Norðurlandamót Michelle leiðir fjórgang unglinga

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Michelle Edvall Karlsson og Kinnungur frá Torfunesi Ljósmynd: Cassandra Laikmets/CLfoto

Niðurstöður úr forkeppni í fjórgangi í unglingaflokki

Síðasta forkeppni dagsins er í fjórgangi í unglingaflokki en næst á dagskrá eru B og A úrslit í gæðingaflokkum.

Michelle Edvall Karlsson og Kinnungur frá Torfunesi eru efst eftir forkeppni með 6,80 í einkunn en þau keppa fyrir Svíþjóð. Næst koma tveir danskir knapar en Andrea Schmidt Laursen og Kristall frá Hákoti eru í öðru sæti með 6,67 í einkunn og í þriðja er Summer Sandlau Jacobsen á Djass fra Engholm með 6,57 í einkunn.

Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay.

Niðurstöður úr forkeppni í fjórgangi í unglingaflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Michelle Edvall Karlsson Kinnungur frá Torfunesi 6,80
2 Andrea Schmidt Laursen Kristall frá Hákoti 6,67
3 Summer Sandlau Jacobsen Djass fra Engholm 6,57
4 Liam Billow Agða från Tängby 6,50
5 Ella Oxaas-Egge Hrafnkatla fra Nyberg 5,80
6 Anette Korhonen Alísa frá Strandarhjáleigu 5,77
7 Lilja Kontio Dásemd frá Traðarholti 5,73
8 Mia Skavhaug Atgeir frá Margrétarhofi 5,40

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link