Sara og Herkúles bæta við sig titli
Það var mjótt á munum í gæðingaskeiðinu í ungmennaflokki en flokkurinn vinnst á aukastöfum.
Sara Garðarsdóttir Hesselman og Herkúles från Knubbo eru Norðurlandameistarar í gæðingaskeiði og bæta við sig enn einum Norðurlandameistaratitlinum en á síðasta móti unnu þau samanlagðar fimmgangsgreinar í unglingaflokki og 100 m. skeiðið. Sara og Herkúles keppa fyrir Svíþjóð
Samlandi hennar og með sömu einkunn, Klara Nydahl og Dagur frá Ketilsstöðum, urðu í öðru sæti og í þriðja varð Filippa Gram og Kristall frá Skagaströnd með 6,50 í einkunn en þau keppa fyrir Danmörku.
Íslendingar áttu einn fulltrúa í greininni, Þórgunni Þórarinsdóttur en hún og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan enduðu í fimmta sæti.
Niðurstöður úr gæðingaskeiði í ungmennaflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Sara Gardarsdottir Hesselman | Herkúles från Knubbo | 6,63 |
| 2 | Klara Nydahl | Dagur frá Ketilsstöðum | 6,63 |
| 3 | Filippa Gram | Kristall frá Skagaströnd | 6,50 |
| 4 | Kanerva Niemi | Sinfónia fra Kaakkola | 6,25 |
| 5 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan | 5,96 |
| 6 | Vilma Marie Ostergaard | Glæsir fra Rist | 5,71 |
| 7 | Palma Sandlau Jacobsen | Búi frá Húsavík | 5,13 |
| 8 | Vilma Mätäsniemi | Hvammur frá Hvolsvelli | 4,42 |
| 9 | Olivia Agerhill | Júlía från Agersta | 3,42 |
| 10 | Hermine Oline Gude-Karlsen | Silfri frá Mið-Fossum | 2,83 |
| 11 | Maiken Berild Vold | Kaspar frá Steinnesi | 2,13 |
| 12 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg | Tindra fra Kirstineholm | 1,92 |
Sara og Herkúles bæta við sig titli
Endurtók leikinn tíu árum seinna