berild Vold | Kaspar frá Steinnesi | 5,40 |
| 22 | Guðný Dís Jónsdóttir | Laki från Adalgården | 5,30 |
| 23 | Thea Oxaas-Egge | Dans fra Sigersberg | 5,17 |
| 24 | Vilma Mätäsniemi | Hvammur frá Hvolsvelli | 4,93 |
| 25 | Hermine Oline Gude-Karlsen | Silfri frá Mið-Fossum | 4,17 |
| 26 | Klara Nydahl | Dagur frá Ketilsstöðum | 0,00 |
Íslendingar í þremur efstu sætunum
Endurtók leikinn tíu árum seinna