Norðurlandamót Danir röðuð sér í efstu sætin

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Rasmus Møller Jensen á Hörpu frá Höskuldsstöðum leiðir eftir forkeppni Ljósmynd: Cassandra Laikmets/CLfoto

Niðurstöður úr fimmgangi í meistaraflokki á Norðurlandamótinu

Dagurinn í dag á Norðurlandamótinu hófst á forkeppni í fimmgangi. Í fullorðinsflokki er það Rasmus Møller Jensen á Hörpu frá Höskuldsstöðum sem leiðir með 7,37 í einkunn. Þau standa vel að vígi í samanlögðu fimmgangsgreinum en þau enduðu í fjórða í gæðingaskeiðinu í gær með 7,42 í einkunn.

Jöfn í öðru sæti eru jöfn Anne Frank Andresen á Vökul frá Leirubakka og Sigurður Óli Kristinsson á Lótus fra Søgård með 7,33 í einkunn. Keppa þau öll fyrir hönd Danmerkur.

Íslendingar áttu einn fulltrúa í fimmgangi, Snorra Dal á Gimsteini frá Víðinesi 1 og eru þeir í fjórða sæti eftir forkeppni.

Hægt er fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV en allar niðurstöður, ráslista og dagskrá er hægt að nálgast á snjallforritinu HorseDay.

Niðurstöður úr fimmgangi F1 í meistaraflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Rasmus Møller Jensen Harpa frá Höskuldsstöðum 7,37
2-3 Anne Frank Andresen Vökull frá Leirubakka 7,33
2-3 Sigurður Óli Kristinsson Lótus fra Søgård 7,33
4 Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 7,27
5 Christina Lund Gulltoppur frá Selfossi 7,17
6 Madelen Johansson Sjarmi från Kristineberg 7,10
7-8 Steffi Svendsen Bósi frá Húsavík 6,93
7-8 Robin Haraldsen Páfi frá Kjarri 6,93
9 Elsa Teverud Kolskeggur från Gunvarbyn 6,87
10 Julie Christiansen Djáknar frá Selfossi 6,73
11 Laura Nyström Gilda fra Stenkullagård 6,57
12 Anne Stine Haugen Harpa fra Gavnholt 6,50
13 Stian Pedersen Adam fra Jakobsgården 6,43
14-15 Magnus Skulason Framherji frá Skipaskaga 5,90
14-15 Katie Sundin Brumpton Kolbeinn från Fögruhlíð 5,90
16 Wictoria Gren Kjarval fra Søtofte 5,87
17 Bjarne Fossan Valíant fra Fossan 5,63
18 Viivi Soimes- Mattila Mestur fra Lífsvatn 5,20

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link