Norðurlandamót Íslendingunum gekk vel í kappreiðunum

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk Myndir: Cassandra Laikmets/CLfoto

Niðurstöður úr fyrri umferðinni í 250 m. skeiðinu

Fyrsta umferð í 250 m. skeiði er lokið á Norðurlandamótinu en seinni umferðin er á morgun, föstudag.

Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk eru með besta tímann í fullorðinsflokki eða 22,94 sek. Beggi Eggertsson og Fjalladís frá Fornusöndum eru með sjöunda besta tímann.

Dagur Sigurðsson og Galbjartur frá Hóli er með besta tímann í ungmennaflokki, 23,93 sek. og Þórgunnur Þórarinsdóttir er með fjórða besta tímann á Tófu Þorvardóttir fran Stall Vitavillan.

Dagur Sigurðsson og Galbjartur frá Hóli

Í unglingaflokki var það bara Vera Elgholm og Dreki fran Lind sem náðu tíma, 24,91 sek.

Hægt er að fylgjast með Norðurlandamótinu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Eftir skeiðið er komið að fjórgangi í unglingaflokki og síðan B og A úrslitum í gæðingakeppninni.

Niðurstöður úr fyrri umferðinni í 250 m. skeiðinu
Fullorðinsflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 22,94
2 Natalie Fischer Ímnir fra Egeskov 23,46
3 Daníel Ingi Smárason Sif från Lindhof 23,50
4-5 Tania Højvang Jensen Glúmur frá Þóroddsstöðum 23,84
4-5 Liv Runa Sigtryggsdottir Baltasar frá Strandarhjáleigu 23,84
6 Wictoria Gren Kjarval fra Søtofte 24,08
7 Beggi Eggertsson Fjalladís frá Fornusöndum 24,09
8 Viivi Soimes- Mattila Mestur fra Lífsvatn 25,76
9 Maren Øyo Abel fra Røysland 25,91
10 Katie Sundin Brumpton Kolbeinn från Fögruhlíð 27,38
11-12 Gudmundur Einarsson Draumur från Tängmark 0,00
11-12 Sigurður Narfi Birgisson Randver frá Þóroddsstöðum 0,00
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Dagur Sigurðarson Galbjartur frá Hóli 23,93
2 Sara Gardarsdottir Hesselman Herkúles från Knubbo 24,31
3 Johanna Kirstine Nielsen Maja fra Skindbjerg 25,10
4 Þórgunnur Þórarinsdóttir Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan 25,49
5 Vilma Marie Ostergaard Glæsir fra Rist 25,60
6 Kanerva Niemi Sinfónia fra Kaakkola 26,36
7 Olivia Agerhill Júlía från Agersta 27,06
Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Vera Elgholm Dreki från Lind 24,91
2-3 Tilda Brandes Jara frá Horni I 0,00
2-3 Majken Roström Arfur frá Steinskoti 1 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link