Freja efst í fimmgangi unglinga
Freja Hesselbjerg og Tóra fra Almindingen Mynd: Cassandra Laikmets/CLfoto
Dagurinn hófst á fimmgangi í unglingaflokki. Hægt er að fylgjast með Norðurlandamótinu í beinni á EiðfaxaTV.
Fimm knapar tóku þátt í flokknum og eru það Freja Hesselbjerg og Tóra fra Almindingen sem eru efstar eftir forkeppni með 6,33 í einkunn en þær keppa fyrir Danmörku.
Íslendingar áttu einn fulltrúa, Viktor Arnbro en hann og Ársól från Stensäter eru í öðru sæti eftir forkeppni með 5,93 og þriðju eftir forkeppni er Julie Forberg á Taktík fra Teland með 5,17 í einkunn.
Niðurstöður úr forkeppni í fimmgangi í unglingaflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Freja Hesselbjerg | Tóra fra Almindingen | 6,33 |
| 2 | Viktor Arnbro | Ársól från Stensäter | 5,93 |
| 3 | Julie Forberg | Taktík fra Teland | 5,17 |
| 4 | Molly Öberg | Lótus från Ödegården | 4,87 |
| 5 | Majken Roström | Arfur frá Steinskoti 1 | 3,57 |
Freja efst í fimmgangi unglinga
Endurtók leikinn tíu árum seinna