Jöfn í efsta sæti
Liam Billow á Ögðu från Tängby leiðir töltið í unglingaflokki Mynd: Cassandra Laikmets/CLfoto
Blaut byrjun á þessum miðvikudegi á Norðurlandamótinu en það hefur ringt vel í morgun. Eftir forkeppni í tölti T1 í ungmennaflokki var komið á unglingunum. Þar voru 10 keppendur skráðir til leiks og var enginn íslenskur knapi meðal þeirra.
Jöfn eftir forkeppni er Liam Billow á Ögðu från Tängby og Michelle Edvall Karlsson á Kinnungi frá Torfunesi með 6,43 í einkunn en bæði keppa þau fyrir Svíþjóð. Andrea Schmidt Laursen er þriðja á Kristal frá Hákoti með 6,30 í einkunn en þau keppa fyrir Danmörku.
Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.
Niðurstöður úr forkeppni í tölti T1 í unglingaflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1-2 | Liam Billow | Agða från Tängby | 6,43 |
| 1-2 | Michelle Edvall Karlsson | Kinnungur frá Torfunesi | 6,43 |
| 3 | Andrea Schmidt Laursen | Kristall frá Hákoti | 6,30 |
| 4 | Summer Sandlau Jacobsen | Djass fra Engholm | 6,20 |
| 5 | Viktor Arnbro | Ársól från Stensäter | 5,80 |
| 6 | Mia Skavhaug | Atgeir frá Margrétarhofi | 5,73 |
| 7 | Ella Oxaas-Egge | Hrafnkatla fra Nyberg | 5,70 |
| 8 | Lilja Kontio | Dásemd frá Traðarholti | 5,07 |
| 9 | Molly Öberg | Lótus från Ödegården | 4,70 |
| 10 | Majken Roström | Arfur frá Steinskoti 1 | 3,17 |
Jöfn í efsta sæti
Endurtók leikinn tíu árum seinna