Norðurlandamót Sænskur pallur í gæðingaskeiði í unglingaflokki

  • 5. ágúst 2026
  • Fréttir
Viktor Arnbro endaði í fjórða sæti.

Það var sænskur pallur í gæðingaskeiðinu í unglingaflokki. Vera Elgholm og Dreki från Lind urðu Norðurlandameistarar með 5,29 í einkunn. Molly Öberg og Lótus från Ödegården urðu í öðru sæti og í þriðja varð Majken Rostrom á Arfi frá Steinsholti 1 en þær kepptu allar fyrir hönd Svíþjóðar.

Í fjórða sæti varð síðan Viktor Arnbro á Ársól från Stensäter en hann keppir fyrir Íslands og er að reyna fyrir sér í samanlögðum greinum. Þau kepptu í T1 í morgun og gekk með ágætum og nældu sér í sæti í úrslitum. Þau eiga eftir að keppa síðan í fimmgangi og 100 m. skeiði

Niðurstöður úr gæðingaskeiði í unglingaflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Vera Elgholm Dreki från Lind 5,29
2 Molly Öberg Lótus från Ödegården 4,83
3 Majken Roström Arfur frá Steinskoti 1 3,38
4 Viktor Arnbro Ársól från Stensäter 3,25
5 Freja Hesselbjerg Tóra fra Almindingen 2,96
6 Julie Forberg Taktík fra Teland 0,33
7 Tilda Brandes Jara frá Horni I 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link