Norðurlandamót Sara Dís og Nökkvi mæta til A-úrslita

  • 5. ágúst 2026
  • Fréttir

Sara Dís Snorradóttir og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili fagna sigri í B-úrslitum. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/CLfoto

B-úrslit í gæðingakeppni fóru fram seinni partinn í dag

Síðustu atriði dagsins á Norðurlandamóti í hestaíþróttum voru B-úrslit í þremur flokkum í gæðingakeppni þ.e. B-flokki ungmenna, A-flokki ungmenna og unglingaflokki.

B-flokkur ungmenna

Í B-flokki ungmenna var það hún Sara Dís Snorradóttir á Nökkva frá Syðra-Skörðugili sem efst stóð og tryggði sér þar með þátttökurétt í A-úrslitum með einkunnina 8,69. Næst henni komst Hilma Pettersson frá Svíþjóð á Lauki frá Varmalæk með 8,60 í einkunn. Einn annar íslenskur knapi tók þátt í þessum úrslitum en það var Guðmar Hólm Líndal á Arthúri frá Baldurshaga en þeir hlutu 8,41 í einkunn og er hlutskipti þeirra á Norðurlandamóti því 11. sæti í B-flokki ungmenna.

Sæti Keppandi Heildareinkunn
8 Sara Dís Snorradóttir / Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 8,69
9 Hilma Pettersson / Laukur frá Varmalæk 8,60
10 Tilde Astrup / Baldi frá Feti 8,44
11 Guðmar Hólm Líndal / Arthúr frá Baldurshaga 8,41
12 Grete Fostervoll Flemmen / Assa frá Margrétarhofi 8,38
13 Felicia Wiström / Sókrates från Sundabakka 8,32
14 Roberta Bøgeblad Larsen / Veigur frá Eystri-Hól 8,28
15 Mina Fidje Hansen / Maríus frá Húsavík 8,11
A-flokkur ungmenna

Í A-flokki ungmenna var það Alma Jonsson á Móa frá Efri-Fitjum sem vann sér þátttökurétt í A-úrslitum með einkunnina 8,32. Önnur varð Rebecca Hesselbjerg Taulborg á Drakúla frá Akurgerði með 8,22. Guðmar Hólm og Leikur náðu sér ekki í A-úrslita sæti.

Sæti Keppandi Heildareinkunn
8 Alma Jonsson / Mói frá Efri-Fitjum 8,32
9 Rebecca Hesselbjerg Taulborg / Drakúla frá Akurgerði 8,22
10 Synne Hårdnes Mjølstad / Mínímý från Ekudden 8,06
11 Lisa Krogvig Bjørnstad / Hugur frá Þúfum 0,00
12 Julie Thorsbye Andersen / Ás frá Strandarhöfði 7,58
13 Elisa Lund Iskov / Rönd frá Selfossi 7,48
14 Guðmar Hólm Líndal / Leikur frá Lækjamóti II 6,42
Unglingaflokkur

Í unglingaflokki var það Andreas Lie Sørensen á Djásn frá Arnbjörgum sem tryggði sér sæti í A-úrslitum með 8,38 en þeir keppa fyrir hönd Noregs.

Sæti Keppandi Heildareinkunn
9 Andreas Lie Sørensen / Djásn frá Arnbjörgum 8,38
10 Ellen Smet Jensen / Ferill frá Búðarhóli 8,36
11 Sille Emilie Søndergaard / Vespa fra Kringlan 8,31
12 Nathalie Røe-Skavnes / Smári frá Steinnesi 8,28
13 Minna Lindberg / Garri från Mörtö 8,11

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link